Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 43
DAGBÓK 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
3
1 7 9 4
7
6 4 1 8
1 2 9
2 8 3 6
9 6 1 8
4 7 9 2
5 7 3 6 2
3 7
2 1 5
5 2 9 6
3 2 5
1 7
8 7
9 6 5
3 2 9
2 1
9 8
6 5 2 9
5 4
4
8 5 6 2
1 3 7 5
7 1 3
7 4 8
5 8 2 4 9 7 6 1 3
1 6 7 8 5 3 9 4 2
4 9 3 2 6 1 8 7 5
3 5 6 9 8 4 1 2 7
8 7 4 6 1 2 5 3 9
2 1 9 7 3 5 4 6 8
9 2 1 5 7 6 3 8 4
6 4 5 3 2 8 7 9 1
7 3 8 1 4 9 2 5 6
7 6 9 2 8 1 3 5 4
4 8 2 7 5 3 1 6 9
1 3 5 4 9 6 7 2 8
6 9 7 8 2 5 4 3 1
8 5 3 1 7 4 6 9 2
2 1 4 6 3 9 5 8 7
3 7 8 5 4 2 9 1 6
5 4 6 9 1 8 2 7 3
9 2 1 3 6 7 8 4 5
9 5 2 1 3 6 4 7 8
7 6 1 8 2 4 5 3 9
4 8 3 5 7 9 2 6 1
6 1 9 3 5 2 7 8 4
2 4 7 9 8 1 3 5 6
5 3 8 4 6 7 9 1 2
1 9 5 6 4 3 8 2 7
3 2 4 7 1 8 6 9 5
8 7 6 2 9 5 1 4 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 3. janúar, 3. dagur
ársins 2012
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast. (Rm. 8, 18.)
Málmbandið góða Metallica héltupp á þrítugsafmæli sitt nú í
desember með nokkrum tónleikum á
heimaslóð í San Francisco. Renndu
kapparnir þar yfir ferilinn og fengu
góða gesti til liðs við sig, svo sem
áhrifavalda á borð við Ozzy Os-
bourne, Rob Halford og sjálfan Ani-
mal úr ensku pönksveitinni Anti-
Nowhere League. Jerry Cantrell og
John Bush voru þarna líka og fleiri
góðir menn.
Lou Reed var vitaskuld í veislunni
en hann gaf fyrir skemmstu út plötu í
samstarfi við Metallica, Lulu.
Þá stigu gamlir bandingjar á svið,
Dave Mustaine (búinn að þerra tárin),
Jason Newsted og Ron McGovney,
sem var fyrsti bassaleikari Metallica.
Hann þurfti sem kunnugt er að víkja
þegar James Hetfield og Lars Ulrich
uppgötvuðu Cliff heitinn Burton.
McGovney lagði bassann frá sér
fljótlega eftir það og starfar í dag sem
kennari. Skyldi hann kenna málmvís-
indi?
McGovney náði ekki að leika inn á
plötu með Metallica. Það hafa fjórir
bassaleikarar gert: Burton, Newsted
og Robert Trujillo eru þrír þeirra. En
hver er sá fjórði? Vefjist þetta fyrir
einhverju ’tallica-fríkinu skal tekið
fram að hann átti aldrei formlega að-
ild að bandinu og er án efa þekktari
fyrir að leggja því lið með öðrum
hætti.
x x x
Ýmsir samferðamenn Metallica ítónlistinni, sem ekki áttu heim-
angengt, sendu piltunum kveðju í til-
efni af afmælinu og má nálgast það
efni í formi hreyfimynda á heimasíðu
sveitarinnar, metallica.com. Má þar
nefna Jimmy Page, Brian May,
Kerry King, Slash, Lemmy, Aero-
smith og Green Day sem hleður
hreinlega í lag.
Víkverji vekur þó sérstaka athygli
á framlagi U2 en Írarnir knáu setja
upp leikþátt félögum sínum til heið-
urs. Alltaf sami metnaðurinn á þeim
bænum.
Þá er gamla gítargoðið Uli Jon
Roth alltaf myndvænt. Hver sagði að
hippisminn væri dauður?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 þverneita, 4 korn-
strás, 7 horskur, 8 slitin, 9
spök, 11 elgur, 13 vegur, 14
svardagar, 15 vatnagangur,
17 margur, 20 sterk löngun,
22 víkka, 23 hárskúfs, 24
gabbi, 25 lagvopn.
Lóðrétt | 1 viðburður, 2
sjúga, 3 stöð, 4 ástand, 5
geta lyft, 6 sól, 10 leikinn,
12 smávaxinn maður, 13
tímgunarfruma, 15 hrum, 16
stór, 18 truflar, 19 sker, 20
sjávargróður, 21 áflog.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 handfesta, 8 labbi, 9 fögur, 10 tíu, 11 síðla, 13 rósum,
15 hress, 18 smána, 21 kæn, 22 fatla, 23 afrit, 24 blóðskömm.
