Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 44

Morgunblaðið - 24.12.2011, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Heimsljós eftir Halldór Laxness í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar er jólafrumsýning Þjóðleikhússins, en frumsýnt verður mánudaginn 26. desember kl. 19.30. Kjartan er jafn- framt höfundur leikgerðarinnar, en hann hefur á löngum ferli leikstýrt á annan tug eigin leikgerða, þeirra á meðal eru sýningarnar Bjartur og Ásta Sóllilja sem hann vann leikgerð að ásamt Sigríði Margréti Guð- mundsdóttur upp úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness og Þjóðleik- húsið frumsýndi árið 1999. Að sögn Kjartans er sýningin nú þannig tilkomin að Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleikhússtjóri leitaði til hans fyrir um ári með þá spurningu hvort það væri eitthvert efni eða bók sem hann hefði lengi langað til að svið- setja. „Ég svaraði því játandi því mig hafði alltaf langað til að gera Ólaf Kárason allan,“ segir Kjartan og vís- ar þar til þess að fyrir rúmum tveim- ur áratugum vann hann tvær leik- gerðir upp úr fyrstu tveimur bókum Heimsljóss en skáldsagan kom út í fjórum hlutum á árunum 1937-1940. „Við opnun Borgarleikhússins leik- gerði ég fyrstu tvær bækurnar og leikstýrði sjálfur fyrstu bókinni. Mér fannst ég því alltaf hafa skilið við Ólaf Kárason á miðri leið. Núna geri ég leikgerð sem byggist á Ólafi Kárasyni sem persónu, lífi hans og dauða.“ Spurður hvernig hann nálgist vinnu sína við leikgerðir segist Kjart- an alltaf leggja sig fram um að fanga kjarna bókanna. „Ég reyni að yf- irfæra það sem höfundurinn er að segja yfir í annað form og leysa það í formi leikhússins, þannig að neisti listarinnar sem birtist í bókinni kvikni í nýju formi á leiksviðinu. Kjarninn í Heimsljósi er að segja fólki frá tilgangi listarinnar og hver sé grundvöllurinn í því sem listamað- urinn og skáldið geri,“ segir Kjartan og tekur fram að sér finnist Heims- ljós vera sú bók sem standi tilfinn- ingalega næst Halldóri Laxness af öllu því sem hann hafi skrifað. Allt það fegursta gerist í innri manni Ólafs Kárasonar „Í Heimsljósi er Halldór að takast á um tvær meginskyldur skáldsins í tveimur aðalpersónum, þ.e. í Ólafi Kárasyni og Erni Úlfari, þar sem sá fyrrnefndi er leiddur af fegurð- arþránni og meðaumkun með mann- eskjunni en sá síðarnefndi er leiddur af réttlætiskenndinni. Þetta eru þau tvö öfl sem togast á í Halldóri þegar hann skrifar verkið,“ segir Kjartan og bendir á að fegurðarþráin sé það sem að lokum sigri. Kjartan velur að láta tvo leikara, þá Björn Thors og Hilmi Snæ Guðna- son, leika Ólaf Kárason samtímis á sviðinu þótt þeir leiki hann á tveimur mismunandi tímaskeiðum. Spurður af hverju sú leið hafi verið farin segir Kjartan það leikhúsaðferð sem hann noti og helgist af því að Heimsljós sé að stórum hluta huglægur texti sem gerist í innri manni Ólafs Kárasonar. „Allt það fallegasta og göfugasta í text- anum, þar á meðal ljóðin, gerist í hans innri manni, þ.e. í samtali Ólafs Kárasonar við sjálfan sig. Hann verður því að hafa sjálfan sig til að tala við á leiksvið- inu.“ Fegurðarþráin leiðir skáldið  Kjartan Ragnarsson leikstýrir eigin leikgerð á Heimsljósi Halldórs Laxness í Þjóðleikhúsinu  Leikstjórinn velur að láta tvo leikara túlka Ólaf Kárason Ljósvíking á sviðinu samtímis Ljósmynd/Eddi Falleg „Mér finnst Heimsljós vera fallegasta bók Halldórs. Hún er ekki um fegurðina heldur fegurðarþrána, þ.e. um fegurðina sem við náum aldrei að fanga, hvort sem það birtist í landslagi eða ástinni,“ segir Kjartan Ragnarsson. „Ólafur Kárason er skáld sem þrífst á fegurðinni og lifir fyrir hana. Hann berst við hrikalegar aðstæður, er rúmfastur framan af ævi sinni, tekst á við mikla fá- tækt, barnsmissi, kulda og vosbúð. Í raun má segja að skáldskapurinn haldi í honum lífi,“ segir Björn Thors, annar tveggja leikara sem fara með hlutverk Ólafs Kárasonar Ljósvíkings í jólasýningu Þjóðleikhússins. Heimsljós er þriðja Laxness-sýningin sem Björn leikur í á jafnmörgum leikárum, en hinar tvær voru Gerpla og Íslandsklukkan. Segir hann spennandi að takast á við texta Halldórs í jafnmiklum mæli á svo stuttum tíma og bendir á að gaman sé að skoða hvernig verkin talast öll við að einhverju marki. „Skáldskapurinn er t.a.m. grunnstef í mörgum verka Halldórs. Þannig fjallar hann um listirnar sem ein- hvers konar kjarna í manneskjunni. Fegurðarþrá Ólafs Kárasonar er í raun leit að einhverri mennsku og leit að skáldskap í lífinu. Það kallast aftur á við starf allra listamanna, þ.e. að sjá fegurðina í hversdagsleikanum og framkalla hana.