Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
Rithöfundurinn HoracioCastellanos Moya erlandlaus, hann er fæddurí Hondúras, ólst upp í El
Salvador og hefur dvalið í Gvate-
mala, Mexíkó, Þýskalandi og Banda-
ríkjunum. Hann er því sannarlega
heimsborgari en í skrifum sínum
horfir hann iðulega heim til Róm-
önsku Ameríku og er ekkert að hlífa
okkur lesendum sínum þegar hann
fjallar grímulaust um blóði drifna
sögu stríðshrjáðrar álfunnar.
Moya skellir þessu framan í okkur
sem í fjarlægum velmegunarríkjum
höfum frekar viljað líta undan en
horfast í augu við það sem hefur átt
sér stað í þessum heimshluta, og á
sér reyndar enn stað, samkvæmt því
sem hann segir í nýlegu viðtali. Þar
fullyrðir hann að ofbeldinu linni
ekki, þó svo að tími borgarastyrjalda
sé liðinn. Hann segir dráp á fólki
borga sig fyrir þá sem sækjast eftir
völdum, þeir komist hærra eftir því
sem þeir drepi fleiri. Allt sé grund-
vallað á blóði.
Skáldsagan Fásinna (Insensatez)
segir frá manni sem tekur að sér að
lesa próförk að ellefu hundruð síðna
skýrslu katólsku kirkjunnar um
þjóðarmorð hersins á indíánum í
ónefndu ríki í Mið-Ameríku. Maður
þessi er í nokkru ójafnvægi, bæði
drykkfelldur og yfirþyrmdur af kyn-
órum, og ekki batnar ástand hans
við lesturinn á skýrslunni, þar sem
hann les vitnisburði þeirra sem lifðu
af ofbeldisverkin.
Engan skal undra að sá hryllingur
sem fólkið segir frá í skýrslunni
skuli hafa djúpstæð áhrif á veslings
manninn, ótti hans vex eftir því sem
líður á söguna og ofsóknaræði renn-
ur á hann, enda veit hann að valdhaf-
ar og þeir sem málið varðar svífast
einskis. Moya tekst listavel að segja
sögu þessa grátbroslega manns í
sinni ömurlegu stöðu, um leið og
hann segir okkur skelfilega sögu af
raunverulegum atburðum sem áttu
sér stað í þessum heimshluta. Setn-
ingar úr skýrslunni sem vitnað er til
eru ekki skáldaðar, heldur raun-
verulegur vitnisburður fólks. Og
hryllingurinn sem þar birtist er svo
skefjalaus að lesandinn vill helst
ekki vita af honum.
Lesandinn losnar ekki svo auð-
veldlega við myndirnar sem límast
inn á heilabúið eftir lesturinn, til
dæmis mynd af hershöfðingja sem
heldur í hælana á litlu barni og snýr
því í hringi til að geta slengt því utan
í burðarstólpa úr viði og splundrað
þannig á því meyrholda höfðinu.
Hún veldur sannarlega ógleði mann-
vonskan sem birtist í þeim níðings-
verkum sem framin voru í fjölda-
morðunum á frumbyggjunum. Og
það er undarleg upplifun að lesa um
þau á sama tíma og maður getur
ekki annað en hlegið að aðalpersón-
unni, sem í samskiptum sínum við
hitt kynið er afar aumkunarverð.
Hann er ekki síður klaufalegur í ná-
vist karlkyns félaga sinna.
Þetta er á einhvern hátt fyndin og
sorgleg saga af manni við ömurlegar
aðstæður. Moya gerir þetta afar vel
og hann undirstrikar streituna í sál-
arlífi sögupersónunnar með stílnum
sem er mjög sérstakur og einkennist
af mikilli punktafæð og setn-
ingalengd. Stundum er heil blaðsíða
á milli punkta. Orðin flæða fram,
rétt eins og óreiðan í höfðinu á aðal-
persónunni sem segir frá í fyrstu
persónu. Hermann Stefánsson hefur
heldur betur tekist á við ögrandi
verkefni að þýða þessa bók og skila
stílnum yfir á ylhýra, en honum
tekst fantavel upp, þýðingin er ekk-
ert annað en snilld.
Morgunblaðið/Eggert
Ögrandi „Moya tekst listavel að segja sögu þessa grátbroslega manns í sinni
ömurlegu stöðu, um leið og hann segir okkur skelfilega sögu.“
Skáldsaga
Fásinna bbbbn
Eftir Horacio Castellanos Moya. Her-
mann Stefánsson þýddi. Bjartur gefur
út, kilja 124 bls.
