Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 24.12.2011, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Í dag verður mér hugsað til míns kæra vinar Jónasar Jón- assonar sem ávallt hringdi á aðfangadag og tjáði jólakveðju sína og vinarhug. Veit ég að mörgum þótti vænt um hans „talandi jólakort“ og verður hugsað til hans nú með hlýju og söknuði. Jónas Jónasson var maður orðsins, á hann var hlustað og Jónas Jónasson ✝ Jónas Jónassonfæddist í Reykjavík 3. maí 1931. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 22. nóv- ember 2011. Jónas var jarð- sunginn frá Hall- grímskirkju 2. des- ember 2011. hann hlustaði. Fá- ir kunnu þá list betur en Jónas. Hann hlustaði með athygli og af ein- lægum áhuga. Hann var okkar reyndasti útvarps- maður og eftir hann liggur ómet- anlegur menning- ararfur, heimildir og hljóðupptökur liðins tíma. Jónas var sann- arlega vörður íslenskrar þjóð- menningar sem af næmi og at- hygli fangaði samtíma sinn og miðlaði í útvarpi. Með hans langa útvarpsferli varð þannig til einstakur arfur og merkur samtímaspegill hins reynda út- varpsmanns Jónasar Jónasson- ar. Verðugt væri að halda vel utan um þann arf. Jónas kom til liðs við Árbæj- arsafn – Minjasafn Reykjavíkur fyrir tæpum tveimur áratugum og starfaði við safnið. Þá hóf hann störf við safnið sem sá fagmaður sem hann var í við- talstækni og heimildaöflun um liðinn tíma. Um tveggja ára skeið heimsótti hann fólk á veg- um safnsins og skráði ítarleg viðtöl við þá sem mundu tímana tvenna. Þá tókst með okkur vin- átta og áttum við á þeim tíma mörg samtöl um lífið og til- veruna, ekki síður en varðveislu menningararfsins. Við ræddum mikilvægi þess að beina sjónum að daglegu lífi fólks í fortíð og samtíð í tengslum við starf á sviði þjóðminjavörslu og safn- astarfs. Þannig mætti fá innsýn í veruleika fólksins sem minj- arnar vitna um, og um leið sam- búð lands og þjóðar. Á ég hon- um margt að þakka. Jónas hafði einlægan áhuga á samferðafólki sínu. Fjölskyldan var honum afar kær og varð ég oft vitni að því þau ár sem við störfuðum saman. Eftirminni- leg er hamingja hans þegar hann fékk þau gleðitíðindi að dótturdóttir væri fædd og einnig þegar fjölskylda hans var að koma sér fyrir á Kambs- veginum. Og sömuleiðis sam- gladdist hann með okkur sam- tarfsfólkinu á hamingjustundum okkar, og var einnig til staðar þegar á móti blés. Eftirminnilegt er þegar hann heimsótti mig og kæra vinkonu á Fæðingarheim- ilið þar sem við tvær vorum samtímis með börn okkar ný- fædd. Þá var hann kominn til að samgleðjast okkur. Jónas var sannur vinur og tryggur. Ég mun ávallt minnast Jónasar með þökk og virðingu. Með þeim orðum votta ég fjölskyldu hans mína innilegustu samúð. Heiðruð sé minning Jónasar Jónassonar. Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður. Eftirvænting ríkti í fjölskyldu Önnu ömmu og Friðfinns afa í Ólafsfirði í ársbyrjun 1926, þegar systkinin Rósa, Kristín og Gunnlaugur Friðfinnsbörn biðu eftir að þrjú ömmu- og afabörn kæmu í heiminn. Þá var enginn læknir í Ólafsfirði, engin rafveita, sími aðeins til Dalvíkur og símstöðin opin tvær klukkustundir á dag, engar samgöngur mögulegar um hávetur nema á skíðum um brött fjallaskörð til Dalvíkur, engin höfn og allir opnir bátar Anna Gunnlaugsdóttir ✝ Anna Gunn-laugsdóttir fæddist í Ólafsfirði 15. mars 1926. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hornbrekku 29. nóvember 2011. Útför Önnu var gerð frá Ólafsfjarð- arkirkju 10. desem- ber 2011. þorpsbúa fenntir í kaf á fjörukambin- um. Þilfarsbátarn- ir lágu í öruggri höfn á Akureyri. Fyrstur fæddist undirritaður 12. febrúar 1926, son- ur Rósu, Rögn- valdur, sonur Kristínar, fæddist 10. mars og Anna, dóttir Gunnlaugs, 15. mars sama ár. Ekki nutu amma og afi þess- ara þriggja barnabarna sinna lengi, amma lést í október 1926 og afi ári síðar. Rögnvaldur Gíslason, faðir Rögnvaldar, fórst í sjóslysi utarlega í Ólafs- firði tæpum sex mánuðum fyrir fæðingu sonar síns. Þar á ofan andaðist Gunnlaugur, faðir Önnu, í febrúar 1927 aðeins 33 