Lóðrétt: 2 aðbúð, 3 drita, 4 elfur, 5 tagls, 6 flas, 7 hrum, 12 les,
14 ólm, 15 hofs, 16 eitil, 17 skarð, 18 snakk, 19 áfram, 20 atti.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Undir áhrifum. S-NS.
Norður
♠G95
♥ÁK10
♦ÁDG42
♣Á5
Vestur Austur
♠4 ♠87
♥DG542 ♥986
♦105 ♦K863
♣D10874 ♣KG92
Suður
♠ÁKD10632
♥73
♦97
♣63
Suður spilar 6♠.
Var Fred Gitelman undir áhrifum
frá Zia? Það má velta því fyrir sér, en
Zia heldur því fram að aldrei eigi að
dobla fyrirstöðusagnir – það hjálpi
bara mótherjunum í slemmuleitinni.
Gitelman var með spil austurs í úr-
slitaleik hollensku og bandarísku sveit-
anna á hugaríþróttamótinu í Beijing. Á
báðum borðum vakti suður á 3♠ og
norður leitaði að slemmu með 4♣. Hol-
lendingurinn Louk Verhees doblaði og
fékk skömmu síðar út lauf gegn 6♠:
einn niður eftir misheppnaða tígulsvín-
ingu. Gitelman passaði og var ekki eins
„heppinn“ með útspil. Vestur kom út
með ♥D og slemman vannst.
Hefur Zia þá rangt fyrir í þessum
efnum? Já, örugglega. Reynslan sýnir
að makker hefur fulla þörf fyrir aðstoð
í slíkum stöðum. Dobl er sjálfsagt hér
með tvö háspil í laufinu.
3. janúar 1597
Heklugos hófst „með stórum
eldgangi og jarðskjálftum svo
þar sáust í einu loga átján eld-
ar í fjallinu,“ eins og sagði í
Skarðsárannál. Í tólf daga
heyrðust „dunur með miklum
brestum, álíkt sem fallbyssna-
hljóð“.
3. janúar 1841
Þennan dag mældist mesti
loftþrýstingur í Reykjavík,
1058,5 millibör. Sama dag 92
árum síðar, árið 1933, mældist
minnsti loftþrýstingur í jan-
úar, 923,9 millibör.
3. janúar 1926
Karlakór Reykjavíkur var
stofnaður, að frumkvæði Sig-
urðar Þórðarsonar tónskálds,
sem stjórnaði kórnum í meira
en þrjá áratugi.
3. janúar 1948
Þýskur togari bjargaði fjórum
skipverjum sem hrakist höfðu
í nær átta sólarhringa á hafi
úti á vélbátnum Björgu eftir
að vél bátsins bilaði.
3. janúar 1969
Skinnaverksmiðjan Iðunn
stórskemmdist af eldi. Morg-
unblaðið sagði tjónið gífurlegt
og að um hundrað manns
myndu missa atvinnu sína.
3. janúar 1990
Íslandsbanki hf. hóf starfsemi.
Hann tók yfir viðskipti Al-
þýðubankans, Iðnaðarbank-
ans, Útvegsbankans og Versl-
unarbankans. Síðar breyttist
nafn bankans í Glitni og aftur í
Íslandsbanka.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Það leggst afskaplega vel í mig að verða sextug-
ur,“ sagði Þórarinn Jón Magnússon ritstjóri.
„Maður er ekkert eldri en manni finnst maður
vera. Ég er á góðum aldri og ungur í anda.“
Hann ætlar að fara út að borða með eiginkonu
sinni, Oddfríði Steindórsdóttur, í tilefni af afmæl-
inu. Oddfríður varð sextug fyrir nokkrum vikum
og þau eiga 40 ára brúðkaupsafmæli á þessu ári.
Þau ætla að halda upp á brúðkaupsafmælið í eftir-
lætisborg sinni, París. En er eitthvert afmæli Þór-
arins eftirminnilegra en önnur?
„Daginn sem ég varð fimmtugur bauð konan
mín mér á sýningu Þjóðleikhússins á leikritinu Veislan. Nokkrir sýn-
ingargesta sátu til borðs með leikurunum og gekk mikið á uppi á
veisluborðinu. Afar eftirminnileg afmælisveisla það,“ sagði Þórarinn.
Hann hóf blaðamennsku 1969 þegar allt prentverk var enn í blýi.
