Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 2

Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þetta kom mér í opna skjöldu. Ég var nýkominn af sjónum þegar starfsmenn DAS höfðu samband. Ég hafði aldrei unnið neitt hjá þeim áð- ur,“ segir færeyski sjómaðurinn Ról- ant Poulsen um þau óvæntu tíðindi er honum var tilkynnt um tæplega 19 milljóna króna vinning í happ- drætti DAS. Borgarstjóri til sjós Poulsen er jafnframt borgarstjóri eins og það heitir upp á færeyska vísu í Eiði, 669 manna bæjarfélagi á Austurey í Færeyjum. Hann er þjóð- þekktur í Færeyjum, meðal annars vegna formennsku sinnar í Línu- skipum, félagi færeyskra línuskipa- útgerða. Hann hafði árum saman keypt miða hjá DAS þegar stóri vinningurinn kom í hans hlut á reikningsnúmerið 60076. Dregið var um 18,9 milljónir króna að þessu sinni og var aðalvinningurinn Toyota Avensis-bifreið á einfaldan miða, eða Toyota Land Cruiser 150-jeppi á tvöfaldan miða. Nýr bíll kæmi sér vel „Ég átti tvöfaldan miða og get val- ið um að fá jeppann eða taka vinn- inginn allan út í reiðufé. Þetta er svo nýskeð að ég hef enn ekki ákveðið mig. Þetta er enn að síast inn. Ég á þrettán ára gamlan skrjóð og það er kannski kominn tími til að endur- nýja,“ sagði Poulsen léttur í bragði. Poulsen er mikill Íslandsvinur. Hann hefur verið í siglingum í ára- tugi og lýsir síðustu sjóferðinni svo: „Við vorum í stórsjó á Íslands- miðum. Ölduhæðin náði 25 metrum. Ég hef sjaldan eða aldrei lent í öðru eins. Svo kemur maður heim og fær þessi tíðindi.“ – Hvernig brást eiginkonan, Magnina, við tíðindunum? „Hún fékk vægt áfall,“ segir Poulsen og hlær. Íslendingar eru bræðraþjóð Hann þagnar síðan og vill koma þakklæti sínu á framfæri. „Ég er undrandi og glaður að hafa unnið stóra vinninginn, ekki síst þar sem hann kemur frá bræðraþjóð okkar í vestri. Íslendingar eru okkar nánustu vinir og ættingjar meðal þjóða. Ég hef fiskað við Íslands- strendur síðan 1964 og hef ekkert nema gott að segja um Ísland og fólkið sem þar býr. Vil ég nú endur- taka þakklæti mitt og óska Íslend- ingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs,“ segir Poulsen og færir vinum á Íslandi sínar bestu kveðjur. Greiða með gíróseðlum Að sögn Sigurðar Ágústs Sigurðs- sonar, forstjóra Happdrættis DAS, var Færeyingum boðið að spila með árið 1996 og hafa þeir tekið þátt síð- an. Heitir happdrættið Happadrátti DAS á færeysku. Fer þátttakan þannig fram að Færeyingar kaupa miða með gíró- seðlum sem þeir fá senda mán- aðarlega. Hafa þeir fengið marga að- alvinninga auk smærri vinninga í þessi 16 ár. Heppni Færeyinga í happdrætt- inu er eftirtektarverð því íbúafjöldi landsins stendur nú í tæpum fimm- tíu þúsundum.  Færeyskur sjómaður og borgarstjóri vann aðalvinning í Happdrætti DAS  Hefur ekki ákveðið hvort hann vill jeppa eða tæpar 19 milljónir í reiðufé  Eiginkonan fékk vægt áfall við tíðindin Náði landi á öldum lukkunnar Morgunblaðið/Ómar Höfuðstaður Tinganes í Þórshöfn. Poulsen er búsettur á Austurey. Rólant Poulsen Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Menn eru mikið að spá í hvort þeir séu að fá síðustu lúðuna,“ sagði Þráinn Sigfússon, starfsmaður í fiskbúð- inni Hafrúnu í Reykjavík, í gær. Hann sagði að margir viðskiptavinir hefðu spjallað um bann við lúðuveiðum og spekúlerað í afleiðingum þess. Lúðusala hefur verið tals- vert mikil fyrir jólin alla jafna í Hafrúnu, enda lúða hátíð- armatur. Í gær var svolítið til af smálúðu og von á meiri lúðu í búðina. Þráinn sagði vinsælt að borða lúðu um há- tíðirnar. Hann sagði að þeir seldu einungis ferskan fisk og ef lúðan fengist ekki fersk yrði hún ekki til í búðinni. „Umræðan um lúðuna er besta auglýsing sem fisk- búðir hafa fengið frá Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- ráðherra, því það eru allir að spyrja eftir lúðu. Eftir- spurnin hefur aukist alveg gífurlega. Menn eru að taka lúðu í paté og til að eiga milli jóla og nýárs,“ sagði Kári Þór Jóhannsson, fisksali á Ísafirði, í framhjáhlaupi þegar rætt var við hann í fyrradag um kæsta skötu. Lúða verður fágætari í fiskbúðum á næsta ári en hingað til vegna banns við lúðuveiðum frá næstu áramót- um. Þá verða sjómenn skyldaðir til að sleppa aftur í sjó- inn lífvænlegri lúðu sem veiðist. Sú lúða sem berst að landi á næsta ári verður seld en andvirðið mun renna til rannsókna. Ragnar H. Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fisk- markaðs Suðurnesja, sagði að í fyrra hefðu borist 169 tonn af lúðu á fiskmarkaði landsins og meðalverðið verið 1.004 krónur kílóið. Hann sagði að þeir hefðu ekki orðið varir við aukna spurn eftir lúðu eftir boðað bann við veið- um. Heildarlúðuaflinn í fyrra var líklega upp undir 500 tonn en lúða veidd á haukalóð fór mest beint í útflutning. „Við höfum áhyggjur af því að þetta hverfi af mark- aðnum,“ sagði Ragnar. „Við sjáum ekki hvernig á að vigta eins, tveggja og þriggja kílóa lúðu á 50 tonna hafn- arvog.“ Hann sagði að þeir teldu að þetta yrði að fara í annan farveg en ráðgert væri og hafa gert tillögu um það til ráðuneytisins. „Við teljum eðlilegt að lúða verði seld sem „VS-afli“,“ sagði Ragnar. Það er þau 5% sem mega vera framyfir kvóta svo menn hendi ekki neinu. Andvirði lúðu á að renna í sama sjóð og andvirði VS- aflans. Seldur VS-afli skiptist þannig að 80% fara til rík- isins og 20% til útgerðarinnar. „Okkur finnst eðlilegt að útgerðin fái eitthvað, hún getur ekki stjórnað því hvort það kemur lúða í veiðarfærin eða ekki,“ sagði Ragnar. Mikið spáð í síðustu lúðuna, segir fisksali  Lúða verður fágætari eftir að lúðuveiðibann tekur gildi Morgunblaðið/Kristinn Lúðan er eftirsótt Þráinn Sigfússon í Hafrúnu sagði að viðskiptavinirnir spáðu mikið í áhrif lúðuveiðibannsins. Vinnubrögðum hefur hrakað á Al- þingi að mati Sigurðar Kára Krist- jánssonar, sem hefur kvatt stjórn- málin og er orðinn meðeigandi að Lögmönnum Lækjargötu. Hann tel- ur að endurnýjunin hafi orðið of hröð og það komi niður á störfum þings- ins. Þetta kemur fram í samtali við hann í Sunnudagsmogganum. „Mér finnst að vinnubrögðum hafi hrakað á Alþingi, fagmennskan hef- ur minnkað og mér hefur fundist að þeir sem þarna eiga sæti beri ekki nægilega virðingu fyrir því verkefni sem þeim hefur verið falið og kasti oft til höndunum varðandi mikilvæg- ar lagabreytingar, sem þyrftu miklu meiri yfirlegu í þingstörfum.“ Vantraustið meira en áður Þá segir hann andrúmsloftið miklu verra, togstreitan og van- traustið sé meira en áður. Það ásamt árangursleysi ríkisstjórnarinnar valdi því að almenningur beri minna traust til Alþingis. „Mér finnst að stjórnmálamenn þurfi til framtíðar að líta til þeirra verkefna sem þeim hefur verið falið að leysa, fremur en að horfa á alla hluti út frá sinni eigin persónu og flokksskírteinum. Þannig er pólitík- in að mörgu leyti orðin, persónuleg og rætin. Þar bera þeir þyngstu sökina sem hæst hafa talað um breytt vinnu- brögð.“ Svo segir hann að skapa þurfi þau starfsskilyrði að það sé eftirsóknarvert að starfa á Al- þingi. „Til þess að fá frambærilegt fólk til að sinna þessum störfum þarf það að vera að minnsta kosti sæmi- lega vel launað. Það þorir varla nokkur þingmaður að segja þetta, og ég er illa svikinn ef ég verð ekki gagnrýndur fyrir það, en þing- mennska getur verið fulldýrt áhuga- mál. Ég held að fólk átti sig ekki á því, að þingmenn eru í rauninni alltaf í vinnunni og launakjör eru ekki sambærileg því sem býðst á almenn- um vinnumarkaði, að minnsta kosti ekki fyrir fólk sem hefur annaðhvort aflað sér mikillar menntunar eða reynslu.“ pebl@mbl.is Vinnubrögðum hrakar á þingi  Sigurður Kári Kristjánsson kveður stjórnmálin og snýr sér að lögmennsku Sigurður Kári Kristjánsson Efnahags- og viðskiptaráðherra mun leggja fram frumvarp á vor- þingi til nýrra laga um neytendalán sem eiga að ná yfir lán smálánafyr- irtækja samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. Frumvarpinu er ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins nr. 2008/48/EB um neytendalán sem fellir smálán inn í ramma neytenda- lánalaga. Samkvæmt upplýsingum frá smá- lánafyrirtækinu Hraðpeningum kappkostar fyrirtækið að allar upp- lýsingar um smálán, lántökur, lána- skilmála og greiðslur séu aðgengi- legar, skýrar og skiljanlegar og að enginn falinn kostnaður sé á lánum þeirra. Þá séu skilyrði lántöku þau að lántakandi þurfi að vera orðinn 18 ára, megi ekki vera á vanskilaskrá hjá Creditinfo og ekki skráður hjá Umboðsmanni skuldara. Þá bendir fyrirtæki á að smálán leysi einungis tímabundinn fjár- skort, ekki almenn fjárhagsvanda- mál einstaklinga til lengri tíma litið. Neytendalög munu ná yfir smálán Ábyrg lánastarfsemi » Neytendalög ná yfir smálán samkvæmt nýju frumvarpi ráð- herra. » Ekki hagur neytenda að banna þeim að taka smálán enda allar upplýsingar um þau skýr og skiljanleg og enginn falinn kostnaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.