Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Kristinn
Gaurar Þeir bræður voru
harla góðir með sig þar
sem þeir fóru um miðbæinn
með þvöru og skyr.
Ég er allur að visna
Skyrgámur er afskaplega hrif-
inn af skyri og skilur ekki við sig
skyrdósina. „Skyrið er svo hollt og
gott, þetta er það eina sem ég borða,
þess vegna er ég líka svona sterkur.“
Þvörusleikir grípur fram í fyrir
bróður sínum og segist aldrei borða
skyr. „Þess vegna er ég allur að
visna upp, ég er svo ræfilslegur og
mjór. Ég fæ lítið að borða af því það
eru engar þvörur til fyrir mig leng-
ur. Ég er alveg í vandræðum. En ég
fann eina áðan og hún var með soja-
sósu, svolítið skrýtin, en ég hef verið
að sleikja hana í nokkurn tíma. End-
urnar fengu líka að smakka hjá
mér.“
Grýlu vantar stóra húfu
Nú gerast sveinarnir harla óró-
legir og vilja æða af stað og þegar
þeir eru beðnir að vera rólegir svara
þeir að bragði: „Það er ekki okkar
fag að vera rólegir, við erum jóla-
sveinar. Við eigum erindi í Ráðhúsið.
Hana Grýlu mömmu okkar vantar
svo húfu af því henni er alltaf svo
kalt á hausnum. Hún sá fallegu lopa-
peysu borgarstjórans, Jóns Gnarrs,
þessa með Reykjavíkurmerkinu, og
hún vill nota hana sem húfu, af því
hún er með svo stóran haus. Erm-
arnar passa fyrir eyrun hennar. Við
ætlum að athuga hvort við getum
ekki nælt í þessa peysu,“ segja þeir
og hlaupa yfir í Ráðhúsið.
Viljið þið smakka? Þvörusleikir bauð öndunum að bragða á sojasósunni.
Fyrir þá sem vilja fá þessa
bræður í heimsókn er hægt er að
hafa samband við umboðsmann
þeirra á netfanginu:
skyr.og.thvara@gmail.com
Eða á facebook: jolasveinarnir
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011
omandi ár
leðileg jól
Við hjá Bílabúð Benna óskum
viðskiptavinum og landsmönnum
öllum gleðilegrar jólahátíðar og
farsældar á nýju ári.
Chevrolet varð 100 ára á þessu ári.
Af því tilefni gerðu Bílabúð Benna
og SOS Barnaþorpin á Íslandi með
sér samstarfssamning sem fól í sér
að með öllum seldum Chevrolet, á
árinu, fylgdi framlag frá Bílabúð
Benna. Það rennur beint til SOS
Barnaþorpa í Afríku, í verkefni sem
veita munaðarlausum og yfirgefnum
börnum heimili, uppeldi og menntun.
Í stað þess að senda jólagjafir til
viðskiptavina lagði fyrirtækið
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur lið
fyrir hátíðarnar með matargjöf.
SAMSTARF TIL GÓÐRA VERKA
WWW.SOS.IS - WWW.BENNI.IS
Eigendur Bílabúðar Benna, hjónin Benedikt Eyjólfsson og
Margrét Beta Gunnarsdóttir, afhentu Mæðrarstyrksnefnd
100 Nóatúns hamborgarhryggi fyrir hátíðarnar.
Margrét Beta Gunnarsdóttir með stúlku sem bræddi hjörtu
viðstaddra. Myndin er tekin fyrir utan SOS heimili í Afríku.
Það eru ekki allir jafn flinkir í að
skreyta borð og brjóta fimlega sam-
an servíettur. Eða móta úr þeim hin
ýmsustu form. Þó ber eigi að ör-
vænta fyrir kvöldið ef þú vilt geta
gert glæsilegt servíettubrot á jóla-
borðið. Farðu einfaldega inn á vefsíð-
una napkinfoldingguide.com og
veldu þar það brot sem þér líst best
á.
Svo er bara að fylgja leiðbeining-
unum eftir skref fyrir skref. En hvert
brot er útskýrt með leiðbeiningum og
myndum. Það er jú alveg nauðsynlegt
að sjá hvernig þetta á allt saman að
líta út að lokum. Svona getur netið
nú oft komið manni til bjargar. Bæði
á jólum jafnt og aðra daga.
Nú er bara að skoða og æfa sig
kannski smá fyrir kvöldið. Fallegt er
að hafa jólaservíetturnar hvítar eða
rauðar. Jafnvel nota báði liti. Þá eiga
margir líka sérstakar tauservíettur
sem þeir nota eingöngu á jólunum.
En hvort tveggja má auðvitað nota í
falleg servíettubrot til að skreyta
veisluborðið.
Vefsíðan www.napkinfoldingguide.com
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaborðið Servíettur og skreytingar setja fallegan svip á borðið.
Fallegar servíettur á jólaborðið
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.