Morgunblaðið - 13.12.2011, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.12.2011, Qupperneq 15
Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Birna Guðrún Konráðsdóttir Borgarfjörður Mikið var um um dýrðir í Stafholti í Borgarfirði 4. desember sl. Bar- áttumál sóknarbarna var í höfn, presturinn var að flytja heim eftir þriggja ára fjarveru. Kirkjan var troðfull af fólki og biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, heiðraði söfn- uðinn með heimsókn sinni. Það var árið 2008 að sr. Elínborg Sturludóttir tók við embætti prests í Stafholtsprestakalli af sr. Brynj- ólfi Gíslasyni sem þjónaði hafði söfnuðinum í nær fjörutíu ár. Af nægjusemi hafði sr. Brynjólfur og hans fjölskylda búið í íbúðarhúsinu sem síðustu árin í hans prestskap var þó orðið óíbúðarhæft. Var nýi presturinn því fluttur í leigu- húsnæði í Borgarnesi. Sóknarbörn vildu ekki una þessu fyrirkomulagi til frambúðar, hófu undir- skriftasöfnun í prestakallinu, áskor- un til kirkjuyfirvalda um að byggt yrði nýtt íbúðarhús í Stafholti. Gamla húsið verður líklega rifið á nýju ári Óskir sóknarbarna og prests hafa nú ræst, staðurinn setinn að nýju og sóknarpresturinn kominn heim. Stafholt er í Vesturlandspró- fastsdæmi og þar hafa ekki verið byggð mörg prestssetur undanfarin ár. Líklega er um hálf öld síðan sérstaklega var byggt íbúðarhús fyrir prest í prófastsdæminu þótt íbúðarhús hafi verið keypt sem prestssetur. Gamla húsið í Stafholti var byggt árið 1938 og mun að líkindum verða rifið á nýju ári en prestar hafa setið staðinn nærri óslitið síð- an á tólftu öld. Biskup bað staðnum og sóknarbörnum blessunar Gleðiathöfnin hófst með guðs- þjónustu í Stafholtskirkju þar sem Karl Sigurbjörnsson biskup prédik- aði. Hann óskaði prestsfjölskyld- unni og sóknarbörnum til hamingju með uppbygginguna og nýja prestssetrið í prédikun sinni, bað staðnum og sóknarfólki öllu Guðs blessunar. Að messu lokinni var haldið heim í nýja prestsbústaðinn þar sem for- ráðamenn JS Skjanna afhentu hús- ið formlega en það var fyrirtæki Eiríks Ingólfssonar, EJI í Borg- arnesi, sem sá um bygginguna sem undirverktaki JS Skjanna. Prófast- urinn í Vesturlandsprófastsdæmi, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, sóknarprestur á Borg, blessaði síð- an húsið. Fyrir hönd sóknarbarna presta- kallsins þakkaði Jón G. Guðbjörns- son Lindarhvoli biskup Íslands fyr- ir hans þátt í uppbyggingunni og bað fyrir þakkir og kveðjur til kirkjuráðs sem heimilaði bygg- inguna. Sóknarbörn í Stafholtsprestakalli lögðu á það áherslu, þegar nýr prestur var ráðinn, að þeim góða sið væri haldið í prestakallinu að bjóða í kaffi eftir messu. Svo hefur orðið og þennan dag var engin und- antekning á, borðin í nýja prests- setrinu svignuðu undan veisluföng- um. Höfðu sóknarbörn á orði að nú væri sannkallaður gleðidagur í Stafholti og buðu prestinn sinn hjartanlega velkominn heim. Gleðidagur í Stafholti eftir langa baráttu Gleðidagur í Stafholti Nýja prestsetrið í Stafholti er hannað af Sigríði Sig- þórsdóttur frá Einarsnesi. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason blessaði húsið.  Prestssetrið tekið í notkun, hið fyrsta sem byggt er á Vesturlandi í nærri hálfa öld Haminguóskir » Sóknarpresturinn í Staf- holti, sr. Elínborg Sturludóttir, er fluttur á prestssetrið eftir þriggja ára fjarveru. » Biskup Íslands, Karl Sig- urbjörnsson, óskaði prestsfjöl- skyldunni og sóknarbörnum til hamingju með uppbygginguna og bað staðnum og sóknarfólki öllu Guðs blessunar. Morgunblaðið/BGK Hátíð Sr. Elínborg Sturludóttir og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í hátíðarguðsþjónustu í Stafholtskirkju í Borgarfirði. Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Munið að slökkva á kertunum Hafið hæfilegt bil á milli kerta, almenn viðmiðun er að hafa a.m.k. 10 cm bil á milli kerta Slökkvilið höfuborgasvæðisins Pakki á pakka Fallegt pakkaskraut hannað af Arca Design Island. Aðrir sem standa að þessu eru Lógóflex og Markó- Merki. Jólatréð verður selt á 500 kr. hjá Arca design, Grímsbæ við Bústaðaveg og fer öll upphæðin óskipt til stuðnings Fjölskylduhjálpar Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.