Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
6
3 1
1 8
3 6 5 1
4 1 8
8 7
8 6 9 4 7 3
1 5 9 6
4 7
2 3 4
7
3 6 9 5
8 5
9 2
4 7 2 8
7 5
6
5 8 4 9 6 7
3
2 4 9
7 8
7 8
9 1
5 4 3 2
3 8 9 4
9 6 5 3
2 4 7
1 2 7 8 5 4 9 3 6
5 3 6 9 2 1 4 8 7
9 8 4 6 3 7 2 1 5
4 6 8 1 9 2 7 5 3
7 9 3 5 8 6 1 4 2
2 1 5 7 4 3 6 9 8
8 5 1 2 6 9 3 7 4
3 7 2 4 1 8 5 6 9
6 4 9 3 7 5 8 2 1
2 1 6 7 5 9 8 3 4
4 9 5 8 3 1 2 6 7
8 7 3 2 4 6 5 1 9
1 3 9 5 8 2 7 4 6
5 4 2 6 7 3 9 8 1
6 8 7 1 9 4 3 2 5
7 6 8 4 2 5 1 9 3
9 2 1 3 6 7 4 5 8
3 5 4 9 1 8 6 7 2
8 4 7 3 1 6 5 9 2
2 6 3 8 5 9 4 7 1
9 1 5 7 2 4 3 8 6
5 2 8 1 4 3 9 6 7
3 9 1 5 6 7 2 4 8
6 7 4 2 9 8 1 3 5
1 8 9 4 7 2 6 5 3
4 3 2 6 8 5 7 1 9
7 5 6 9 3 1 8 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 27. janúar, 27. dag-
ur ársins 2012
Orð dagsins: En hann frelsar hinn
bágstadda með bágindum hans og
opnar eyru þeirra með þrengingunni.
(Jb. 36, 15.)
Það er auðvitað eðlilegt að fólkkvarti undan snjónum. Það er
ekkert grín að þurfa að klöngrast
yfir skafla, aka um illfærar götur
eða fóta sig í flughálku, sérstaklega
ekki ef fólk er komið af léttasta
skeiði. Svo ekki sé nú talað um
slysahættu og snjóflóðahættuna.
Ekki má þó gleyma björtu hlið-
unum. Snævi þakinn trjágróður og
hvíta ábreiðan yfir grasbölum gerir
Reykjavík t.d. afskaplega fallega,
a.m.k. rétt á meðan snjórinn er hvít-
ur en ekki brúnn af völdum tjör-
unnar af götunum eða gulur af völd-
um hunda eða fullra karlmanna en
hvorugri þessara dýrategunda er
sérlega umhugað um hvar hún kast-
ar af sér vatni. Á meðan snjórinn er
svona mikill sést heldur ekkert í
leifarnar af flugeldunum sem var
skotið upp um áramótin eða hunda-
skítinn sem hundaeigendur hafa
ekki nennt að hirða upp. Er á meðan
er – það veitir ekkert af þessum
Pótemkíntjöldum.
x x x
Ekki má heldur gleyma börn-unum sem fagna snjónum. Í
ófærðinni getur ferð í snjónum orðið
eftirminnilegt ævintýri. Sum njóta
þeirra forréttinda að vera dregin á
sleða í skólann en önnur lenda í alls
kyns veseni í bílnum með mömmu
eða pabba á leið í skólann. Það þarf
að ýta bílnum, ýta öðrum bílum og
halda fyrir eyrun þegar formæl-
ingar berast úr framsætinu.
x x x
Nóg um snjóinn. Víkverji, sem ergagnrýninn að eðlisfari og
kaldhæðinn í þokkabót, getur ekki
stillt sig um að hrósa þeirri bráð-
góðu útvarpskonu Lísu Pálsdóttur á
Rás 1 á RÚV. Víkverji hlustar ekki
mikið á útvarp en af einhverjum
sökum kveikir hann oft óvart á við-
tækinu þegar þáttur frá Lísu er í
loftinu. Undantekningarlaust er um
frábært útvarpsefni að ræða –
hreinlega á heimsmælikvarða. RÚV
mætti reyndar alveg auglýsa þætt-
ina hennar meira og vekja betur at-
hygli á þeim á hlaðvarpinu sínu. Það
er óþarfi að fela útvarpsstjörnurnar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 allhvassan vind, 8
óskertar, 9 blossar, 10 slæm,
11 heimskingjann,
13 líkamshlutann, 15 troðn-
ingur, 18 metta, 21 sár, 22
eftirskrift, 23 gyðja, 24 óá-
leitnar.
