Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 40

Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 Forsvarsmenn tónlistarhátíð- arinnar Iceland Airwaves kynntu á opnum fundi á miðvikudaginn breytingar á fyrirkomulag hátíð- arinnar árið 2012. Í fyrsta sinn í ár verður 75 ís- lenskum hljómsveitum/listamönn- um boðið að spila á hátíðinni gegn 50.000 kr. greiðslu en 45 verður boðið að spila á hátíðinni án greiðslu. Þá verður 50 erlendum hljómsveitum/listamönnum boðið að spila á hátíðinni. Fjallað var um að árlega hafa forsvarsmennirnir boðið bókurum frá Eurosonic, Roskilde Festival, By:Larm, M for Montreal, SXSW, Sziget, Montreux Jazz festival, SPOT, Transmusicales, New York Summerstage, G Festival og Pop Montreal á Iceland Airwaves. Sömuleiðis hafa boðsmiðar verið sendir til blaðamanna á fjölmiðlum eins og Rolling Stone, GAFFA, Clash Magazine, Drowned in So- und, MOJO, SPIN, NME, DR, Ste- reogum, Radio Nova, La Blogothe- que, Eurowoman, Costume, Cover, Filter Magazine, Soundvenue, Da- zed and Confused, The Line of Best Fit, Politiken, Technikart, BBC Scotland og Metal Hammer. Þá hefur verið boðið á hátíðina samstarfsaðilum eins og Tom Wind- ish frá Windish Agency, Stephen Bass frá Moshi Moshi, Simon Ray- monde frá Bella Union, Alex Knight frá Fat Cat, Robert Raths frá Erased Tapes og John Rogers hjá Brainlove Records. Opnað verður fyrir umsóknir tónlistarmanna hinn 15. febrúar á heimasíðu hátíðarinnar, www.icel- andairwaves.is. Morgunblaðið/Golli Iceland Airwaves Opnað verður fyrir umsóknir tónlistarmanna 15. febrúar nk. Fá borgað fyrir að spila á Airwaves Þrjár kvikmyndir verða frum- sýndar um helgina. The Grey Flugvél með olíuleitarmenn innan- borðs brotlendir í óbyggðum Alaska. Þeir sem lifa brotlend- inguna af eru í vanda staddir því ekki aðeins er aftakaveður heldur eru þeir einnig án matar. Ekki bæt- ir úr skák að öll fjarskiptatæki hafa eyðilagst og því borin von að reyna að óska eftir hjálp. Svangir og særðir freista þeir þess að ganga til byggða en stór hópur úlfa verður var við mennina og þá vandast málin heldur betur. Stór- leikarinn Liam Neeson fer með hlutverk Ottway, leiðtoga olíu- leitarmannanna, en aðrir leikarar eru Dallas Roberts, Frank Grillo og Dermot Mulroney. RottenTomatoes: 74% IMDB: Engin einkunn komin Man on a Ledge Lögreglumaðurinn fyrrverandi Nick Cassidy er á flótta undan lög- reglunni. Hann klifrar út um glugga háhýsis á Manhattan og býr sig undir að taka eigið líf. Lög- reglusálfræðingur er sendur til að reyna að tala um fyrir honum en í ljós kemur að Cassidy telur sig hafa verið svikinn af háttsettum mönnum og dæmdur saklaus í fangelsi. Ekki er allt sem sýnist og upphefst spennandi atburðarás. Með aðalhlutverkin fara Sam Wort- hington og Elizabeth Banks. Rotten Tomatoes: 11% IMDB: Engin einkunn komin War Horse Nýjasta mynd Stevens Spielbergs gerist í Englandi árið 1915 og segir frá táningnum Alberti sem verður svo hugfanginn af folaldi nokkru að faðir hans kaupir það handa honum, þrátt fyrir lítil fjárráð. Al- bert gefur hestinum nafnið Joey og myndast afar sterk tengsl á milli þeirra. Sökum uppskerubrests neyðist faðir Alberts til að selja Jo- ey og er hann fluttur úr landi. Al- bert er að vonum afar ósáttur við þetta og einsetur sér að finna Joey og koma honum aftur heim. Með hlutverk Alberts fer Jeremy Irvine en í öðrum hlutverkum eru m.a. Peter Mullan og Emily Watson. Rotten Tomatoes: 77% IMDB: 74/100 Bíófrumsýningar Brotlending í Alaska og flótti undan lögreglunni Man on a Ledge Nick Cassidy segist sakaður um glæp sem hann framdi ekki. NÝJASTA MEISTARAVERK STEVEN SPIELBERG TILNEFND TIL4ÓSKARSVERLAUNA BESTA MYNDIN BESTA LEIKKONA - VIOLA DAVIS BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI - JESSICA CHASTAIN BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI - OCTAVIA SPENCER SPARBÍÓ 3D á sýningar merktar með grænu1.000 kr. NÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK -H.V.A. - FBL HHHH "FLOTTUR HASAR." -H.S.S. - MBL HHH SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI - TAKMARKAÐAR SÝNINGAR SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! „Einstaklega vel gerð spennumynd“ -Joe Morgenstern THE WALL STREET JOURNAL T.V. -Kvikmyndir.is HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI MÖGNUÐ SPENNUMYND HEIMSFRUMSÝNING TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYNDIN6 K.S. - NEW YORK POST HHHH R.C. - TIME HHHH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.