ára. Ingibjörg, alsystir hennar, var þá á fjórða ári og ólust þær systur fyrst upp með elskulegri móður sinni, sem síðar giftist Sigursveini Árnasyni, bátafor- manni, sem reyndist systrun- um umhyggjusamur og góður stjúpfaðir. Þessi ár heimsótti dauðinn fjölskylduna sorglega oft. Við Anna áttum heimili í Ólafsfirði öll bernsku- og ung- lingsárin, en Rögnvaldur flutt- ist með móður sinni til ýmissa staða þar sem hún vann við hjúkrunarstörf, en oft var Rögnvaldur í Ólafsfirði hjá frændfólki sínu og við öll þrjú saman og bundumst nánum böndum sem héldust til hinstu stundar. Rögnvaldur bjó alla starfsævi sína á Akureyri og andaðist þar 14. nóvember 2007. Nú er Anna einnig fallin frá. Hún lést í Hornbrekku í Ólafs- firði 29. nóvember sl. Ég man hana unga sem afar fallega og skemmtilega telpu. Við vorum samstiga í bekk í barnaskólanum. Hún var snöggtum fljótari en ég að læra að skrifa og skrift hennar betri en hjá mér. Bæði vorum við vel læs en mér gekk betur að reikna. Hún skaraði fram úr í söng enda bráðmúsíkölsk og í skólakórnum öll skólaárin og æ síðan í ýmsum kórum og liðtæk var hún í leiklistinni heima. Sönn vinátta tengdi okkur systkinabörnin órofaböndum. Anna eignaðist sitt heimili og auðvitað í Ólafsfirði. Hún giftist draumaprinsinum sín- um, sjóhetjunni og öðlingnum Þorsteini M. Einarssyni, í júní 1946. Heimili þeirra var at- hvarf og skjól samhentrar fjöl- skyldu. Þau hjónin eignuðust sex börn, hvert öðru myndar- legra, og eru niðjar Önnu og Dodda nú um 50 talsins. Þegar ég heimsótti Ólafs- fjörð var bankað upp á hjá þeim hjónum og ætíð var mér og fjölskyldu minni tekið opn- um örmum og áður en varði sat maður við hlaðið borð af hvers- kyns góðgæti. En efst í minn- ingunni varir ávallt einlæga og hjartanlega heimilishlýjan sem umvafði mann þegar á dyra- hellunni. Við vottum aðstandendum öllum dýpstu samúð. Baldvin Tryggvason, Halldóra J. Rafnar, Dýrleif Tryggvadóttir, Gunn- laugur Friðfinnur Jóhanns- son. Menning, mannvit og hlýja. Það var sá andi sem mætti gestkomendum á heimili Soffíu og Jóns Hafsteins. Glaðværð og glettni hús- freyju var skemmtun og skap- bætir þeim sem meta kunnu. Alvara lífsins var þó aldrei langt undan. Einlæg ósk um betra samfélag og varðstaða um mannlega reisn knúði Soffíu til Soffía Guðmundsdóttir ✝ Soffía Guð-mundsdóttir tónlistarkennari fæddist í Reykjavík 25. janúar 1927. Hún lést 8. desem- ber 2011. Útför Soffíu fór fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík mánudaginn 19. desember 2011. óþreytandi þátt- töku í þjóðmálum. Sú barátta var ekki létt og ekki alltaf þakklát. En framgöngu Soffíu mun minnst með virðingu af öll- um sem hafa fé- lagslega skynsemi og samkennd til að bera. Að Soffíu geng- inni er eftirsjáin mikil, en minningin um hana er mikils virði. Helgi Haraldsson, Ósló. Soffíu Guðmundsdóttur kynntist ég fyrst sem nemandi við Tónlistarskólann á Akur- eyri. Heldur þótti henni dreng- urinn ungur til að nema flókna tónfræði, en ég sat í tímum hennar í tónfræði og síðar tón- listarsögu, sumt af því fór fyrir ofan garð og neðan! En ávallt fylgdist hún af áhuga með framgangi píanónámsins allt þar til ég yfirgaf skólann. Eftir framhaldsnám hóf ég kennslu við gamla skólann minn á Ak- ureyri, þá var Soffía þar enn, nú deildarstjóri píanódeildar. Soffía var mikil heimsdama, ávallt glæsileg og fín í tauinu, með óbilandi áhuga á tónlist og menningu, íslenskri tungu og þýskum ljóðum. Ég man eftir henni á námskeiði í ljóðasöng þar sem hún fékk það hlutverk að snara speki erlends kennara á íslenska tungu, þar var hún í essinu sínu! Tónlistarorð vildi hún hafa á íslensku, og liggur eftir hana merkilegt efni á því sviði. Ekkert var henni óvið- komandi, enda lét hún líka til sín taka í stjórnmálum og kvennabaráttu. Gamli Bach var í uppáhaldi, æfður og kenndur af kappi, vafalaust innblásinn af námi hennar í Leipzig. Síðar lá leið okkar hjóna suð- ur um heiðar, og aftur skör- uðust leiðir okkar Soffíu, nú á skólabekk í námi Suz- ukipíanókennara. Enn vildi hún bæta við sig færni