Morgunblaðið - 13.12.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.12.2011, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011 Stuttar fréttir ... ● Fjárfestar virðast síður en svo sann- færðir um að það samkomulag sem leiðtogar Evrópu- sambandsins náðu um liðna helgi dugi til að leysa þann djúpstæða skulda- vanda sem evru- svæðið glímir við um þessar mundir. Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu lækkuðu umtalsvert á mörkuðum í gær. DAX-vísitalan í Þýskalandi lækkaði mest, eða um ríflega 3,15%. CAC-vísitalan í Frakklandi lækkaði hins vegar um 2,39% og FTSE-hlutabréfavísitalan í Bretlandi lækkaði um 1,5%. Sama var upp á ten- ingnum á hlutabréfamörkuðum vest- anhafs og lækkaði gengi S&P 500- vísitölunnar um meira en 1,5% við opnun markaða. Gengi evrunnar lækkaði að sama skapi töluvert og var tæplega 1% lægra gagn- vart Bandaríkjadal við lok viðskipta í Evr- ópu í gær. Áhættuálagið á spænsk og ítölsk rík- isskuldabréf hækkaði sömuleiðis. Ávöxt- unarkrafan á tíu ára ítölsk ríkisskuldabréf hækkaði um 27 punkta – úr 6,36% í 6,57%. Skuldastaða ítalska ríkisins er á mörkum þess að vera ósjálfbær miðað við slíkan fjármögnunarkostnað. Fjárfestar bregðast fá- lega við tillögum ESB Þýska kauphöllin. ● Það sem af er þessu ári hefur velta á fasteignamarkaði verið 126,3 milljarðar króna, en var 76,5 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Gerðir hafa verið 4.345 samningar en þeir voru 2.729 í fyrra. Þetta er samkvæmt tölum frá Þjóð- skrá. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 2. desember til og með 8. desember var 105. Þar af voru 77 samningar um eignir í fjölbýli og 18 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 3.104 milljónir króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna. Velta á fasteignamark- aði aukist á milli ára Fjárhagsstaða Haga er betri sem nemur ríflega 510 milljónum króna í kjölfar endurútreiknings Arion banka á gengistryggðum lánum félagsins að því er fram kemur í viðauka við skráningarlýsingu Haga sem félagið birti síðasta föstudag. Greinendur sem Morgunblaðið ræddi við eru sammála um að það sé óheppilegt að slíkar fjárhagsupplýs- ingar hafi ekki legið fyrir áður en hlutafjárútboðið fór fram. Líklegt má telja að hægt hefði verið að fá hærra verð á hlut í úboðinu sökum betri fjár- hagsstöðu félagsins en áður hafði leg- ið fyrir. Hins vegar er ljóst að sá aðili sem ber skarðan hlut frá borði er fyrst og fremst seljandi bréfanna, Ar- ion banki. Við lok fyrri hluta yfirstandandi rekstrarárs Haga nam handbært fé félagsins um 1.800 milljónum króna. Endurútreikningur Arion banka á gengistryggðum lánum Haga bætir því þá stöðu umtalsvert og veitir fyr- irtækinu svigrúm til að greiða hraðar niður skuldir félagsins. Í hlutafjárútboði Haga, sem fram fór 5.-8. desember, var áttföld um- framspurn eftir bréfum í félagið og því óhjákvæmilegt að áskriftir yrðu skornar niður. Fjárfestum sem skráðu sig fyrir kaupum að andvirði 25-500 milljónir króna var úthlutað bréfum fyrir 1,5-90 milljónir króna. Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsinga- fulltrúi Arion banka, segir í samtali við Morgunblaðið að einu aðilarnir sem fengu að kaupa hlut að andvirði 90 milljónum króna – sem er 18% af 500 milljónum – hafi verið lífeyris- sjóðir og aðrir sjóðir í almannaeigu. Aðrir aðilar sem töldu sig hafa sam- bærilega fjárfestingagetu – bæði ein- staklingar og fyrirtæki – fengu hins vegar aðeins 6% af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í útboðinu. Aðspurður hvort sú aðferðafræði gangi ekki í berhögg við markmið seljandans um dreifða eignaraðild segir Haraldur svo alls ekki vera og bendir á að þúsundir einstaklinga standi að baki lífeyrissjóðum og verð- bréfasjóðum. Fjárhagsstaða Haga batn- ar um 510 milljónir króna Morgunblaðið/Ómar Útboð Lífeyrissjóðir og aðrir sjóðir í almannaeigu voru einu aðilarnir sem fengu úthlutað bréfum að andvirði 90 milljón króna í útboði Haga.  