Morgunblaðið - 13.12.2011, Qupperneq 33
Innblásinn Spurning hvort Bakkus sé aðalinnblástur Kemp. Í það minnst a kemur hann mikið við sögu.
Það ætlar að verða seintsem ég læri af reynslunniog fer að hlusta á það semfólkið á netinu segir. Þeir
sem tjá sig um hluti eins og bíó-
myndir og tónlist hafa oft eitthvað
til síns máls. Ég virti hins vegar
skoðanir þessa fólks að vettugi og
byggði mér góða trú og nokkrar
væntingar sem brotnuðu á nokkr-
um korterum og urðu að engu.
Ég fór sem sagt í bíó og sá The
Rum Diary og það er lífsreynsla
sem ég hefði viljað vera án. Ekki
það að ég gráti þessa upplifun sem
tvo og hálfan tíma af lífi mínu sem
ég fæ aldrei aftur heldur hefði ég
alveg getað nýtt þá í eitthvað ann-
að.
Þessi ræma gerist í Púertó Ríkó
árið 1960 og það fyrsta sem við
sjáum er Kemp (Depp) helþunnur á
hótelherbergi. Hann er óútgefinn
rithöfundur sem hefur gefist upp á
að reyna að finna röddina sína og
hefur því snúið sér að blaða-
mennsku. Hann flytur til eyjarinnar
til að hefja störf við blað sem hefur
mátt muna fífil sinn fegurri og er
strax úthlutað ómerkilegum
íhlaupastörfum sem honum finnst
sér ekki samboðin. Hann kynnist
Sala (Rispioli), ljósmyndaranum á
blaðinu, og þeir fara að brasa eitt
og annað í samkrulli við Moburg
(Ribisi) sem er með áhugaverðari
persónunum í myndinni. Hann er
ógeðslega til fara, örlagafíkill með
nasískar sálarflækjur og Hitlers-
blæti. Þeir félagar eru gjarnir á að
koma sér í vandræði víðsvegar um
eyjuna og eru meira eða minna full-
ir, nema þá helst þegar þeir eru
þunnir. Kemp kemst fljótlega í
kynni við misjafna menn, kaup-
sýslumenn sem hafa í hyggju að
græða á tá og fingri með því að
stjórna umfjöllun um verkefnin sem
þeir vinna, og þar kemur áhuga-
verða nálgunin. Að vissu leyti
mætti líta á þessa mynd sem merki-
lega ádeilu á fjármálamarkaðina og
auðvaldsstefnuna sem viðgengst
þar en sú hugmynd náði ekki að
dvelja lengi í huganum. Helsti vald-
ur þess er væntanlega sá að sagan
er skrifuð í kringum 1960 og þeir
viðskiptahættir sem fjallað er um
vel þekktir í dag, þó svo þeir séu
fordæmdir.
Myndin átti vissulega góða
spretti en þeir voru fáir, skamm-
vinnir og gisnir og langt frá því að
ná að bera myndina uppi. Hún er
byggð á bók eftir Hunter S. Thom-
son og eftir að ég kynnti mér málið
lauslega held ég það það geti ekki
verið að einni einustu blaðsíðu hafi
verið sleppt. Uppbygging mynd-
arinnar var frekar bókarleg og lyk-
ilatriði kvikmyndahandrita, svo sem
uppbygging, flétta, hvörf og lausn,
víðs fjarri. Þegar farið var að nálg-
ast tveggja og hálfs tíma setu í
bíóinu var ég orðinn tvístígandi (þó
svo ég hafi setið á óæðri endanum).
Mér reiknaðist til að nú væri að
koma tími á að myndin færi að
klárast en ég sá engin merki þess
að það væri að gerast fyrr en allt í
einu að menn kvöddust og Kemp
sigldi inn í sólarlagið. Mér fannst
þetta alveg stórundarlegt. Mér
finnst að á tveimur tímum af jafn-
innihaldslítilli ræmu sé algjört lág-
mark að klára söguþráðinn en um
leið var ég hálfpartinn feginn því að
hún væri búin. Í fáum orðum; lang-
dregin mynd með undarlega upp-
byggingu og eiginlega alveg enda-
laus.
Langdregin drykkja
Laugarásbíó og Borgarbíó
The Rum Diary bbnnn
Leikstjóri: Bruce Robinson.
Aðalleikarar: Johnny Depp, Michael
Rispioli og Giovanni Ribisi.
Bandaríkin, 2011, 120 mín.
HJALTI ST.
KRISTJÁNSSON
KVIKMYNDIR
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2011
Það verður ekki annað sagten Bjarni Bernharður séástríðufullt skáld og af-kastamikið. Það er varla
hálft ár síðan hann gaf út ljóðabók
og nú er komin önnur sem hann
nefnir Heimsósómaljóð. Á hitt er að
líta að líkt og oft áður, þegar mikið
er skrifað, er viðbúið að niðurstaðan
verði misjöfn að gæðum.
Fyrstu ljóð bókarinnar eru fínlega
spunninn óður til ljóðsins. Margt er
þar vel ort og þekkilega. Ljóðið er
brothætt og nakið, það er „gullinn
þráður / á hvítri örk // fíngerður
orðavefur // táknmynd / sem hrópar í
þögn“. Í þessum hluta bókarinnar er
höfundurinn trúr þessari lýsingu.
