Morgunblaðið - 28.12.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011
Munið að slökkva
á kertunum
Athugið hversu langur
brennslutími er gefinn upp
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Morgunblaðið/Kristinn
Í spilaboðum og jafnvel í áramóta-
boðinu er sniðugt að bera fram
litla smárétti eða snarl. Í þá getur
verið alveg tilvalið að nota ýmiss
konar afganga sem annars daga
uppi í ísskápnum. Kalt kjöt reynist
vel í slíkt og svo eiga margir smá-
ananas eða kannski ferskt salat
sem eitthvað þarf að gera við. Á
vefsíðu breska tímaritsins BBC Go-
od Food má finna ótal hugmyndir
að girnilegum smáréttum. Til að
finna uppskriftirnir skal slegin inn
slóðin hér að ofan og síðan skrifað
„finger food“ í leitarvél síðunnar.
Þá opnast manni heilll heimur af
sniðugum og einföldum hug-
myndum. Sama hvort þú vilt galdra
slíkt fram með skemmtilegu spili
eða sem forrétt um áramótin. Í
safninu má meðal annars finna
uppskrift að einföldum litlum hvít-
laukspitsum, fíkjum með pros-
ciutto-skinku og ýmiss konar út-
færslur af kokkteilpylsum. Þær eru
ódýrt hráefni og tilvaldar til að búa
til litla snarlrétti. Afgang af góðum
osti má líka vefja inn í beikon og
stinga í ofninn. Svo er bara að
leyfa hugmyndafluginu að ráða
sem mest.
Vefsíðan www.bbcgoodfood.com
Morgunblaðið/Golli
Smáréttir Skemmtilegt er að nostra við útfærsluna á réttunum.
Ljúffengur fingramatur
Á milli jóla og nýárs færist nokkur
ró yfir lífið eftir hamagang jólahátíð-
arinnar. Margir hafa verið á hlaupum
síðustu daga og ekki hefur endilega
gefist tími til að hitta alla vini og
ættingja. Nú næstu daga gefst ein-
mitt góður tími til þess að hitta vini
og halda skemmtilegt spilakvöld.
Margir fá skemmtileg spil í jóla-
gjöf og er fjölbreytnin orðin það
mikil að auðvelt ætti að vera að
finna spil við allra hæfi. Sama hvort
fólki finnst fjörug spurningaspil eða
heilabrotsæfingar skemmtilegastar.
Ef margir eru samankomnir er líka
hægt að koma upp tveimur spila-
borðum. Þannig er hægt að spila
kannski tvo klukkutíma á hverju
borði og eftir þann tíma er skipst á.
Spilaboð eru líka tilvalin til að klára
afganga af mat, sælgæti og ýmiss
konar nasli sem fyrirfinnst á heim-
ilinu. Kannski borðar einhver vinur
þinn molann sem þér finnst verstur í
konfektdósinni og þá er ekki ama-
legt að losna við þá alla á einu
bretti. Jólin líða alltaf svo hratt og
það þýðir víst ekkert að fást um
það. Frekar að njóta nú daganna
fram að áramótum til að hafa það
kósí með góðum vinum og fjöl-
skyldu. Svo er líka langt í þrett-
ándann og alveg hægt að halda í
spilakvöld með jólastemningu dálítið
inn í nýja árið. Sumir fara líka í bú-
stað á þessum tíma og þá er auðvit-
að tilvalið að taka með sér skemmti-
legt spil.
Endilega …
… haldið skemmtilegt spila-
kvöld og prófið nýju jólaspilin
Morgunblaðið/Ernir
Spilað Það getur fokið dálítið í fólk í spilum, en oftast er það ekkert alvarlegt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.