Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 10
Tékkland Það þarf að kaupa rétta
vatnakarfann fyrir jólahátíðina.
Reuters
París Mannfjöldi á jólamarkaði við Champs Elysees, upplýst eftirlíking af Eiffelturninum sést til hliðar.
Þá er aðfangadagur runninn upp og
víða um heim er fæðingu frelsarans
fagnað á ólíkan hátt með ýmsum
venjum og siðum. Eitt ætti þó mann-
fólkið að eiga sameiginlegt yfir þessa
hátíð en það er að sýna hvað öðru
kærleik og hlýhug.
Hér má sjá jólalegar myndir utan
úr heimi þar sem vel sést hversu ólík-
ur undirbúningurinn getur verið. Mis-
jafnt er hvað fólk borðar og hvenær,
hvenær það opnar gjafirnar og svo
framvegis. En jólin miðast þó ætíð að
því sama; að eiga notalegar stundir
með ástvinum sínum.
Jólahald
Kærleikur og hlýhugur bindi
mannfólkið saman á jólum
Japan Nokkuð glæfralegur þvottajólasveinn
með hreindýr sér til aðstoðar í Tókýó.
Obama Forsetar þurfa líka að undirbúa jólin, hér skoðar Bandaríkjaforseti
bein handa hundinum Bo sem virðist hafa mun meiri áhuga á leikföngunum.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þær vilja ekki skyr,“ segirSkyrgámur alveg hissaþar sem hann býður önd-unum niðri við Tjörnina
upp á skyr. Og fuglaskítinn á stétt-
inni telur hann jafnvel vera eftir
Bjúgnakræki bróður sinn. „Hann á
þetta til. Hann er svo mikill jóla-
sveinn.“ Það er mikið að gera hjá
þeim bræðrum í desember, þeir
heimsækja börnin, syngja fyrir þau,
segja þeim sögur og gefa þeim í skó-
inn. Og ekki gleyma þeir bræður
ástinni og kærleikanum. „Börnin
koma alltaf hlaupandi til okkar þeg-
ar þau sjá okkur og þá gefum við
þeim jólaknús. Flestir eru góðir við
okkur, en einstaka sinnum reynir
einhver að toga í skeggið okkar, það
er afskaplega sárt. Sumir eru feimn-
ir og einstaka barn er hrætt við okk-
ur. Ef ég væri ekki ég, þá væri ég
líka hræddur við mig. Ég verð
smeykur af því ég tala svo hátt,“
segir Þvörusleikir. „En ég er mjög
feginn að vera jólasveinn, því ef ég
væri ekki jólasveinn, hvað ætti ég þá
að gera? Ég þarf stundum að spyrja
einhvern annan hver ég er. Ég held
stundum að ég sé Bjúgnakrækir.
Við ruglum okkur stundum saman
bræðurnir. Við erum svo miklir jóla-
sveinar.“
Vettlingarnir eru prjónaðir
úr bakhárum Leppalúða
En hvers vegna eru þeir ekki í
sauðskinnsskóm og gæruskinni?
„Af því að lopapeysan og gamla
dótið eru náttfötin okkar heima í
hellinum. Þetta hefur breyst.
Mamma sendir okkur í þessum
rauðu sparifötum til byggða. En ég
er alltaf með stóru vettlingana mína,
þeir eru prjónaðir úr bakhárunum á
Leppalúða pabba okkar, hann er svo
loðinn,“ segir Skyrgámur. „En hún
móðir okkar hefur áhyggjur af því
að við séum ekki enn gengnir út.
Gætir þú hugsað þér að búa í helli,“
spyrja þeir blaðamann sem fær
kröftugt knús. „Ef ég sé fýsilegan
kvenmann þá stekk ég til með látum.
Ég kann bara ekkert annað, þá flýja
þær,“ segir Þvörusleikir.
Við ruglum
okkur stund-
um saman
Þeir voru á vappinu við Tjörnina, syngjandi og
sprellandi, faðmandi fólk sem varð á vegi þeirra.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
Jæja. Þá er ekki nauðsyn að bíða
lengur. Aðfangadagur er í dag og
klukkan sex munu kirkjuklukkur
hringja jólin inn. Framundan eru þrír
jóladagar með krásum og kertum, en
um fram allt væntumþykju og sam-
veru. Njótum þess að vera saman og
hafa það gott. Borða matinn, opna
pakkana og hafa ánægju af öllu
þessu sem við höfum verið að und-
irbúa síðustu vikur. Nú sem endra-
nær er mikilvægast að lifa í núinu og
njóta líðandi stundar. Eftir umstang
og flandur er komið að því að slappa
af og láta sér líða vel. Í kvöld eiga svo
margir ný jólanáttföt til að smeygja
sér í og allt í lagi að vera í þeim langt
fram eftir jóladegi. Jólaboðin kalla
líka næstu daga og þá er aftur mik-
ilvægt að taka lífinu bara með ró og
njóta samverunnar. Spilum, borðum,
spjöllum og höfum það gott.
Endilega …
Morgunblaðið/Golli
Aðfangadagur Seinasti sveinkinn er
kominn í bæinn og jólin líka.
… njótið
jólanna út í
ystu æsar