Morgunblaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Segja má að hrun hafi orðið í úreld-
ingu bifreiða frá hruninu haustið
2008. Skilagjald var greitt vegna
úreldingar um 2.800 bifreiða á ný-
liðnu ári og hefur aldrei verið greitt
vegna svo fárra bíla frá því að nú-
verandi kerfi var tekið upp í lok árs
2004. Þegar mest var voru ríflega
8.600 bifreiðar úreltar árið 2006.
Úrvinnslusjóður greiddi ríflega 40
milljónir króna í skilagjald á síðasta
ári vegna úreldingar bifreiða.
Ólafur Kjartansson, framvæmda-
stjóri Úrvinnslusjóðs, segir að bíla-
flotinn sé að minnka. Bílar sem skil-
að sé til úrvinnslu séu að eldast sem
bendir til að bílaflotinn í heild sé að
eldast. Eitthvað var einnig um að
bílar voru sendir á ný til útlanda og
þá var væntanlega fyrst og fremst
um nýrri bíla að ræða.
Skilagjald er greitt samhliða bif-
reiðagjöldum tvisvar á ári, alls 700
krónur árlega. Við úreldingu bif-
reiðar fær eigandi greiddar 15 þús-
und krónur, svo fremi engin opinber
gjöld hvíli á bílnum. Þá er yfirleitt
eftir að taka af bílnum dekk, olíur og
rafgeymi auk annars kostnaðar sem
kann að fylgja við úreldingu bifreið-
arinnar áður en hún getur farið í
brotajárn, þ.e. endurvinnslu.
Víða tekið við bílum
Margar stöðvar úti um land, oft á
vegum sveitarfélaga, taka við bílum
til úreldingar, en á höfuðborgar-
svæðinu eru fyrirtækin Hringrás,
Fura og Vaka atkvæðamest í þess-
um efnum.
Ólafur segir erfitt að segja til um
hver þróunin verður í framtíðinni.
Ef núverandi ástand dregst á lang-
inn og bílaflotinn eldist stöðugt má
búast við hraðri endurnýjun bíla-
flotans þegar forsendur skapast til
þess. Hröð endurnýjun getur skap-
að tækifæri til að innleiða hratt nýj-
ar gerðir af bílum eins og til dæmis
rafmagnsbíla, segir Ólafur.
Stöðugt færri bílar úreltir
Bílafloti landsmanna eldist og minnkar Skilagjald greitt vegna færri bíla í
fyrra en nokkru sinni áður Hugsanlega má búast við hraðri endurnýjun
Hrun í úreldingu bifreiða frá hruni
2005
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
2006 2007 2008 2009 2010 2011
7.476
8.619
7.997 8.316
5.077
2.990 2.802
Morgunblaðið/Ómar
Aldur Bílarnir hafa elst þó þeir séu
ekki jafn gamlir og á Kúbu.
Umsýsla
» Úrvinnslusjóður starfar
samkvæmt sérstökum lögum
og sér sjóðurinn um umsýslu
úrvinnslugjalds og ráðstöfun.
» Endurvinnslan hf. var stofn-
uð 1989 og sér um móttöku á
einnota drykkjarumbúðum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Metár var í skilum á umbúðum af
drykkjarvörum á síðasta ári. Af
seldum umbúðum skiluðu 86,5% sér
í endurvinnslu gegn greiðslu og
voru greiddar 1400 milljónir króna í
skilagjald í fyrra. Er þetta hækkun
um 200 milljónir frá árinu á undan.
Skilagjald hækkaði úr 12 krónum í
14 í byrjun síðasta árs og skýrir það
að mestu hærri endurgreiðslu, auk
vaxandi skila. Endurvinnslan hf.
gerir ráð fyrir að skil haldi áfram að
aukast á þessu ári.
Í nágrannalöndum eru skil á
umbúðum þau hæstu sem þekkjast
og gjarnan í kringum 90% í Skand-
inavíu. Fram eftir ári stefndi í að
skilin nálguðust það sem best ger-
ist, en á síðustu mánuðum ársins
dró nokkuð úr þeim. Skil hafa
gjarnan verið í kringum 83-84% af
seldum umbúðum, en þegar upp-
sveiflan var sem mest fóru skilin
niður fyrir 80%.
Í góðærinu var fólk svo ríkt
„Ég get mér þess til að í góð-
ærinu hafi fólk verið svo ríkt að það
hirti ekki um að halda umbúðunum
til haga og koma þeim í endur-
vinnslu. Strax eftir hrun jukust skil-
in aftur,“ segir Helgi Lárusson,
framkvæmdastjóri Endurvinnsl-
unnar hf. „Það ber líka að hafa í
huga að aukin vitund er að skapast
meðal fólks um umhverfisvernd og
fræðsla um endurvinnslu af ýmsum
toga hefur aukist.“
Eins og áður sagði eru nú
greiddar 14 krónur við skil á dósum
og flöskum fyrir umbúðir af
drykkjarvörum. Framleiðendur og
innflytjendur greiða þessa upphæð
þegar varan er markaðssett og í
fyrra var greitt vegna 115 milljóna
umbúða.
Greiðsla virðist lykillinn að því
að umbúðum sé skilað og nefnir
Helgi að í tíu fylkjum Bandaríkj-
anna er greitt skilagjald. Þar eru
skilin allt að þrisvar sinnum meiri
heldur en annars staðar í Banda-
ríkjunum þar sem fólk hefur engan
ávinning af skilunum.
