Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum búnir að vera í gríðarlega stífum prófunum allt síðasta ár með bandarísku fyrirtæki sem ætlar að kaupa vöruna,“ segir Kristján Björn Ómarsson, stofnandi og hönnuður nýsköpunarfyrirtækisins Fjölblend- is. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á eldsneytiskerfum sem byggð eru á TCT-tækninni (e. Total Combustion Technology) en með henni er hægt að draga úr eldsneytisnotkun um allt að 10-15% og losun mengandi loft- tegunda um 25-30%. Vert er að benda á að sé hvarfakútur notaður samhliða má minnka útblásturs- mengun enn frekar. Fjölbreytt kerfi Fjölblöndungurinn sem hannaður hefur verið af Kristjáni Birni er hugsaður til notkunar á minni vélum á borð við sláttuvélar, keðjusagir og létt bifhjól en með aukinni þróun verður unnt að nota TCT-tæknina á stærri og öflugri vélar. Önnur sér- staða kerfisins er sú að það getur keyrt á fleiri en einni eldsneytisteg- und og er því hægt að notast við tæknina á vélum sem knúnar eru bensíni, steinolíu, gasi og alkóhóli. „Ég tel að þetta eldsneytiskerfi muni lifa svo lengi sem brunavél verður á markaðnum því það er gríðarlega erfitt að gera hlutinn betri en þetta,“ segir Kristján Björn og bendir á að notkunarmöguleikar TCT-kerfisins í framtíðinni séu gríðarmiklir. Möguleg verksmiðja á Íslandi Að undanförnu hefur verið unnið að því að setja upp framleiðsluverk- smiðju í Kína í samstarfi við blönd- ungaframleiðanda og hefur hún nú framleitt um eitt hundrað stykki en sú framleiðsla telst vera fyrsti lið- urinn í því að koma vörunni á al- mennan markað. Segir Kristján Björn nú miklar prófanir verða varð- andi framleiðsluþáttinn næstu 4-6 mánuði og gangi þær eftir sem skyldi verður unnt að framleiða um 30.000 eintök af TCT á mánuði þegar framleiðslan kemst á skrið. Segist hann jafnframt hafa fundið fyrir talsverðum áhuga hér á landi og hafa m.a. komið upp hugmyndir þess efnis að reisa verksmiðju á Ís- landi. „Það hafa menn hér á landi verið í sambandi við mig með að at- huga hvort ekki sé hægt að setja upp verksmiðju á Íslandi og það er í at- hugun,“ segir Kristján Björn. Verði af framkvæmd verksmiðjunnar hér á landi mun sú notast við meiri sjálf- virkni í framleiðslu sinni en verk- smiðjan sem fyrir er í Kína. Má því reikna með að hið minnsta tuttugu ný störf skapist með tilkomu hennar. Að sögn er m.a. horft til Akureyrar varðandi mögulega staðsetningu og hafa einkaaðilar að norðan sýnt hug- myndinni athygli. Kristján Björn bendir þó á að uppsetning verk- smiðju sé kostnaðarsamt verk og gerir hann ráð fyrir að kostnaður vegna þessa verði um 200 milljónir króna. Næstu markmið eru að sögn skýr; að vinna að aukinni kynningu TCT-tækninnar erlendis og að safna nægjanlegu fjármagni til að tryggja megi áframhaldandi rekstur og þró- un. Áhugi á innlendri verksmiðju  Eldsneytiskerfi byggt á TCT-tækni minnkar umtalsvert eldsneytisnotkun og mengun frá vélum  Framleiðsla fyrstu eintaka þegar hafin í Kína  Kostnaður við verksmiðju hér á landi 200 milljónir Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hönnuður Kristján Björn ætlar að vinna að aukinni kynningu fyrirtækisins. Verksmiðja Alls hafa nú um 100 eintök af TCT verið framleidd í Kína. Batnandi aðstæður í íslensku efna- hagslífi eru helstu ástæður þess að Bauhaus hyggst loks opna stærstu byggingavöruverslun landsins á vormánuðum en auglýst var eftir al- mennu starfsfólki nú um áramót. Alls bárust fyrirtækinu um 450 um- sóknir um þær stjórnunarstöður sem auglýstar voru í haust. Halldór Óskar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi, segir að þrettán hafi þegar verið ráðnir til starfa hjá fyrirtækinu en heildarfjöldi starfsmanna verði á bilinu 60-80 manns. Eru þetta um helmingi færri störf en fyrirtækið hafði upphaflega áætlað að ráða í en alls sóttu 1.250 manns um 150 störf sem auglýst voru í september 2008, þegar til stóð að opna verslunina í desember sama ár. Þá sóttu einnig 650 um þær stjórnunarstöður sem í boði voru og ráðið var í en aldrei kom til þess að fólkið tæki til starfa, þar sem opnun verslunarinnar var frestað um óákveðinn tíma. „Það fyrsta sem við gerðum var að hafa samband við þetta fólk og það eru nokkrir sem koma til baka aftur,“ segir Halldór, sem sjálfur hóf aftur störf fyrir fyrirtækið síð- astliðið sumar. Þá hafi forsvars- menn fyrirtækisins ákveðið að tími væri kominn á að endurvekja verk- efnið. Halldór segir menn hafa skynjað breytingar til batnaðar á liðnu ári. „Umhverfið er mun jákvæðara en það var,“ segir hann um þær að- stæður sem rekstrinum séu búnar. „Og við horfum til framtíðar og væntum þess að ástandið lagist á þessu ári og því næsta,“ segir Hall- dór. Byggingu húsnæðisins við Vesturlandsveg, sem hýsa mun verslunina, lauk í janúar 2009 en það er um 21.000 fermetrar að stærð og í versluninni verða alls um 120.000 vörunúmer samkvæmt aug- lýsingu hennar. M.a. vantar sölu- fulltrúa í deildir á borð við Baðheim og Garðaland, auk starfsfólks í vörumóttöku, afgreiðslu og í áfyll- ingar, svo fátt eitt sé nefnt. holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Bauhaus Húsnæði Bauhaus við Vesturlandsveg stendur nú autt en stutt er í að breyting verði þar á. Vænta þess að efnahags- ástandið fari batnandi  Bauhaus opnað í vor og hyggst ráða í 60-80 störf Eitt af síðustu verkum Jóns Bjarnasonar í ráðherraemb- ætti var að skipta um stjórnarformann Hafrannsókna- stofnunar Ís- lands. Fór Jón fram á það við Friðrik Má Baldursson, prófessor við Háskól- ann í Reykjavík, að hann viki úr sæti stjórnarformanns Hafrannsókna- stofnunar. Í stað Friðriks skipaði Jón Erlu Kristinsdóttur, fram- kvæmdastjóra Sjávariðjunnar í Rifi, sem stjórnarformann. „Það var eng- inn aðdragandi að þessu. Ég veit ekki um neitt sem hefði átt að verða þessa valdandi,“ sagði Friðrik Már í samtali við mbl.is, fréttavef Morgun- blaðsins, í gærkvöldi. Hann sagði að skipan sín hefði átt að renna út í sumar. Jón Bjarnason vildi ekki tjá sig um málið, en Bjarni Harðarson, sem starfað hefur sem aðstoðarmað- ur hans, segir að þessi skipti hafi lengi staðið til. „Þetta talar fyrir sig sjálft en ég get ekki gefið nánari skýringar,“ segir Bjarni. Skipti um stjórn- arformann Hafró Jón Bjarnason Erla Kristinsdóttir Friðrik Már Baldursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.