og þekkingu, sem var lýsandi fyrir lifandi áhuga hennar á faginu. Síðar urðum við aftur vinnufélagar og sífellt kunni ég betur að meta persónuleika Soffíu og viðhorf eftir því sem ég kynntist henni betur. Fersk og sköruleg var hún í allri orðræðu, ávallt hress í anda og mikil selskapsdama. Síðar varð tengslanetið við fjöl- skylduna enn þéttar ofið er barnabörn Soffíu fóru að feta tónlistarbrautina, einkum dótt- ursonur hennar Kjartan Orri sem var í hópi „dáðadrengja“ er tömdu hug og hönd í fiðlunámi hjá Lilju konu minni. Mikil sómakona er kvödd með trega, aðstandendum sendi ég innilegustu samúðarkveðjur. Kristinn Örn Kristinsson. „Gætirðu hugsað þér að kíkja með mér á An die ferne Ge- liebte?“ Ekki þurfti að bíða eft- ir svari, það var sjaldan hik á henni Soffíu, allra síst þegar Beethoven átti í hlut. Hún kunni þetta allt, leiðrétti fram- burð og sagði til. Svo var blaðað fram og aftur, Adelaïde og fleiri gullkorn og aldrei látið í annað skína en að við stæðum jafnfætis. Svona voru samskipt- in við þessa glæsilegu og gáf- uðu konu. Við munum vel eftir því er Soffía hóf störf við Tónskólann, sem þá var til húsa í Hellusundi 7. Hún bar með sér nýjan og ferskan anda. Á kaffistofunni fóru umræðuefni að snúast um aðra hluti, íslenskt mál, heim- speki, bókmenntir, stjórnmál auk tónlistarinnar. Sýn Soffiu á mannlíf og samfélag og fjöl- breytt áhugamál hennar voru hressandi fyrir okkur öll. Hún var ekki bara vel að sér og fal- lega klædd, hún var einnig vel lesin. Eftir að hafa staðið fram- arlega í sókn kynsystra sinna fyrir jafnrétti og betra lífi og verið kjörin til ábyrgðarstarfa á sviði félags- og stjórnmála bjó hún yfir dýrmætri reynslu. Um þetta talaði hún reyndar sjald- an, en framkoma hennar og samskipti báru þessu vott. Hinn lifandi áhugi, hin sívökula já- kvæðni, starfsgleði og hlýja var smitandi og við, nemendur hennar og samkennarar, feng- um að njóta þessara eðliskosta hennar. Að leiðarlokum þökk- um við farsæla samfylgd og vottum fjölskyldu Soffíu Guð- mundsdóttur innilega samúð. Sigursveinn Magnússon. ✝ Elskuleg systir mín, mágkona og frænka okkar, ANNA STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, Drápuhlíð 39, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 22. desember. Flosi Hrafn Sigurðsson, Hulda Sigfúsdóttir, Ágústa Lyons Flosadóttir, John Lyons, Sigurður Flosason, Vilborg Anna Björnsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður, KRISTJÁN SIGFÚSSON, Hálsvegi 5, Þórshöfn, sem lést á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn miðvikudaginn 21. desember, verður jarð- sunginn frá Þórshafnarkirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Helena Kristjánsdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigfús Kristjánsson, Lilja Ólafsdóttir, Natalia Kravtchouk og barnabörn. ✝ BERGÞÓRA SIGFÚSDÓTTIR er látin. Útför verður auglýst síðar. Sigfús Grétarsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR, Kambsvegi 16, Reykjavík, andaðist á taugalækningadeild Landspítalans Fossvogi miðvikudaginn 21. desember. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 30. desember kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Anna Ingólfsdóttir, Jörgen Sigurjónsson, Þorbjörg Ingólfsdóttir, Hilmar Bergsteinsson, Guðbjörg Ingólfsdóttir, Bragi Finnbogason, Rögnvaldur Ingólfsson, Gísli Jónas Ingólfsson, Lucrecia Dugay Ingólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR JÓHANNSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 14. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þuríður Steinþórsdóttir, Jóel Fr. Jónsson, Einar Steinþórsson, Helga Steindórsdóttir, Trausti Steinþórsson, Rannveig Hafberg, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, ömmu og systur, VALGERÐAR JÓNSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A4, Hrafnistu Reykjavík fyrir góða umönnun. Kristrún Harpa Kjartansdóttir, Ingvar Pétursson, Þorbjörg Jónsdóttir, Sigfríður Jónsdóttir, Hildur Jónsdóttir, Magnea Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.