Ýmis félagasamtök hafa tekjur
af söfnun drykkjarumbúða og má
þar nefna skáta, björgunarsveitir og
íþróttafélög. Þá hafa samtök eins og
Þroskahjálp og Fjöliðjan haft mögu-
leika á starfsþjálfun einstaklinga við
móttöku á einnota drykkjar-
umbúðum.
Óæskileg óhreinindi
Útflutningsverðmæti á plasti
og áli hefur vaxið með veikingu
krónunnar. Helgi segir að ávallt sé
reynt að fá sem hæst verð fyrir út-
flutninginn og biðji fyrirtækið við-
skiptavini að setja ekki óhreinindi
eins og sígarettur og annað rusl í
drykkjarumbúðir. Slíkt felli verð-
mæti afurðarinnar. Fyrir gler-
flöskur til endurvinnslu fæst ekkert
og því hefur verið leitast við að fá
framleiðendur til að framleiða úr
glæru plastefni (PET) eða áli.
Um 1400 milljónir
við skil á flöskum
og dósum á metári
Reiknað með auknum skilum í ár
Aukin skil á umbúðum
Krónur 1.400.000.000 í skilagjald árið 2011
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2006 2007 2008 2009 2010 2011
77,6% 78,6% 81,3%
84,3% 84,5% 86,52%
Hver einasti Íslendingur drekkur
að meðaltali úr einum drykkjar-
umbúðum á dag. Inni í því eru gos-
drykkir, vatn, áfengi, íþróttadrykk-
ir o.fl. Helgi Lárusson segir að
Endurvinnslan hafi áhuga á að
fjölga umbúðum í skilakerfinu. Nú
sé kerfið þannig að ekki sé greitt
skilagjald af vörum sem ekki eru
ætlaðar beint til drykkjar, þannig
sé ekki greitt skilagjald af ávaxta-
þykkni sem er ætlað til íblöndunar.
Þá sé ekki heldur greitt skilagjald
af próteindrykkjum sem innihalda
mjólk. Þetta flækjustig skilji neyt-
andinn ekki og vilji sé til að sam-
ræma þetta því um sams konar um-
búðir er að ræða.
Ein flaska eða dós á dag, en
kerfið getur ruglað neytandann
Morgunblaðið/Heiddi
Umbúðir Við endurvinnslu eru mörg handtök, en margir geta hagnast.
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 6. - 10. febrúar
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins
og við flest þekkjum hana, fararstjóri
Bændaferða, verður á skrifstofu
Bændaferða mánudaginn 6. febrúar
til föstudagsins 10. febrúar frá
kl. 10:00 - 16:00.
Það er því alveg upplagt að kíkja í
Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og fá
upplýsingar um ferðirnar.
Bændaferðir • Síðumúla 2
Tryggjum
öfluga
starfsemi
Sjóvá er aðalstyrktaraðili Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Nú hefur samstarfssamningur
félaganna verið endurnýjaður
til fimm ára.
Nýi samningurinn felur í sér
aukið samstarf á sviði forvarna
og öryggismála og felur í sér
aukna tryggingavernd björgunar-
fólks sem kemur sér vel fyrir þá
fjölmörgu sem taka þátt í sjálf-
boðaliðastarfi björgunarsveita
landsins.
Sjóvá hefur ávallt lagt mikla
áherslu á forvarnir. Meðal
forvarnarverkefna sem hafa
verið unnin í samvinnu við
Slysavarnafélagið Landsbjörg
má nefna áherslu á bætt öryggi
við meðferð skotelda með
notkun öryggisgleraugna,
þátttöku í starfi Slysavarnaskóla
sjómanna, SafeTravel, þar sem
fjöldi aðila tekur höndum
saman við að draga úr slysum í
ferðamennsku og ferðaþjónustu,
og að síðustu Vindakortið sem
sýnir ferðalöngum hættulega
vindasama staði á landinu.
Ferð þú á
Ólympíu-
leikana?
Einn heppinn viðskiptavinur
sem setur tryggingarnar sínar
á einn gjalddaga fyrir 1. apríl
vinnur þriggja daga ferð fyrir
tvo á Ólympíuleikana í London
í sumar. Innifalið er flug, gisting
og miðar á einhvern af
viðburðum leikanna. Það er til
mikils að vinna, því það verður
mikið um dýrðir á þessari
stærstu íþróttahátíð heimsins.
Það fylgja því margir kostir að
hafa allar tryggingarnar á sama
gjalddaga. Þú færð betri yfirsýn
yfir tryggingamál þín og kostnað.
Ef þú ert í Stofni færðu 30%
afslátt af kostnaði við greiðslu-
dreifingu, kjósir þú hana.
Það er einfalt að færa trygging-
arnar á einn gjalddaga á Mínum
síðum.
Mínar síður
eru málið
Mínar síður eru þjónustuvefur
Sjóvá. Þar getur þú nálgast allar
upplýsingar um viðskipti þín
við okkur, skoðað yfirlit og
skilmála, fylgst með kostnaði
og sótt rafræn skjöl, svo nokkuð
sé nefnt.
Ekki má gleyma að á Mínum
síðum innleysir þú Stofn endur-
greiðsluna þína, færir hana yfir
á bankareikninginn þinn eða
ráðstafar henni til góðgerðar-
mála. Í ár er Sjóvá stolt af
því að vera í samstarfi við
Líf – styrktarfélag, sem styður
Kvennadeild Landspítalans.
Ef þú ert ekki skráður notandi
þá hvetjum við þig til að fara
á www.sjova.is og virkja
aðganginn þinn.