Ljóð hans eru haganleg myndsmíð
og hann virðir að mestu hið brot-
hætta eðli ljóðsins sem þó hefur svo
mikinn endurnýjunarmátt:
Ljóð
opna dyr
lýsa og verma
falla í gleymsku
birtast splunkuný.
Svo er eins og Bjarna Bernharði
sé nóg boðið. Það hleypur í hann
hrópandi og vandlætari. Oft hefur
Bjarni ort ágæt ljóð full með þjóð-
félagsgagnrýni og drepið á ýmsar
meinsemdir samfélagsins. En nú
reisir hann sjálfum póstmódernism-
anum níðstöng í nokkuð langri
ádrepu og ég er það mikil tepra að
mér finnst það ekki alltaf smekk-
legur skáldskapur þó að ég geti í
sjálfu sér verið sammála ýmsum
gagnrýnisatriðum Bjarna. Hann
hefur svo sem engar fyrirætlanir í
þá veru að vera þægilegt skáld eða
að virða borgaralegar dyggðir.
Í lokahlutanum er þjóðfélagsrýnin
sett fram á öllu skaplegri máta og
líkist orðræðan á kafla meira spá-
dómsritum en nokkru öðru. Honum
finnst framtíðin fremur daufleg,
kvartar undan orðkúluhríð fjölmiðla,
þrasi og fjasi um ekki neitt. Hann
gagnrýnir veraldarhyggjuna og spyr
háleitra spurninga um tilveruna.
Einhvern veginn finnst mér þó
skáldskapur Bjarna í þessari bók
ósamstæðari og mótsagnafyllri en í
mörgum fyrri bókum hans. Ef til vill
liggur honum of mikið á hjarta um
þessar mundir til fága skáldskapinn
í anda sýnar sinnar á ljóðið. Mér
finnst hann stundum hafa ort betur.
Ljóð
Heimsósómaljóð
bbmnn
Bjarni Bernharður. Egoútgáfan. 2011,
48 bls.
SKAFTI Þ.
HALLDÓRSSON
BÆKUR
Ljóðið og vandlætingin
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR OG VIP MYNDIR
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - 2D 750kr. - 3D 1.000kr.
HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 16
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 2D L
PUSS IN BOOTS Enskt tal kl. 10:10 3D L
A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 8 2D 16
HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:40 3D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 9:20 2D VIP
THEHELP kl. 8 2D L
TOWERHEIST kl. 8 - 10:20 2D 12
THE INBETWEENERS kl. 10:45 2D 16
/ ÁLFABAKKA
HAROLD & KUMAR kl. 5:40 - 8 - 10:10 3D 16
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:40 3D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:40 2D L
AGOODOLDFASHIONEDORGY kl. 8 2D 16
HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:40 3D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl.8 -10:30 2D 12
SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:20 2D 16
THE IDES OF MARCH kl. 10:20 2D 14
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L
HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 8 - 10:10 3D 16
A GOOD OLD FASHIONED ORGY kl. 10 2D 16
THEHELP kl. 7 2D L
BANGSÍMON kl. 5:40 2D L
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 16
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L
PUSS IN BOOTS Enskt tal kl. 8 3D L
TRESPASS kl. 8 - 10:10 2D 16
HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:40 3D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 10:10 2D 12
HAROLD & KUMAR Ótextuð kl. 8 - 10 3D 16
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 6 3D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 2D 12
HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 6 2D L
AGOODOLDFASHIONEDORGY kl. 10 2D 16
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
SEEKING
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, AKUREYRI OG
KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
KLIKK
AÐAS
TA GR
ÍNMY
ND ÁR
SINS
BELLA ER Í LÍFSHÆTTU
OG EDWARD OG JACOB ÞURFAAÐ
SAMEINA KRAFTA SÍNA EF ÞEIR
ÆTLA BJARGA LÍFI HENNAR
100/100
„MERRILY OUTRAGEOUS, OVER-THE-TOP FUN“
-ENTERTAINMENT WEEKLY
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SHREK
OG KUNG FU PANDA FRÁBÆR TEIKNIMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
„NIÐURSTAÐAN
ER SVO FYNDIN
OG AÐLAÐANDI
AÐ ÁHORFENDUR
HLJÓTA AÐ FALLA
FYRIR ÞESSUM
KATTAHEIMI“
-BOXOFFICE
MAGAZINE
HHHH
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
MÖGNUÐ
ÞRÍVÍDDARMYND
SÝND Í KRINGLUNNI
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 6 2D L
SEEKING JUSTICE kl. 10:20 2D 16
TOWERHEIST kl.5:50-8-10:20 2D L
WHAT́ SYOURNUMBER kl. 8 2D LSÝND Í EGILSHÖLL
OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
10. DES kl.18:00
bein útsending
14. des kl. 18:00
endurflutt
Faust
Gounod
Faust Jonas Kaufman
Marguerite Marina Poplavskaya
Méphistophélés René Pape
Conductor Yannick Nézet-Séguin
ENDURFLUTT
14. DES KL. 18:00
á 3D sýning
ar1000
kr.
á 3D sýning
ar1000
kr. Til
boð
750 kr.
á 3D sýning
ar1000
kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr. Tilboð
750 kr. Tilboð
750 kr.
NÝIR MATREIÐSLUÞÆTTIR
Í MBL SJÓNVARPI!
UNDIR 2.000 KR.
MATUR FYRIR FJÓRA