Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.01.2012, Blaðsíða 52
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Spáir 17 stiga frosti á Sandbúðum 2. „Maðurinn er hafnaði Bítlunum“ 3. Stöðvaði einkateiti á Players 4. Íslenska leiðin var best »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Ólöf heldur afmælistónleika og mun flytja tilviljanakennda blöndu af eigin lögum og annarra eins og henni einni er lagið. Klara Arnalds mun áð- ur þeyta skífum og ganga út frá þem- anu „soul“ fyrir Ólöfu. Ólöf Arnalds á Rósen- berg á morgun  Leikhópurinn Fullt hús frum- sýnir verðlauna- leikritið Póker eft- ir Patrick Marber hinn 8. janúar í Tjarnarbíói. Hópurinn samanstendur af ungum íslenskum leikurum sem lærðu hérlendis, í Dan- mörku og í London. Leikstjóri er Valdimar Flygenring og er þetta hans fyrsta leikstjórnarverkefni. Leikverkið Póker í Tjarnarbíói  Söngkonan Elíza Newman er nú stödd í London þar sem hún bisar við að semja texta. Hún tísti eftirfarandi í gær: „Sem texta á íslensku, svolítið ryðguð en þetta er allt að koma. Minnir að mér hafi tekist ágætlega til hér í gamla daga :) he- hemm …“ Þessi skila- boð frá söngkonunni gefa til kynna að ný breiðskífa sé í fæð- ingu, en sú síð- asta, Pie in the Sky, kom út 2009. Elíza Newman semur á íslensku Á miðvikudag Norðlaustlæg átt, 3-8 m/s og víða dálítil él, en aust- an 8-13 m/s og snjókoma eða skafrenningur sunnanlands. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-15 m/s, hvassast við austur- ströndina. Víða éljagangur eða snjókoma, en bjart syðra. Frost 1-12 stig, kaldast á Suðurlandi, en hlánar sums staðar við sjávarsíðuna. VEÐUR „Eins og venjulega þarf að gera margt á mjög stuttum tíma. Í raun má segja að við höfum tvær vikur til að vinna í sömu hlutum og félagslið gefa sér sex til átta vikur að vinna í,“ segir Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, en hann hóf lokaundirbúninginn fyrir Evrópumeistaramótið ásamt lærisveinum sínum í gær. »1 Margt að gera á stuttum tíma Gylfi Þór Sigurðsson skrifar í dag undir sex mánaða samning við velska knattspyrnufélagið Swansea City sem fær hann lánaðan frá Hoffenheim í Þýskalandi. Þar með eru nú fjórir ís- lenskir leikmenn í ensku úrvals- deildinni. »4 Fjórir Íslendingar í ensku úrvalsdeildinni Kári Steinn Karlsson hleypur ekki maraþon í Miami í lok mánaðarins eins og til stóð en hann býr sig undir keppni í greininni á Ólympíuleikunum í London í sumar. Hann leitar að hlaupi í staðinn í febrúar og mars og gæti þurft að fara um langan veg. Kári vann Gamlárshlaup ÍR þrátt fyrir veikindi og fer í dag til Suður-Afríku í æfingabúðir. »3 Kári Steinn leitar að hentugu maraþoni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Rafmagnslaust var í Grindavík að- faranótt nýársdags og aðstoða þurfti nokkur skip í höfninni þess vegna. Menn voru kallaðir út en ekki Sverrir Vilbergsson. „Þá þagði minn sími,“ segir hann, en um ára- mót lét Sverrir af störfum sem hafnarstjóri í Grindavík vegna ald- urs. Sverrir byrjaði á sjó 1958, þá 16 ára gamall, og hefur tengst höfninni síðan. Hann var lengi stýrimaður og skipstjóri á vertíðarbátum en hóf störf hjá höfninni 1987 og hefur verið hafnarstjóri frá árinu 2000. Miklar breytingar „Breytingarnar eru svakalegar á öllum sviðum,“ segir Sverrir um vinnuumhverfi sitt í rúmlega hálfa öld. „Hafnarskilyrðin hafa til dæmis gjörbreyst á þessum tíma.“ Sam- fara dýpkun hefur höfnin verið gerð aðgengilegri fyrir stærri skip, inn- siglingunni var breytt 1999 og settir upp garðar í kjölfarið. „Núna held ég að Grindavíkurhöfn sé einhver albesta höfn á landinu til að liggja í – hér er aldrei hreyfing á bát,“ seg- ir hann. Grindavík er mikill útgerðarbær og höfnin hefur gjarnan iðað af lífi. Sverrir rifjar upp að á tímabili hafi 50 til 60 bátar verið gerðir út frá Grindavík og fram undir 1980 hafi höfnin afgreitt upp í 100 báta á dag. Nú séu oftast 20 til 25 landanir á dag og fari mest upp í um 40 land- anir að dagróðrarbátunum með- töldum. „Með tilkomu kvótakerf- isins 1984 gjörbreyttist mynstrið,“ segir hann. Skip- um hafi ekki aðeins fækkað heldur séu flest nú í nokkurra daga útilegu og frystitogararnir allt upp í mánuð á sjó. Aðstæður hafa ekki aðeins breyst við höfnina heldur er allur aðbún- aður á skipunum allt annar og betri. Veiðarfærin hafa þróast og Sverrir segir ólíku saman að jafna, hvort sem litið sé á netaveiðar eða línu- veiðar. Með breyttu sóknarmynstri hafi löndunin líka breyst. Áður hafi fiskinum verið sturtað á vörubíls- pall og honum ekið í burtu en nú sé allur fiskur fluttur ísaður í körum og afgreiðslan á hverjum báti taki allt að sex stundir. Betri meðferð á aflanum taki meiri tíma. Sigurður Arnar Kristmundsson er tekinn við sem hafnarstjóri en Sverrir verður honum til halds og trausts næstu daga og jafnvel út mánuðinn. „Ég er formlega hættur og er nú bara starfsmaður á öxl.“ Sverrir nú starfsmaður á öxl  Hefur tengst Grindavíkurhöfn í yfir hálfa öld Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Við Grindavíkurhöfn Sverrir Vilbergsson hefur tengst höfninni í yfir hálfa öld og leitar senn á ný mið. Sverrir Vilbergsson segist ekki hafa leitt hugann að því hvað taki við þegar hann sest í helgan stein síðar í þessum mánuði. „Ég hef ekki hugsað um það og veit ekki hvort hugs- unin hellist yfir mig, þegar ég hætti endanlega,“ segir Sverrir. „Ég hef aldrei ver- ið rosalega skipulagður þannig að eitt taki við af öðru, en mér sýnist að önnur gamalmenni séu flest þannig að eftir að þau átta sig á því að þau séu hætt að vinna sé svo mikið að gera hjá þeim að þau megi ekki vera að neinu. Ætli ég verði ekki eins. Það var svolítið skrýtið að ég þurfti ekki að pæla í rafmagns- leysinu um helgina, en ég get gengið sáttur frá borði, hef engar áhyggjur og á golfkylfur og get því barið í bolta ef vill.“ Á kylfur og tilbúinn í golfið SVERRIR VILBERGSSON YFIRGEFUR HÖFNINA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.