Lífeyrissjóðir fengu að kaupa mest í útboði Haga Hu Jintao, forseti Kína, hefur lofað að auka innflutn- ing til Kína í þeim tilgangi að ýta undir heims- viðskipti. Hann sagði þetta í ræðu sem hann flutti í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að Kína fékk aðild að Heims- viðskiptastofnuninni, WTO. Hu sagði að hann vænti þess að innflutningur til Kína myndi aukast um átta billjónir dollara árlega (átta milljón milljónir) á næstu fimm ár- um. Heimsviðskipti hafa dregist sam- an á þessu ári vegna samdráttar í Evrópu, en í Evrópu er mikilvægasti markaður fyrir kínverskar vörur. Kínverjar selja miklu meira út til Evrópu en Evrópa flytur inn til Kína. Hu hét því í ræðunni að koma á meira jafnvægi í viðskiptum milli Kína og helstu viðskiptalanda. Hu Jintao Lofar að auka inn- flutning Matsfyrirtækið Moody’s tilkynnti í gær að það ætl- aði á fyrsta árs- fjórðungi næsta árs að endur- meta lánshæf- ismat Evrópu- sambandsríkj- anna. Ákvörð- unin kemur í kjölfar leiðtogafundar ESB í síðustu viku þar sem mistókst að ná fullri samstöðu um aðgerðir til að taka á skuldakreppunni. Ákveðinnar taugaveiklunar gæt- ir á mörkuðum eftir að Bretar ákváðu að taka ekki þátt í sam- komulagi ESB-ríkja. Standard & Poor’s varaði við því í síðustu viku að fyrirtækið kynni að lækka láns- hæfismat evruríkja. Lánshæfi ESB-ríkja  Moody’s endur- skoðar lánshæfið David Cameron Óttinn við atvinnuleysi er mjög vax- andi í heiminum. Spilling og fátækt eru enn efst á listanum yfir það sem fólk hefur mestar áhyggjur af, en atvinnuleysi var nefnt af 18% af þeim 11.000 manns sem tóku þátt í könnun BBC World Service í 23 löndum. Þegar könnunin var fyrst gerð árið 2009 voru það ekki nema 3% sem nefndu atvinnuleysi. Á Spáni var óttinn við atvinnuleysi mestur, en 54% Spánverja höfðu áhyggjur af því. Spilling er samt áfram á toppi listans en um fjórðungur þátttak- enda í könnuninni hafði gert hana að umræðuefni síðustu fjórar vik- urnar áður en könnunin var gerð. Þónokkur munur var á áhyggjum fólks af því hvort um þróuð eða þró- unarríki var að ræða. Hlýnun jarð- ar var ekki mesta áhyggjuefnið hjá neinum nema Bretum og Þjóð- verjum. Í Bandaríkjunum, Frakklandi og Japan voru efnahagsaðstæður í heiminum aðaláhyggjuefnið á með- an í ríkjum eins og Nígeríu, Ind- landi, Tyrklandi, Indónesíu og Perú var spilling aðaláhyggjuefnið. Í löndum eins og Kína, Rússlandi, Kenía og Filippseyjum var aðal- áhyggjuefnið hækkandi matar- og orkuverð. borkur@mbl.is Óttinn við atvinnu- leysi mjög vaxandi Máttleysi Víða um heim hafa áhyggjur af atvinnuleysi aukist undanfarið. Skráð atvinnuleysi í nóvember var 7,1%, en að meðaltali voru 11.348 at- vinnulausir í nóvember. Í október var skráð atvinnuleysi 6,8% og fjölgaði at- vinnulausum um 430 að meðaltali frá október eða um 0,3 prósentur sam- kvæmt því sem fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi, sem gerð var opinber í gær. Fram kemur í skýrlsunni, að yfir- leitt versni atvinnuástandið frá nóv- ember til desember, m.a. vegna árs- tíðasveiflu. Í desember 2010 var atvinnuleysi 8%, en 7,7 % í nóvember 2010. Vinnumálastofnun áætlar að at- vinnuleysið í desember 2011 aukist lítils háttar og verði á bilinu 7,2 %-7,4%. Körlum á skrá fjölgaði um 322 Körlum á atvinnuleysisskrá fjölg- aði um 322 að meðaltali og konum um 108. Atvinnulausum fjölgaði um 168 á höfuðborgarsvæðinu en um 262 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,9% á höfuðborgarsvæðinu en 5,7% á landsbyggðinni. Mest var það á Suð- urnesjum, 12,3%, en minnst á Norð- urlandi vestra, 2,6%. Atvinnuleysið var 6,9% meðal karla og 7,3% meðal kvenna. Alls var 2.021 erlendur ríkisborgari án atvinnu í lok nóvember, þar af 1.186 Pólverjar eða um 59% þeirra út- lendinga sem voru á skrá í lok mán- aðarins. Flestir atvinnulausra er- lendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 405. Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en sex mánuði eru nú 6.734 og fjölgar um 68 frá lokum október og eru um 55% þeirra sem eru á atvinnu- leysisskrá í lok nóvember. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en ár fjölgar úr 4.491 í lok október í 4.549 í lok nóvember. Atvinnulausum fjölgaði um 430 á milli október og nóvember Skráð atvinnuleysi í nóvember mældist 7,1% Morgunblaðið/Golli Skýrslan Fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar að atvinnuleysi hafi ekki mælst meira á Íslandi í sex mánuði, en það gerði nú í nóvember.                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +/0-1 ++0-2. .+-.,2 .3-40 +5-43. +./-1, +-41.2 +/2-/5 +4/-1/ ++,-45 +/0-54 ++0-50 .+-140 .3-0.+ +5-441 +./-54 +-410, +/4-2. +4/-/. .+4-0/,1 ++,-/4 +/5-. ++5-+ .+-2+/ .3-0/. +5-032 +.,-++ +-42+2 +/4-,5 +4,-.0 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.