„Eftir hjartauppskurð fyrir ekkert svo löngu ákvað ég að nota end-
urhæfingartímann til að læra almennilega á netið og koma upp net-
miðli. Ég verð að prófa það eftir að hafa starfað við prentmiðlana.
Kannski hefði ég átt að nýta tímann til að ljúka við einhver af þessum
skáldverkum eða leikritum sem ég á uppkast að.“ gudni@mbl.is
Þórarinn Jón Magnússon, ritstjóri, 60 ára
„Ég er ungur í anda“
Hlutavelta
Thelma Liv, Sara
Björt, Íris Lilja og
Embla Eir héldu ný-
lega 3 sinnum tombólu
fyrir utan Samkaup í
Búðarkór og einu sinni
fyrir utan Krónuna í
Lindum. Þær söfnuðu
23.100 kr. og gáfu
ágóðann til Rauða
krossins. Á myndina
vantar Emblu Eir.
Flóðogfjara
3. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.41 3,9 11.58 0,7 17.59 3,6 11.18 15.47
Ísafjörður 1.21 0,4 7.37 2,2 14.04 0,4 19.52 1,8 11.59 15.15
Siglufjörður 3.31 0,3 9.42 1,2 16.04 0,1 22.37 1,1 11.44 14.57
Djúpivogur 2.48 2,0 9.04 0,4 14.55 1,7 21.03 0,2 10.56 15.08
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Afbrýðisemi gæti blossað upp í dag
og er best að doka við og sjá hver staðan
verður á morgun. Næsti mánuður ætti að
verða hagstæður í þessum efnum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sýndu maka þínum eða góðum vini
sérstaka tillitssemi í dag. Hvort sem er
skaltu hætta að flýja og taka á málunum
strax.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Af einhverjum ástæðum samsamar
þú þig eigum þínum þessa dagana. Notaðu
tækifærið og efldu tengslin við ástvini þína,
bæði tilfinningaleg og líkamleg.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér hefur vegnað vel og mátt því
gleðjast yfir árangrinum með þínum nánustu
vinum. Gerðu lista yfir dragbíta og eignir og
fáðu á hreint hvernig þú lifir mánuðinn af.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er erfitt að velja sér viðmælendur
þegar um flókin og viðkvæm mál er að ræða.
Varastu bara að gera ekki of mikið úr hlut-
unum eða ganga of langt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Viðræðum við fjölskyldumeðlim miðar
ekkert áfram vegna neikvæðni. Gættu þess
að lofa ekki upp í ermina á þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gerðu ráð fyrir að rekast á fólk úr fortíð-
inni næstu vikurnar. Taktu við stjórnartaum-
unum er færi gefst og stýrðu málum í höfn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að læra að nýta þér
þann eiginleika sem fær fólk til þess að opna
hjarta sitt fyrir þér. Ekki reyna að sanna neitt
fyrir neinum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu það ekki draga úr þér allan
kjark þótt einhver óvelkomin athygli beinist
að þér. Kannski kemur sú uppgötvun á óvart,
en er engu að síður jákvæð?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að finna upp á einhverju
til að brjóta upp rútínu dagsins. Vertu því
bara ákveðinn og fylgdu eftir eigin sannfær-
ingu því þú einn berð ábyrgðina.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ættir að einbeita þér að heim-
ilinu og fjölskyldunni í dag. Reyndu að vera
heiðarleg/ur bæði við sjálfa/n þig og aðra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Treystu eigin hugmyndum. Barnaleg
viðbrögð gætu brotist fram, en best er að
streitast gegn þeim.
Stjörnuspá
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7
5. Bc4 Be7 6. O-O O-O 7. He1 c6 8. a4
b6 9. h3 a6 10. Ba2 Bb7 11. dxe5 dxe5
12. Rh4 g6 13. Bh6 He8 14. Df3 Bf8 15.
Bg5 Bg7 16. Had1 De7
Staðan kom upp í 1. deild fyrri hluta
Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram í
Rimaskóla sl. haust. Sigurbjörn
Björnsson (2349) hafði hvítt gegn ísr-
aelsku skákkonunni Möshu Klinovu
(2323). 17. Hxd7! Dxd7 18. Bxf6 Bxf6
19. Dxf6 De7 20. Dxe7 Hxe7 21. Hd1
Kf8 22. Rf3 h6 23. Hd6 Ke8 24. Rd2 b5
25. Rb3 Hd8 26. Hxd8+ Kxd8 27. Rc5
Kc7 28. b4 Kd6 29. Kf1 Bc8 30. a5 f5
31. Rb1 f4 32. c4 g5 33. cxb5 axb5 34.
Rd2 h5 35. Rf3 g4 36. hxg4 hxg4 37.
Rg5 og hvítur innbyrti vinninginn
nokkru síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.