Lóðrétt | 2 álíta, 3 lági tang-
inn, 4 sívalningur, 5 endist
til, 6 skipa niður, 7 hugsvala,
12 eyktamark, 14 fugl, 15
þjark, 16 býður byrginn, 17
opið, 18 sýkja, 19 látna, 20
kvenmannsnafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hagur, 4 gauða, 7 lítri, 8 rabba, 9 táp, 11 aðal, 13 æðin,
14 áferð, 15 bjór, 17 agða, 20 agg, 22 útlæg, 23 umráð, 24 auður,
25 túrar.
Lóðrétt: 1 halda, 2 gutla, 3 reit, 4 garp, 5 umboð, 6 akarn, 10
ágeng, 12 lár, 13 æða, 15 bjúga, 16 óglöð, 18 gárar, 19 arður, 20
agar, 21 gust.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Spilaheppni. V-Allir.
Norður
♠G98
♥432
♦Á3
♣ÁG1095
Vestur Austur
♠54 ♠76
♥ÁKD8 ♥G109
♦109876 ♦KG42
♣32 ♣K876
Suður
♠ÁKD1032
♥765
♦D5
♣D4
Suður spilar 4♠.
„Auðvitað er ég heppinn með spil,“
viðurkenndi Gölturinn. „Ég tek fleiri
slagi á kóngana mína en þið hinir takið
á ásana ykkar, svo í reynd má segja að
ég fái úthlutað fleiri ásum – og kóng-
um, drottningum og gosum líka, ef út í
það er farið.“
Gölturinn var í suður. Eftir þrjú
pöss opnaði hann á 1♠ og endaði sem
sagnhafi í fjórum. Vestur tók fyrstu
slagina á ♥Á-K-D, skipti svo yfir í
♦10.
Upprunalegt pass vesturs staðsetti
láglitakóngana í austur og Gölturinn
vann út frá því: drap á ♦Á, spilaði svo
♣Á og laufi. Austur dúkkaði grunlaus,
viss um einspil í suður. Eftirleikurinn
var handavinna; trompin tekin í tveim-
ur umferðum og trompsvínað í laufi.
Svona verður drottning að kóng í
höndum Galtarins.
27. janúar 1907
Kvenréttindafélag Íslands var
stofnað í Reykjavík, fyrir for-
göngu Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur, í þeim tilgangi „að
íslenskar konur fái fullt
stjórnmálajafnrétti á við karl-
menn“.
27. janúar 1946
Sósíalistar náðu meirihluta í
bæjarstjórn í Neskaupstað. Sá
flokkur og arftaki hans, Al-
þýðubandalagið, stjórnaði
bænum síðan í meira en hálfa
öld.
27. janúar 1960
Varðskipið Óðinn kom til
landsins. Því var beitt í þrem-
ur þorskastríðum og það tók
þátt í björgun um 370 skipa.
Skipið er nú hluti af Víkinni,
sjóminjasafninu í Reykjavík.
27. janúar 1960
Kardemommubærinn eftir
Torbjörn Egner var frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu. Í að-
alhlutverkum voru Róbert
Arnfinnsson, Emelía Jón-
asdóttir, Ævar Kvaran, Bald-
vin Halldórsson og Bessi
Bjarnason. Leikritið naut mik-
illa vinsælda.
27. janúar 2010
Seðlabankinn lækkaði stýri-
vexti í 9,5%, en þeir höfðu ekki
verið svo lágir í rúm fjögur ár.
Í tilefni af þessu létu veit-
ingamennirnir Tómas Tóm-
asson og Úlfar Eysteinsson
raka skegg sitt sem þeir höfðu
safnað í átta mánuði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Egill M. Guðmundsson arkitekt fagnar sextugs-
afmæli sínu í dag, föstudag. Útivist og ferðalög
um fjöll og firnindi í góðra vina hópi eru í
miklu dálæti hjá honum og hálendi Íslands er
þar efst á blaði. Afmælisdeginum ver hann hins
vegar á Flórída ásamt Vigdísi Magnúsdóttur,
eiginkonu sinni.
„Við sjáum til hvort ekki verður ástæða til að
halda síðar upp á afmælið með okkar góðu fjöl-
skyldu og vinum,“ segir Egill. „Það væsir hins
vegar ekki um okkur hjónin hérna á sundlaug-
arbakkanum í glampandi sólskini og í dag er
útlit fyrir að hitinn fari yfir 20 stig.“
Egill er einn af stofnendum og eigendum ARKÍS, arkitekta-
stofu, og segir að upp á síðkastið hafi rofað til í verkefnum arki-
tekta.
