Morgunblaðið - 28.12.2011, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011
Ný viðhorfskönnun bendir til þess að þeir sem
hafa tekið þátt í mótmælunum gegn Vladímír
Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hafi mjög
ólíkar skoðanir á því hver eigi að verða næsti for-
seti landsins.
Tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælum
á laugardag gegn Pútín og meintum kosn-
ingasvikum flokks hans í þingkosningum sem
fram fóru 4. desember. Viðhorfskönnun óháðrar
stofnunar, Levada-miðstöðvarinnar, bendir til
þess að þátttakendurnir í mótmælunum séu vel
menntaður en sundurleitur hópur.
Um 62% þeirra sem tóku þátt í könnuninni
sögðust vera með háskólapróf og um tveir þriðju
þeirra sögðust nota netið reglulega eða annað
veifið. Um 69% sögðust styðja frjálslynda eða
„lýðræðislega“ flokka en tölurnar voru lægri
þegar þeir voru spurðir hvaða leiðtoga þeir
styddu. Flestir nefndu sjónvarpsmanninn og
fréttamanninn Leoníd Parfjonov, eða 41%.
Næstir komu rithöfundurinn Boris Akunin og
bloggarinn Alexej Navalní, um 35% og 36% þátt-
takendanna nefndu þá.
Þegar spurt var hvern þeir myndu kjósa í for-
setakosningum nefndu aðeins 22% Navalní og
21% sögðust ætla að kjósa Grígorí Javlínskí,
leiðtoga flokksins Jabloko. Um 13% sögðust
myndu kjósa Alexej Kúdrín, fyrrverandi fjár-
málaráðherra. Navalní getur ekki boðið sig fram
í kosningunum 4. mars þar sem fresturinn til að
skrá framboð er runninn út. bogi@mbl.is
Sundurleitur hópur gegn Pútín
Ný skoðanakönnun bendir til þess að enginn stjórnarandstöðuleiðtogi njóti mikils
stuðnings meðal mótmælendanna í Rússlandi Þorri mótmælendanna með háskólapróf
Reuters
Kosningasvikum mótmælt Einn þátttakenda í fjölmennum mótmælum í Moskvu um helgina.
Hafnar rannsókn
» Vladímír Pútín gerði í gær
lítið úr mótmælunum, sagði að
þátttendurnir hefðu engin skýr
markmið og engan leiðtoga
sem þeir gætu fylkt sér um.
» „Þeir hafa enga sameigin-
lega áætlun, benda ekki á nein-
ar skýrar leiðir til að ná fram
markmiðunum – sem eru líka
óljós – og enga menn sem
gætu fengið einhverju áorkað,“
sagði Pútín.
» Forsætisráðherrann hafnaði
kröfu mótmælandanna um
rannsókn á meintum svikum í
þingkosningunum 4. desem-
ber.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Tugir þúsunda manna söfnuðust
saman á götum borgarinnar Homs í
Sýrlandi í gær til að mótmæla blóð-
ugum árásum öryggissveita.
Andstæðingar einræðisstjórnar-
innar í Sýrlandi sögðu að skriðdrek-
ar hefðu farið frá einu hverfa Homs
áður en eftirlitsmenn Arababanda-
lagsins komu þangað í gær. Eftirlits-
mennirnir eiga að framfylgja friðar-
áætlun sem stjórn Sýrlands
samþykkti 2. nóvember og kveður
m.a. á um að hersveitir verði fluttar
frá bæjum og íbúðarhverfum borga,
árásum á óbreytta borgara verði
hætt og pólitískir fangar verði látnir
lausir. Ráðamennirnir í Sýrlandi eru
sakaðir um að hafa þvert á móti hert
árásirnar á óbreytta borgara og ekk-
ert lát er því á blóðsúthellingunum.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna segja að yfir 5.000 manns hafi
beðið bana í árásum öryggissveit-
anna frá því í mars, þeirra á meðal
um 300 börn.