“ Spurður hvaða erindi Heimsljós eigi við nútíma- áhorfendur svarar Björn: „Fegurðarþrá Hall- dórs og greining hans á Íslendingum og mennskunni er nokkuð sem við þurfum mjög sterklega á að halda núna í ljósi nýlið- inna atburða. Við þurfum að horfast í augu við okkur sjálf og skoða hvaðan við komum til þess að átta okkur á því hvert við erum að fara. Halldór er sterkasta rödd Íslendinga á bókmenntasvið- inu hvað þetta varðar. Hann er eins og sálfræðingur heillar þjóð- ar. Hann greinir okkur og skil- greinir Íslendinga í aldaraðir, jafnt á ritunartíma bókanna sem á sögusviði þeirra. Hann er stöðugt að greina nýlendu- þjóðina sem glímir við minni- máttarkennd sína, þröngsýni, dramb og hroka, en kjarninn í t.d. allri útrásinni liggur í þessari greiningu,“ segir Björn. Hilmir Snær Guðnason og Björn Thors Leikstjóri og höfundur leik- gerðar er Kjartan Ragnarsson. Gretar Reynisson hannar leik- mynd, Helga I. Stefánsdóttir búninga og Halldór Örn Ósk- arsson lýsingu. Tónlist er í höndum Kjartans Sveinssonar. Leikarar eru: Arnar Jónsson, Björn Thors, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Hilmir Snær Guðna- son, Jóhannes Haukur Jóhann- esson, Lára Sveinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Pálmi Gestsson, Stef- án Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þorsteinn Bach- mann, Þórunn Arna Kristjáns- dóttir og Ævar Þór Benedikts- son. Listrænir stjórnendur HEIMSLJÓS EFTIR LAXNESS BJÖRN THORS LEIKUR Í ÞRIÐJU LAXNESS-SÝNINGUNNI Á JAFNMÖRGUM LEIKÁRUM Halldór Laxness er sálfræðingur heillar þjóðar Kristján Jónsson kris@mbl.is Fyrir stuttu kom út bók eftir Frosta Eiðsson um golfvelli á Íslandi sem heitir einfaldlega Íslenska golfbókin. Frosti segir að hugmyndin hafi kviknað hjá útgefandanum Senu sem vildi gera bók um íslenska golf- velli með skemmtilegum sögum úr golfinu, en Frosti segir að bókin hafi verið í mótun í nokkra mánuði og tekið talsverðum breytingum í vinnsluferlinu. Allir golfvellir á Íslandi fá umfjöll- un í bókinni í máli og myndum. Einn álitsgjafi tjáir sig um hvern völl og Frosti segir það hafa komið sér á óvart hversu vel kylfingar tóku þeirri bón. „Ég ákvað að fara þá leið að tala við kylfinga og biðja þá að tjá sig um golfvelli sem þeir hafa spilað. Ég ræddi ekki við þá um heimavelli þeirra heldur aðra velli. Glöggt er gests augað stendur einhvers staðar og því er kannski tekið meira mark á því þegar kylfingar tjá sig um aðra velli en þá sem tilheyra þeirra klúbbi. Mér fannst það koma vel út og í leiðinni reyndi ég að fiska eftir skemmtilegum golfsögum og vera með myndrænar frásagnir frá ís- lenskum völlum,“ sagði Frosti en hann hefur víðtæka reynslu af fjöl- miðlum og byrjaði að leika golf fyrir um tuttugu árum. Gerir sagnfræðinni skil Frosti segist hafa lagt talsvert upp úr því að finna gamlar sögur frá þeim tíma þegar íþróttin sleit barns- skónum hérlendis. „Ég fjallaði um gamla horfna golfvelli og sögur af þeim. Golfsagnfræðinni hefur ekki verið sinnt mikið að mínu mati en ég hef áhuga á slíku, gömlum sögum og minningum. Nokkrir viðmælendur voru svo góðir að segja mér gamlar sögur og hvernig golfið var hér- lendis í gamla daga. Það hefur gríð- arlega margt breyst síðan ég kynnt- ist golfi fyrir tuttugu árum. Í fyrsta lagi hefur fjöldinn aukist til muna og íþróttin er orðin mun meiri fjöl- skylduíþrótt en áður. Í grunninn er fólk í dag að berjast við það sama og þeir sem stunduðu golf í Laug- ardalnum fyrir 76 árum, það er að segja að koma kúlunni í holuna,“ sagði Frosti sem segir erfitt að setja bókina í einhvern einn flokk. „Upp að vissu marki er um handbók að ræða, en hún er einnig sögubók með mörgum ljósmyndum.“ Þegar bókin er skoðuð kemur í ljós að víða um landið er að finna af- ar góða golfvelli og hæglega má draga þá ályktun að á meðal bestu valla á Íslandi séu margir níu holu vellir. „Mér finnst það tvímælalaust en það er alltaf spurning um upp- lifun hvers og eins. Fjöldi golfvalla á Íslandi býður upp á misjafnar áskor- anir fyrir kylfinga sem gaman er að takast á við. Sumir vilja spila sama völlinn og reyna að bæta árangur sinn en ég tel að menn geti bætt sig með því að reyna sig við mismunandi aðstæður,“ sagði Frosti Eiðsson að lokum. Golfsagnfræðinni hefur lítið verið sinnt Morgunblaðið/Sigurgeir S. Golf Frosti Eiðsson skrifaði bók um íslenska golfvelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.