„Eftir hrunið drógust verkefni arkitekta sorglega mikið saman,
en þessi stétt finnur gjarnan fyrst fyrir áföllum. Nú er þetta hins
vegar að skríða upp á við og vísbendingar eru um betri tíð. Við
höfum líka leitað verkefna víða utan landsteinanna og náð tals-
verðum árangri í útflutningi á hugviti,“ segir Egill. aij@mbl.is
Egill M. Guðmundsson arkitekt sextíu ára
Í sól á sundlaugarbakka
Flóðogfjara
27. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.42 0,5 8.55 3,9 15.09 0,5 21.13 3,7 10.25 16.57
Ísafjörður 4.48 0,3 10.51 2,0 17.18 0,2 23.09 1,8 10.49 16.43
Siglufjörður 1.13 1,1 7.04 0,1 13.29 1,2 19.34 0,1 10.33 16.25
Djúpivogur 6.02 1,9 12.16 0,3 18.14 1,9 9.59 16.22
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Kurteisi kostar ekki neitt og hún á að
vera þitt aðalsmerki, jafnvel þótt aðstæður
fari eitthvað í taugarnar á þér. Hvers konar
hópvinna ætti að ganga næstu mánuði.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þetta er reglulega vondur dagur ef þú
hyggst leita til yfirmanns eða foreldra með
tiltekið efni eða biðja um leyfi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nýir vinir eru allt í kringum þig –
næst þér í biðröð, við hliðina á þér í umferð-
arteppu, að fara í sömu búð og þú. Nú verða
hlutirnir að breytast til að skapa smáspennu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ekki er allt sem sýnist og það er þitt
verk að komast að hinu sanna. Vertu viðbú-
inn að taka á móti því sem þú hefur beðið
um.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Tilraunir þínar til að fá aðra vinnu hafa
ekki borið mikinn árangur að undanförnu.
Góðar hugmyndir læðast hægt að þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú munt sennilega eiga mikilvægar
samræður við konu í fjölskyldunni þinni í
dag. Taktu þátt í umræðunum ef þú telur að
framlag þitt skipti einhverju máli.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sjálfsagt er að sýna skoðunum annarra
virðingu, þótt þær fari ekki saman við okkar
eigið álit. Leggðu þig fram af öllum mætti og
þá mun sigurinn falla þér í skaut.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Taktu þér tíma til að íhuga eigin
stöðu, farðu í naflaskoðun. Kröfuharka gerir
að verkum að þú blindast á eigin hæfileika.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú verður þú að bretta upp erm-
arnar og kippa þeim mörgu hlutum í liðinn
sem þú hefur látið dankast alltof lengi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ekki leggja út í eitthvert þras, það
er einfaldlega ekki þess virði. Knúsaðu fast
alla ástvini þína. Leyfðu líka öðrum að um-
vefja þig þegar þú þarft á því að halda.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ekki eyða orkunni i einskisverða
hluti. Leitaðu á önnur mið því það er fullt af
öðrum fiskum í sjónum. Líf þitt mun örugg-
lega breytast til batnaðar á einhvern hátt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er á svona augnablikum sem
maður áttar sig á því hversu mikilvægt er að
vera samvistum við fólk sem maður getur lit-
ið upp til. Feimni og hlédrægni liggja í loftinu.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Be2 Rf6 6. Rc3 Dc7 7. 0-0 Bb4 8. Dd3
Rc6 9. Kh1 Rxd4 10. Dxd4 Bc5 11. Dd2
h6 12. f4 d6 13. De1 Bd7 14. Dg3 Bd4
15. Bf3 Dc4 16. Bd2 Bc6 17. Hae1 0-0-0
18. Be2 Dc5 19. Bd3 g5 20. Df3 Hhg8
21. Ra4 g4 22. De2 Dh5 23. Bc3 Bxc3
24. Rxc3 Dc5 25. e5 Rd7 26. Re4 Bxe4
27. Bxe4 d5 28. Bd3 Kb8 29. Hb1 Hc8
30. b4 Dd4 31. De1 Rb6 32. b5 axb5 33.
Hxb5 Hc7 34. Da5 Rd7 35. Hfb1 Da7
36. Db4 Rc5 37. Bh7 Hgc8 38. Ha5 Ra6
39. Dd6 Ka8 40. Hb6 Hc6
Staðan kom upp á ofurskákmóti sem
lauk fyrir skömmu í Reggio Emilia á
Ítalíu. Heimamaðurinn og stórmeist-
arinn Fabiano Caruana (2.727) hafði
hvítt gegn rússneskum kollega sínum
Nikita Vitiugov (2.729). 41. Haxa6!
bxa6 42. Hxc6 Hb8 43. c3 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is