Morgunblaðið - 28.12.2011, Síða 29
Gengið á hinum alþjóðlega myndlist-
armarkaði hefur verið rysjótt á
árinu og þrátt fyrir að gott verð hafi
fengist hjá alþjóðlegu uppboðshús-
unum á fyrri hluta ársins hefur evr-
ukrísan tekið sinn toll á seinni hluta
ársins, samkvæmt frétt The Tele-
graph. Tölur á heimasíðu Sotheby’s
sýna engu að síður fram á að lista-
verk og listmunir hafi verið seldir á
uppboðum um allan heim fyrir tæp-
lega fimm milljarða dala, sem er
rúmlega tólf prósenta hækkun frá
árinu 2010.
Hæsta verðið á uppboðum hefur
fengist fyrir verk módernista og
samtímalistamanna. Mikil hækkun
hefur verið á verði verka súrrealista.
Metverð var greitt fyrir verk eftir
Salvador Dali, 13,5 milljónir punda,
fyrir verk eftir Belgann Delvaux, níu
milljónir dala, og í nóvember var
málverk eftir Max Ernst slegið
kaupanda fyrir 16,3 milljónir dala.
Í ár voru það kaupendur frá Asíu,
Rússlandi og Mið-Austurlöndum
sem keyptu dýrustu verkin. Kaup-
andi frá Asíu tryggði sér dýrasta Pi-
casso-verkið, á 21,4 milljónir dala,
Rússar greiddu mest fyrir verk eftir
Francis Bacon, 23 milljónir punda,
og Rússar og Asíubúar tókust á um
abstraktverk eftir Gerhard Richter
sem fóru á allt að að 21 milljón dala.
Dýrasta listaverk ársins var þó
ekki selt í New York eða London,
heldur í Peking. Þar var hefðbundin
blekteikning eftir vinsælasta kín-
verska myndlistarmanninn, Qi Ba-
ishi (1864-1957), af erni í furutré,
slegið hæstbjóðanda á um sjö og
hálfan milljarð króna.
Dýrasta verk
ársins selt í Kína
Dýrasta myndverkið Þetta málverk Qi Baishis seldist á uppboði í Peking á
árinu fyrir 65 milljónir dala, um sjö og hálfan milljarð króna.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2011
Allir eiga minningar og allirhafa sögu að segja enekki er öllum gefið aðkoma efninu til skila.
Gaute Heivoll lýsir ritstíflu sinni við
gerð sögunnar Meðan enn er glóð
um leið og hann rifjar upp örlaga-
söguna um brennuvarginn í norsku
sveitinni þar sem hann ólst upp.
Frábær saga sem getur í raun gerst
hvar sem er og hvenær sem er.
Á yfirborðinu virðist allt vera svo
kyrrlátt í sveitinni, þar sem hver
unir glaður við sitt og með sitt. Þeir
sem eiga minningar fjarri skarkala
borganna kannast við þessa róm-
antík en þekkja líka áföllin. Tala
bara minna um þau. Rétt eins og
fólkið í Finnslandi í Suður-Noregi,
sem haldið var í klóm brennuvargs í
um fjórar vikur vorið 1978. Mar-
tröðinni lauk um það leyti sem
Gaute Heivoll var skírður tæplega
þriggja mánaða gamall, en þegar
hann er orðinn eldri og reyndari
rifjar hann upp atburðina um leið
og hann segir frá líðandi stundu í
lífi sínu.
Þetta er ekki aðeins saga um lífið
í sveitinni á afmörkuðum tíma held-
ur saga um vonir og þrár, fjöl-
skyldutengsl, einkum foreldraást-
ina. Umhyggjuna. Brjálæðið.
Yfirhylminguna. Synirnir eru um-
vafðir ást og þegar grannt er skoð-
að er saga eins ótrúlega lík sögu
annars. Það hefur ekkert orðið úr
mér, segir Dagur. Þú mátt ekki
eyðileggja líf þitt þó pabbi þinn sé
dáinn, segir amma sögumanns við
hann. Og Kári veslast upp.
En fólkið á sína drauma, þar sem
hæst ber keppni í skíðastökki á Ól-
ympíuleikum, og í sjónvarpinu er
reglulega sýnt frá heimsmeist-
arakeppninni í fótbolta. Samt fer
enginn á Ólympíuleika og enginn
virðist hafa áhuga á fótboltanum. Í
sveitinni er allt í föstum skorðum,
nema þegar brennuvargurinn geng-
ur laus. Þá vígbúast hinir rólegustu
menn og í ljós kemur að sumir
kunna að fara með vopn, þó sú
kunnátta hafi verið dulin jafnvel
þeim nánustu.
Maður finnur fyrir svolítið ein-
kennilegri tilfinningu við að lesa
þessa sögu eftir ódæðið í Útey og
Osló í sumar sem leið vegna þess að
það er svo margt líkt með vitfirr-
ingunum. Annars vegar í skáldsög-
unni og hins vegar í veruleikanum.
Meðan enn er glóð vekur líka upp
ýmsar spurningar um mannlegt
eðli, refsingar og umgengni við
sakamenn.
Sagan er vel skrifuð og vel þýdd.
Hún greinir frá að því er virðist
venjulegu lífi en segir svo margt og
skilur mikið eftir sig. Hver hefur
sinn djöful að draga. Endurtekn-
ingar eru ívið miklar en engu að
síður er þetta holl og góð lesning.