Fregnir hermdu í gær að minnst
34 manns hefðu beðið bana í árásum
sem öryggissveitir hófu í Homs í
fyrradag. Sýrlensk mannréttinda-
samtök sögðu að skriðdrekar hefðu
verið fluttir frá einu hverfa borgar-
innar áður en eftirlitsmenn Araba-
bandalagsins komu þangað. Mark-
miðið væri að blekkja
eftirlitsmennina.
Um 70.000 mótmæltu
Svo virðist sem koma eftirlits-
mannanna hafi orðið til þess að mót-
mælendurnir sóttu í sig veðrið.
Stjórnarandstæðingar í Homs sögðu
að um 70.000 manns hefðu safnast
saman á götunum og öryggissveitir
hefðu beitt táragasi til að dreifa
þeim.
Einræðisstjórnin segir hernaðinn
nauðsynlegan vegna árása „hryðju-
verkamanna“ sem hafi orðið fjölda
her- og lögreglumanna að bana.
Sakaðir um að blekkja eftirlitsmenn
Reuters
Ólga Sýrlenskir mótmælendur með teikningu af Bashar al-Assad forseta.
Skriðdrekar fluttir frá íbúðarhverfi í Homs áður en eftirlitsmenn Arababandalagsins komu þangað
Tugir manna biðu bana í árásum öryggissveita þótt einræðisstjórnin hafi lofað að stöðva hernaðinn
Ferðamenn á hundasleða við stórt snjólistaverk
sem sýnt verður á Snjó- og íshátíðinni sem haldin
er árlega í kínversku borginni Harbin. Hátíðin
hefst 5. janúar og verður það í 28. skipti sem hún
er haldin. Fjölmargir ferðamenn sækja hátíðina
til að skoða snjólistaverk og íshallir sem eru eins
og klipptar út úr ævintýrabókum. Harbin er
höfuðstaður Heilongjiang, nyrsta héraðs í Kína,
og hefur verið nefnd „ísborgin“.
Reuters
Ævintýraheimur í ísborginni
Mikill læknaskortur er í Bretlandi
samkvæmt nýjum opinberum tölum
sem benda til þess að sumir heim-
ilislæknar þar í landi hafi allt að
9.000 sjúklinga á sinni könnu. Sett í
íslenskt samhengi jafnast þetta
næstum því á við að fyrir alla íbúa
Garðabæjar væri aðeins einn heim-
ilislæknir.
Tölurnar sýna að þær heilsu-
gæslustöðvar þar sem erfiðast er að
fá tíma hjá lækni innan tveggja
sólarhringa hafa að meðaltali um
3.000 sjúklinga á hvern lækni, en
meðaltalið er um 1.600 sjúklingar.
Læknar hafa varað við því
undanfarið að þeir læknar, sem
flesta sjúklinga hafa, geti ekki veitt
góða þjónustu og að lengi þurfi að
bíða eftir að fá tíma hjá þeim. Þeir
hafa líka varað við því að vanda-
málið versni líklega með þeim
breytingum sem heilbrigðis-
ráðherrann, Andrew Lansley, hef-
ur boðað.
Um 25.000 heimilislæknar eru í
Bretlandi, en margir þeirra láta af
störfum vegna aldurs á næstunni.
Fréttavefur The Telegraph skýrði
frá þessu.
Mikill skort-
ur á læknum
í Bretlandi
Með allt að 9.000
sjúklinga hver
Um ein og hálf milljón manna
býr í Homs sem margir líta á
sem höfuðborg uppreisnarinnar
í Sýrlandi. Homs var á meðal
fyrstu borganna sem risu upp
gegn einræðisstjórninni og
hermt er að minnst 50 manns
hafi beðið bana í einni árásanna
í apríl þegar öryggissveitir réð-
ust á mótmælendur á torgi í
borginni. Íbúarnir hafa sýnt
mikla þrautseigju og láta engan
bilbug á sér finna þrátt fyrir
blóðsúthellingarnar.
Þrautseigja
BJÓÐA HERNUM BIRGINN