Morgunblaðið - 04.02.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Forystumenn ríkisstjórnarinnarfögnuðu sjálfum sér mjög á
þriggja ára afmæli stjórnarsam-
starfsins og vöktu furðu margra
með fjarstæðukenndum málflutn-
ingi.
Einn hinna furðu lostnu varEinar K. Guð-
finnsson alþing-
ismaður, sem bend-
ir á í pistli á vef
sínum að Jóhanna
og Steingrímur hafi
haldið því fram að
samkvæmt ákvörð-
un meirihluta Al-
þingis sé nú verið
„að kanna til fullnustu kosti og
galla aðildar“ að ESB.
Um þetta segir Einar: „Gangaþá aðildarviðræðurnar við
ESB sem Samfylkingin tróð ofan í
VG þá út á það? Að kanna málin,
kíkja í pakkann? Er þetta þá bara
eftir allt saman eins konar könn-
unarleiðangur, þar sem Össur
Skarphéðinsson er leiðang-
ursstjóri?
Þetta er þvílíkt bull og rugl að
það tekur auðvitað ekki nokkru
tali.
Vitaskuld er ekki verið að kanna
kosti og galla aðildar. Það er verið
að freista inngöngu í ESB í sam-
ræmi við það sem stjórnarflokk-
arnir ákváðu og bera alla ábyrgð
á. Um þetta snýst málið og það er
auðvitað ömurleg og lágkúruleg
blekking sem formenn flokkanna,
ráðherrarnir Jóhanna Sigurð-
ardóttir og Steingrímur J. Sigfús-
son, bera á borð fyrir okkur í þess-
ari sjálfbirgingslegu blaðagrein.“
Hvers vegna eru hlutirnir ekkikallaðir réttum nöfnum?
Hvers vegna viðurkenna formenn-
irnir ekki að verið er að sækja um
aðild að ESB? Er það til að Stein-
grímur geti haldið því fram við
kjósendur sína að hann hafi ekki
svikið þá? Eða er tilgangurinn að
reyna að blekkja alla kjósendur,
ekki bara kjósendur VG?
Einar K.
Guðfinnsson
Umsókn er umsókn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 3.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 alskýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 2 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað
Vestmannaeyjar 5 alskýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló -15 heiðskírt
Kaupmannahöfn -7 léttskýjað
Stokkhólmur -11 snjókoma
Helsinki -13 snjókoma
Lúxemborg -7 heiðskírt
Brussel -6 snjókoma
Dublin 3 skýjað
Glasgow 2 léttskýjað
London 2 léttskýjað
París -2 heiðskírt
Amsterdam -6 skýjað
Hamborg -6 léttskýjað
Berlín -6 snjókoma
Vín -7 skýjað
Moskva -21 heiðskírt
Algarve 10 heiðskírt
Madríd 2 heiðskírt
Barcelona 6 léttskýjað
Mallorca 3 skúrir
Róm 1 þoka
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -7 þoka
Montreal -7 snjókoma
New York 2 heiðskírt
Chicago 2 alskýjað
Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:01 17:24
ÍSAFJÖRÐUR 10:21 17:14
SIGLUFJÖRÐUR 10:04 16:56
DJÚPIVOGUR 9:34 16:49
„Ég tel úrskurðinn leiða af sér óhóf-
legar hækkanir á gjöldum fólks sem
er með hesta í frístundaskyni og við
munum taka erindi Reykjavík-
urborgar til umfjöllunar á næsta
fundi nefndarinnar,“ segir Helgi
Hjörvar, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis, um erindi
Reykjavíkurborgar vegna álagn-
ingar fasteignaskatts á hest-
húsaeigendur.
Borgaryfirvöld ákváðu um ára-
mótin að hækka fasteignagjöld á
hesthús í þéttbýli til samræmis við
úrskurð yfirfasteignamatsnefndar,
þess efnis að skattleggja bæri hest-
hús sem atvinnuhúsnæði en ekki frí-
stundahúsnæði eins og sumarhús.
Hafði þetta í för með sér að fast-
eignagjöld fyrir meðalstórt hesthús
hækkaði úr 16 þúsund krónum í 134
þúsund kr.. Telur borgin úrskurðinn
ótvíræðan, en í fasteignalögum er
hvergi talað sérstaklega um hesthús
og gera þurfi greinarmun á atvinnu-
starfsemi í hesthúsum og frístund-
astarfi hestamanna.
Helgi hefur fengið erindi borg-
arinnar í hendur en næsti fundur
efnahags- og viðskiptanefndar verð-
ur í þarnæstu viku, þar sem kjör-
dæmavika er á Alþingi eftir helgina.
„Það verður skoðað með jákvæðum
hætti hvernig hægt er að bregðast
við þessu vandamáli,“ segir Helgi.
bjb@mbl.is
Óhóflegar
hækkanir
skoðaðar
Alþingi fjallar um
gjöld á hesthús
Morgunblaðið/Heiddi
Hestamennska Munur er á at-
vinnu- og frístundastarfsemi.
Frábærar McCain
franskar á 5 mínútum
Franskar kartöflur í sérflokki sem þú töfrar fram á
augabragði. Einföld og fljótleg matreiðsla og algjör
sæla fyrir bragðlaukana. Prófaðu núna!