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
BÆKUR
Of ljótt til að vita
Breski myndlistarmaðurinn David Hockney er með virt-
ustu listamönnum Breta og opnar um næstu helgi stóra
sýningu á nýjum verkum í Royal Academy í London. Á
nýársdag gaf talsmaður Bretadrottningar út tilkynn-
ingu þess efnis að drottningin hefði skipað Hockney,
sem er 74 ára gamall, meðlim í fámennum og afar virt-
um klúbbi sem kenndur er við „Order of Merit“. Í þeim
félagsskap eru á hverjum tíma aðeins 24 karlar og kon-
ur. Samkvæmt dagblaðinu The Independent neitaði
Hockney, sem hefur áður hafnað því að vera aðlaður af
drottningunni, því að tjá sig um málið. Hann sagði að-
eins við blaðamann, að það væri gott að „þau væru ekki haldin fordómum
gagnvart gömlum reykingarmanni.“ Meðal annarra félaga í Order of Me-
rit-hópnum má nefna Margaret Thatcher barónessu, arkitektinn Foster lá-
varð, skúlptúristann Anthony Caro, náttúrufræðinginn David Attenbor-
ough, leikskáldið Tom Stoppard og Karl Bretaprins.
David Hockney kominn í fámennan
klúbb með Thatcher og Bretaprins
David Hockney
Feðgarnir frá Kirkjubóli er heiti
tvöfaldrar sagnaskemmtunar sem
verður boðið upp á í fyrsta skipti
um næstu helgi í Landnámssetrinu í
Borgarnesi. Silja Aðalsteinsdóttir
hefur leikinn seinnipart dags með
sögu Guðmundar Böðvarssonar
skálds og kvennanna í lífi hans, en
Silja ritaði á sínum tíma ævisögu
Guðmundar. Han var alla tíð um-
kringdur ástríkum konum en þrjár
skipuðu heiðurssess í lífi hans; móð-
irin, Kristín Jónsdóttir, skáldgyðja
hans, Ragnheiður Magnúsdóttir, og
eiginkona hans, Ingibjörn Sigurð-
ardóttir, „sólin sem kyssti hann“.
Í dagskrá Silju um Guðmund
verður athyglinni einkum beint að
samskiptum hans við þessar þrjár
konur og áhrifunum sem þær höfðu
á líf hans og ljóð.
Í seinni sagnaskemmtuninni, um
kvöldið, segir Böðvar Guðmunds-
son sögur úr sveit sem ekki er leng-
ur til. Meira vill Böðvar víst ekki
láta uppi, en margir hafa lesið hríf-
andi smásagnasafn hans, Sögur úr
Síðunni, og gæti þar verið vísbend-
ingar að finna.
Sýningarfjöldi er takmarkaður
því Böðvar kemur sérstaklega frá
Danmörku til að taka þátt. Frum-
sýning dagskrárinnar á laugardag-
inn kemur, 7. janúar, klukkan 16 og
20 – Silja talar klukkan 16 og Böðv-
ar um kvöldið. Næstu sýningar eru
á sunnudaginn kemur og aftur á
þriðjudag, og þá einnig klukkan 16
og 20 báða dagana.
Böðvar og Silja í
Landnámssetrinu
Morgunblaðið/Ómar
Kemur heim Böðvar kemur frá
Danmörku til að segja frá.
Tvískipt sagna-
skemmtun um feðga
frá Kirkjubóli
Sinfóníuhljóm-
sveit unga fólks-
ins fyrirhugar að
flytja óperuna
Don Giovanni
eftir Wolfgang
Amadeus Mozart
á tvennum tón-
leikum í sumar.
Fyrri tónleikarn-
ir verða á Þjóð-
lagahátíðinni á
Siglufirði 8. júlí og þeir síðari
tveimur dögum síðar, 10. júlí, í Eld-
borgarsal Hörpu.
Átta ungum einsöngvurum verð-
ur boðið að syngja með hljómsveit-
inni. Bjarni Thor Kristinsson óp-
erusöngvari verður sögumaður í
flutningnum og þá fer Háskólakór-
inn með hlutverk kórsins í upp-
færslunni. Óperan verður sett upp í
konsertformi og verður sungin á ís-
lensku en þýðandi og stjórnandi er
Gunnsteinn Ólafsson.
