Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 44
44 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞEIR VIRÐAST EKKI GETA VERIÐ SAMMÁLA UM NEITT ÞETTA GETUR EKKI ENDAÐ VEL SVONA NÚ GRETTIR, LÁTTU ÞIG DETTA OFAN Í ÞENNAN BALA AF GÓMSÆTU PASTA ÉG HAFÐI GREINILEGA RANGT FYRIR MÉR ÞETTA Á EFTIR AÐ SENDA HANN BEINT TIL SÁL- FRÆÐINGS! ÞÚ ERT SÁ ALLRA LATASTI OG VAN- HÆFASTI ÞJÓNN SEM ÉG HEF NOKKURN TÍMANN HITT! ÉG VIL FÁ AÐ TALA VIÐ EIGANDANN! HEYRÐU PABBI...! ÞAÐ ER ANNAR GAUR HÉRNA SEM VILL AÐ ÞÚ REKIR MIG! ÉG GET EKKI BEÐIÐ! MUNDU SAMT AÐ EF ÞÚ FÆRÐ HEIMÞRÁ, ÞÁ GETURÐU ALLTAF HRINGT Í OKKUR ÆI MAMMA! ÉG VIL BARA AÐ ÞÚ VITIR ÞAÐ IRON MAN SAGÐI SVOLÍTIÐ SEM MÉR FANNST SKRÍTIÐ HVAÐ VAR ÞAÐ? MÉR HEYRÐIST HANN SEGJA „SKAL GERT” ÞAÐ HLJÓMAÐI EINS OG EINHVER VÆRI AÐ GEFA HONUM SKIPANIR ÉG VERÐ AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ HVER ÞAÐ ER ERTU ENNÞÁ SPENNT FYRIR ÚTILEGUNNI? Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Handav. kl. 12.30. Spilað kl. 13. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, vöfflukaffi kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan opin, jóga kl. 10.50, kynning kl. 14. Þar mun félagstarfið segja frá starfseminni til maíloka, Félag eldri borg- ara og íþróttafélagið Glóð munu skýra frá starfi sínu til vors. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Innritun hefst í dag í alla leikfimi og nám- skeið á vorönn. Ný námskeið eru tölvu- námskeið og námskeið um Eglu. Athug- ið: takmarkaður fjöldi í vissum hópum.| Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Búta- saumur kl. 9. Myndlist kl. 13. Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson. Böðun fyrir hádegi, fótaaðgerðir, hársnyrting. Norðurbrún 1 | Myndlist, vefnaður/ útskurður kl. 9. Upplestur kl. 11. Frí- stundarstarf f/íbúa e. hád. Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9. Handa- vinna kl. 9:15. Spurt og spjallað kl. 13. Kaffiveitingar kl. 15:30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Fé- lagsmiðstöðin opin í dag, handa- vinnustofan er opin, félagsvist kl. 14. ÍVísnahorni hef ég stundum rifjaðupp samræður okkar Ara Jós- efssonar í Menntaskólanum á Ak- ureyri um Sjödægru, sem var ásamt Kvæðabók Hannesar Péturssonar og Steini Steinarr sú ljóðabók, sem við höfðum oftast milli handanna eftir að við vorum komnir í 4. bekk. Þegar Ari settist í 3. bekk var Þor- steinn Erlingsson hans skáld: Því kóngar að síðustu komast í mát og keisarar náblæjum falda og guðirnir reka sinn brothætta bát á blindsker í hafdjúpi alda. Og síðan hristi Ari sinn þrjóska rauða koll og bætti við til að storka Dettifossi og Einari Benediktssyni: Nei. Það er svo stopult sem þeim sýnist frítt. Nú þykir þeim sælast að dreyma, að þú værir asni, sem upp í er hnýtt og íslenskar þrælshendur teyma. En í 4. bekk var komið annað hljóð í strokkinn. Það hafði fallið á aldamótaskáldin og við hrifumst af Jóhannesi úr Kötlum. „Vögguvísa í húsi farmannsins“ var á vörum okk- ar í mánuð eða tvo með sínu lagi: Pabbi fór til Honúlúlú gekk í pálmalund tyllti sér hjá brúnni mey – hún lék á gítar sinn. Ekki vil ég söng hin brúna faðma Íslandsmann – hann er sig svo kaldur æ og ó og æ og ó. Hver veit nema pabbi sendi gull og fílabein heim til sinnar dóttur smá frá Honúlúlú nú. Kvæðið „Rímþjóð“, var okkur op- inberun: Mitt land – það var einbúi í hafi hins svala og blástirnda norðurs: því svarraði úðahvítt brim við hornbjörg og þrotlausa sanda. Og þjóð mín var huldan í dalnum sem starði út í ráðgátu fjarskans með gaddaðan hvítserk í bak – og logandi hekluna fyrir. Af sólhvörfum skyggðí álinn – þá kvað hún sig umlokin myrkri í sátt við þá gerningahríð og barðist sem kóngsman við dauðann. Í sléttubönd vatnsfell og stöguð hún þrautpíndan metnað sinn lagði í stuðla hún klauf sína þrá við höfuðstaf gekk hún til ljóða. Því rýrari verður í aski því dýrari háttur á tungu: við neistann frá eddunnar glóð hún smíðaði lykil úr hlekknum. Loks opnaðist veröldin mikla og huldan steig frjáls út úr dalnum – þá sökk hennar rím eins og steinn með okinu niður í hafið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er svo stopult sem þeim sýnist frítt Dagatal og afmæl- isrit að vestan Merkilegt er það starf sem mörg átthaga- félög landsins vinna fyrir sínar heima- byggðir. Nú er til dæmis komið út daga- tal Önfirðingfélagsins í 20. sinn. Það er eitt af allra vönduðustu plöggum sinnar teg- undar og hlýtur að vera Önfirðingum og þeim sem hafa það undir höndum til ánægju og gleði. Sá sem þar stendur að verki er sonur Önundarfjarðar, Björn Ingi Bjarnason, nú búsettur á Eyrarbakka. Það hlýtur að teljast með fádæmum sem sá maður hefur komið í verk í kynningu á sinni heimabyggð en Önfirðingafélaginu hefur hann stýrt svo lengi sem elstu menn muna. Á hinn bóginn er svo komið út 65 ára af- mælisrit Dýrfirðinga- félagsins og er það sonur Dýrafjarðar, Kristján Ottósson frá Svalvogum, sem á heiðurinn af því verki. Þar kennir ýmissa grasa eftir marga höf- unda og má segja að rit þetta sé ein alls- herjar lofgjörð um Dýrafjörð, svo sem vera ber. Alltof sjald- an er því haldið á lofti sem vel er gert. Það sem hér hefur verið nefnt er unnið í sjálf- boðavinnu að mestu og er liður í því að halda uppi merki hinna dreifðu byggða Íslands. Ekki veitir nú af. Hallgrímur Sveinsson. Velvakandi Ást er… … að vera í sama liði. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.