Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 12

Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 siminn.is Greidd eru mánaðargjöld skv. verðskrá. Nánar á siminn.is Fleiri v E N N E M M / S ÍA / N M 4 9 4 2 0 Um leið og þú tengist Sjónvarpi Símans geturðu horft á opnu, íslensku stöðvarnar og færð fjórar erlendar stöðvar að auki. Á Plús-stöðvunum geturðu séð útsendinguna með klukkutíma seinkun. Sjónvarpið beint eða með klukkutíma seinkun Nýtt! Nú fylgja fjórar erlendar stöðvar Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Í nógu var að snúast hjá lögreglunni á Suðurnesjum og björgunarsveitar- mönnum á miðvikudagskvöld og í fyrrinótt, þegar veðrið var hvað verst á Suðurnesjum. Reykjanes- brautinni var lokað og umferð komst ekki aftur á fyrr en um klukkan hálf- ellefu í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Suður- nesjum var staðan hjá þeim orðin góð um hádegisbil, að undanskildum vandamálum með bíla sem skildir höfðu verið eftir víða með Reykja- nesbrautinni, sér í lagi við Grænás. Mjög erfitt ástand „Það var náttúrulega allt vitlaust á Suðurnesjum í nótt. Það var bara svo mikið að þeir réðu ekki neitt við neitt,“ sagði Ólöf Snæhólm Baldurs- dóttir, upplýsingafulltrúi Lands- bjargar. Hún sagði að um 20 hópar hefðu verið að störfum á Suðurnesj- um, þar af sex af höfuðborgarsvæð- inu. Verkefnin hefðu m.a. verið að aðstoða fólk sem sat fast í bílum á Reykjanesbrautinni og svo að koma þeim í burtu í morgun. Á þriðja hundrað bílar voru yfirgefnir þar í nótt. „Mjög erfitt og langt er síðan þeir hafa lent í svona, ef þá nokkurn tíma,“ sagði Ólöf. Þá voru um 60 björgunarsveitar- menn þegar mest var á höfuðborg- arsvæðinu að aðstoða fólk sem var í vandræðum í umferðinni. „Það var nú minna á landinu í gærkvöldi og í nótt en við bjuggumst við, svona miðað við spána,“ sagði Ólöf spurð um verkefni víðar á landinu. Þó vann leitarhópur að því að finna bilun á raflínu við Kópasker. Suðurnesjadeild Rauða krossins opnaði fjöldahjálparstöðvar í Reykjanesbæ upp úr miðnætti, en þar eyddu nóttinni 28 manns, sam- kvæmt tilkynningu frá Rauða kross- inum. Um var að ræða flugfarþega sem ekki komust frá Reykjanesbæ. Þeir komust til höfuðborgarsvæðis- ins þegar Reykjanesbrautin var opn- uð. „Fulltrúi Rauðakrossdeildarinn- ar á Suðurnesjum var einnig í Leifsstöð í nótt en farþegar sem gistu þar fengu teppi og aðra að- stoð,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum. Skv. tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði lög- reglan ökumenn sem sátu víða fastir. Í allnokkrum tilvikum voru bílarnir búnir sumardekkjum. Þá biður slökkviliðið á höfuðborg- arsvæðinu fólk um að leggja ekki bíl- um þannig að þeir hindri sjúkra- flutningamenn og aðra í störfum sínum. Þá eru bílstjórar hvattir til að hreinsa vel snjó af bílum sínum þannig að þeir hafi óskert útsýni og valdi ekki hættu í umferðinni. Allt varð kolvitlaust á Suðurnesjum  20 björgunarsveitarhópar voru að störfum á Suðurnesjum í óveðrinu  „Mjög erfitt og langt síðan þeir hafa lent í svona, ef þá nokkurntíma,“ segir upplýsingafulltrúi  28 manns gistu í fjöldahjálparstöð Morgunblaðið/Jakob Fannar Ýta Björgunarsveitarmenn hafa haft í nógu að snúast við að hjálpa fólki í óveðrinu sem hefur gengið yfir landið. Á heimasíðu Keflavíkur- flugvallar mátti sjá að umtals- verð röskun varð á morg- unflugi, bæði á komum og brottförum. Þá fóru áætlanir yfir daginn úr skorðum. Fyrstu brottfarir dagsins voru í há- deginu, en þá fóru alls 9 flug- vélar á loft, allar til Evrópu. Að sögn Guðjóns Arngríms- sonar, upplýsingafulltrúa Ice- landair, raskaðist allt morgun- flug þeirra til Evrópu. Ástæðan hefði fyrst og fremst verið ófærð. Aðspurður hvaða áhrif það hefði á annað flug félagsins sagði hann að seink- un yrði á öðru flugi yfir dag- inn, en að allt stefndi í að flug á þeirra vegum yrði kom- ið á áætlun á föstudags- morgni. Flugumferð á eftir áætlun ÓFÆRÐ RASKAÐI FLUGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.