Meðan enn er glóð
bbbbn
Skáldsaga eftir Gaute Heivoll. Þýðandi
Sigrún Árnadóttir. Mál og menning
2011. Kilja. 298 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Gaute Heivoll „Þetta er ekki aðeins saga um lífið í sveitinni á afmörkuðum
tíma heldur saga um vonir og þrár, fjölskyldutengsl, einkum foreldraástina.“
Brennuvargur gengur laus
Í Bentonville í Arkansas hefur verið
opnað af miklum metnaði nýtt lista-
safn, Crystal Bridges Museum of
American Art. Safnið er gamall
draumur stofnandans Alice Walton,
eins erfingja Walmart-verslunar-
keðjunnar, en það tók einungis sex
ár frá því tilkynnt var um hugmynd-
irnar að safninu þar til það var opn-
að í síðasta mánuði. Arkitektinn
Moshie Safdie hannaði safnið sem
stendur við Cristal Spring-ána og yf-
ir henni í bænum þar sem faðir eig-
andans, Sam Walton, opnaði fyrstu
lágvöruverðsverslun sína árið 1951.
Að sögn Robertu Smith, gagnrýn-
anda The New York Times, er í safn-
inu afar gott úrval verka, að verð-
mæti mörg hundruð milljónir dala,
og hefur það alla burði til að verða
viðkomustaður listpílagríma alls
staðar að úr heiminum.
Það er sérstaða safnsins að því er
ætlað að tengja bandaríska myndlist
við sögu landsins sem og veita að-
gang að náttúrunni umhverfis á
heillandi hátt, ætíð þó með megin-
áherslu á listina. Yfir 400 verk frá
síðustu öldum til dagsins í dag eru til
sýnis, og þar á meðal lykilverk lista-
manna á borð við Gilbert Stuart,
Thomas Cole og Thomas Eakins.
Safn fyrir
Walmart-
peninga
Safnið Tengir söguna við listina.
Heimsljós (Stóra sviðið)
Mið 28/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 1.auka
Fim 29/12 kl. 19:30 3.sýn Sun 22/1 kl. 19:30 9.sýn Sun 12/2 kl. 19:30 2.auka
Lau 7/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 14.sýn
Sun 8/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 29/1 kl. 19:30 11.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 15.sýn
Lau 14/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn
Sun 15/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn
Frumsýnt annan í jólum 2011
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 8/1 kl. 19:30 33.s Fös 20/1 kl. 19:30 37.s
Fim 12/1 kl. 19:30 34.s Lau 21/1 kl. 19:30 síð.sýn.
Sýningum lýkur í janúar!
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 30/12 kl. 19:30 15.sýn Fim 5/1 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/1 kl. 19:30 síð.sýn
Sýningum lýkur í janúar!
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Mið 28/12 kl. 13:30 Frums. Fös 30/12 kl. 13:30 4.sýn Sun 8/1 kl. 15:00 7.sýn
Fim 29/12 kl. 13:30 2.sýn Fös 30/12 kl. 15:00 5.sýn
Fim 29/12 kl. 15:00 3.sýn Sun 8/1 kl. 13:30 6.sýn
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 8/1 kl. 16:00
On Misunderstanding (Kassinn)
Mið 28/12 kl. 19:30 Frums. Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 30/12 kl. 19:30 3.sýn
Frumsýnt 28.desember
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRUMENN
GLEÐILEG JÓL
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
FÖS 30/12
FÖS 20/01
L AU 21 /01
FÖS 27/01
KL . 20:00
KL . 20:00 NÝ SÝNING
KL . 22:00 NÝ SÝNING
KL . 20:00 NÝ SÝNING
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fim 5/1 kl. 20:00 fors Mið 25/1 kl. 20:00 4.k Fim 23/2 kl. 20:00 aukas
Fös 6/1 kl. 19:00 frums Fim 26/1 kl. 20:00 aukas Fös 24/2 kl. 20:00 10.k
Mið 11/1 kl. 20:00 2.k Sun 5/2 kl. 20:00 5.k Fim 1/3 kl. 20:00 11.k
Lau 14/1 kl. 20:00 aukas Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fös 2/3 kl. 20:00 12.k
Sun 15/1 kl. 20:00 3.k Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fim 8/3 kl. 20:00
Mið 18/1 kl. 20:00 aukas Fim 16/2 kl. 20:00 8.k
Sun 22/1 kl. 20:00 aukas Fös 17/2 kl. 20:00 9.k
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 7/1 kl. 14:00 30.k Lau 28/1 kl. 14:00 Lau 18/2 kl. 14:00
Sun 8/1 kl. 14:00 31.k Sun 29/1 kl. 14:00 Sun 19/2 kl. 14:00
Lau 14/1 kl. 14:00 Lau 4/2 kl. 14:00 Lau 25/2 kl. 14:00
Sun 15/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00
Lau 21/1 kl. 14:00 Lau 11/2 kl. 14:00
Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið)
Sun 8/1 kl. 20:00 Fim 19/1 kl. 20:00 Fös 27/1 kl. 19:00
Fim 12/1 kl. 20:00 Fös 20/1 kl. 19:00
Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir.
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 30/12 kl. 20:00 Fös 13/1 kl. 19:00
Lau 7/1 kl. 19:00 Lau 21/1 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011
Nýdönsk í nánd (Litla sviðið)
Fös 6/1 kl. 22:00 1.k Fös 13/1 kl. 22:00 3.k Fös 20/1 kl. 22:00 5.k
Lau 7/1 kl. 22:00 2.k Lau 14/1 kl. 22:00 4.k
Aftur á svið - aðeins þessar sýningar