Gunnsteinn segir að áheyrnar-
prufur fyrir einsöngvarana muni
fara fram nú í byrjun janúar og hef-
ur mikill fjöldi boðað komu sína.
Miðað er við að söngvararnir séu
komnir langt í söngnámi og um það
bil að hefja feril sinn sem einsöngv-
arar.
Söngvara
leitað
Gunnsteinn
Ólafsson
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fim 5/1 kl. 20:00 fors Fim 26/1 kl. 20:00 aukas Fim 1/3 kl. 20:00 11.k
Fös 6/1 kl. 19:00 frums Sun 5/2 kl. 20:00 5.k Fös 2/3 kl. 20:00 12.k
Mið 11/1 kl. 20:00 2.k Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fim 8/3 kl. 20:00
Lau 14/1 kl. 20:00 aukas Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fös 9/3 kl. 20:00
Sun 15/1 kl. 20:00 3.k Fim 16/2 kl. 20:00 8.k Lau 17/3 kl. 20:00
Mið 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Fös 23/3 kl. 20:00
Sun 22/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00
Mið 25/1 kl. 20:00 4.k Fös 24/2 kl. 20:00 10.k
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 7/1 kl. 14:00 30.k Lau 28/1 kl. 14:00 Lau 18/2 kl. 14:00
Sun 8/1 kl. 14:00 31.k Sun 29/1 kl. 14:00 Sun 19/2 kl. 14:00
Lau 14/1 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 14:00 Lau 25/2 kl. 14:00
Sun 15/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00
Lau 21/1 kl. 14:00 Lau 11/2 kl. 14:00
Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið)
Sun 8/1 kl. 20:00 Fim 19/1 kl. 20:00 Fös 27/1 kl. 19:00
Fim 12/1 kl. 20:00 Fös 20/1 kl. 19:00
Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir. Sýningum fer fækkandi
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 7/1 kl. 19:00 Fös 13/1 kl. 19:00 Lau 21/1 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Mán 9/1 kl. 20:00 fors Sun 22/1 kl. 20:00 4.k Lau 11/2 kl. 20:00 8.k
Þri 10/1 kl. 20:00 fors Mið 25/1 kl. 20:00 5.k Sun 12/2 kl. 20:00 aukas
Mið 11/1 kl. 20:00 frums Fim 26/1 kl. 20:00 6.k Lau 18/2 kl. 20:00 9.k
Sun 15/1 kl. 20:00 2.k Lau 4/2 kl. 20:00 aukas Sun 19/2 kl. 20:00
Mið 18/1 kl. 20:00 3.k Sun 5/2 kl. 20:00 7.k
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
Jesús litli (Litla svið)
Sun 8/1 kl. 20:00 aukas
Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010. Lokasýning
Nýdönsk í nánd (Litla sviðið)
Lau 7/1 kl. 22:00 2.k Lau 14/1 kl. 22:00 4.k Lau 21/1 kl. 22:00 aukas
Fös 13/1 kl. 22:00 3.k Fös 20/1 kl. 22:00 5.k
Aftur á svið - aðeins þessar sýningar
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 7/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 14.sýn
Sun 8/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 29/1 kl. 19:30 11.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 15.sýn
Lau 14/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn
Sun 15/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn
Lau 21/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 1.auka
Sun 22/1 kl. 19:30 9.sýn Sun 12/2 kl. 19:30 2.auka
Frumsýnt annan í jólum 2011
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Sun 8/1 kl. 19:30 33.s Fös 20/1 kl. 19:30 37.s
Fim 12/1 kl. 19:30 34.s Lau 21/1 kl. 19:30 síð.sýn.
Sýningum lýkur í janúar!
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fim 5/1 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/1 kl. 19:30 síð.sýn
Sýningum lýkur í janúar!
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 8/1 kl. 13:30 6.sýn Sun 15/1 kl. 15:00 9.sýn Sun 29/1 kl. 13:30 12.sýn
Sun 8/1 kl. 15:00 7.sýn Sun 22/1 kl. 13:30 10.sýn Sun 29/1 kl. 15:00 13.sýn
Sun 15/1 kl. 13:30 8.sýn Sun 22/1 kl. 15:00 11.sýn
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 8/1 kl. 16:00 Fös 13/1 kl. 22:00
U