Morgunblaðið - 04.02.2012, Síða 16
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Félagar í Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur sem sóttu um veiðileyfi á svæð-
um félagsins í sumar fá þessa dagana
uppgefið hvort óskir þeirra verða
uppfylltar. Að sögn Bjarna Júl-
íussonar, formanns félagsins, sóttu
2.060 félagar um veiðileyfi nú, örlítið
færri en í fyrra þegar umsóknir voru
um 2.100. Vinsælasta veiðisvæðið er
án efa Elliðaárnar en alls eru 650
hálfsdagsleyfi til úthlutunar í þessari
borgarperlu í sumar. Ríflega 760 A-
umsóknir bárust hins vegar um veiði
í ánum, langflestar í morgunveiði, og
ljóst er að um 90 félagsmenn sem
sóttu um veiðileyfi í Elliðaánum með
A-forgangi fá ekki leyfi í ánum að
þessu sinni.
Bjarni segir að eftir umsóknar-
ferlið sé ljóst að þorri veiðileyfa í
Norðurá sé seldur, en eitthvað er
laust af leyfum í upphafi veiðitímans
og í september. Nokkrar breytingar
voru gerðar á fyrirkomulagi í Hítará,
stöngum fjölgað úr fjórum í sex og
fæðiskylda afnumin, og segir Bjarni
leyfin þar hafa selst ágætlega, þótt
einhverjir dagar séu lausir undir lok-
in. „Við heyrum samt að mörgum
reynist erfiðara að manna sex stanga
holl en fjögurra,“ segir hann. Um
önnur helstu veiðisvæði félagsins
segir hann: „Elliðaárnar eru annars
uppseldar, Gljúfurá er mjög vel seld
og Sogið prýðilega. Hins vegar hef
ég áhyggjur af Tungufljóti í Skaft-
ártungu, ásókn í það hefur minnkað
verulega.“
Erfiður og dýr samningur
Bjarni segir að félagið sé með „erf-
iðan og dýran“ samning um Tungu-
fljót, sem löngum hefur verið talið
með bestu sjóbirtingsám landsins.
Það sé nú rekið með tapi.
„Margt spilar inn í. Steinsugan
sem hefur lagst á fiska hefur fælt
einhverja veiðimenn frá og veiðin
hefur verið slök í september síðustu
ár; þessar rosalegu veiðitarnir sem
við munum eftir þar á árum áður
hafa ekki komið síðustu árin.
Kannski er verðið líka á ystu mörk-
um þess sem menn þola. Þetta er
núna stærsta áhyggjuefnið.“
Annað áhyggjuefni félaga í SVFR
síðustu sumur hefur verið leigan á
silungasvæðunum í Laxá í Þing. „Nú
er ég bjartsýnn með svæðin í Mý-
vatnssveit og Laxárdal,“ segir Bjarni
um það. „Salan á leyfum þar er nán-
ast jafngóð eftir úthlutunina núna og
hún var eftir allt tímabilið í fyrra.
Það er betur selt í Mývatnssveitina
en Laxárdal. Við ákváðum að afnema
gistiskylduna seinni hluta tímabils-
ins og það virðist vekja lukku. Við
fáum líka talsvert af fyrirspurnum
um leyfi þar frá öðrum löndum.
Í fyrra hafði ég áhyggjur af sölu
veiðileyfa á silungasvæðinu í Laxá og
í Tungufljóti – nú hef ég bara
áhyggjur af Tungufljóti,“ segir
Bjarni.
Staðan var orðin erfið
Stjórn SVFR hefur tekist að snúa
rekstri félagsins við á síðustu miss-
erum, eftir mikið tap fyrstu árin eftir
bankahrun.
„Sveiflan í rekstrinum var í raun-
inni frá 75 milljón króna tapi upp í
núll, að teknu tilliti til ýmissa leið-
réttingarfærslna sem tilheyrðu í
raun fyrra ári,“ segir Bjarni og er að
vonum ánægður með þann árangur.
„Það er ekkert launingarmál að stað-
an var orðin frekar erfið en við telj-
um allt vera á réttri leið og sjáum
reksturinn skila ágætu í ár.“
Fleiri sóttu um Elliðaárnar en fá
Morgunblaðið/Einar Falur
Áhyggjur Kristinn Ágúst Ingólfsson með stóran birting sem hann veiddi í
Tungufljóti. Formaður SVFR hefur áhyggjur af dvínandi ásókn í veiðina.
Umsóknir um veiðileyfi jafnmargar og í fyrra Aukin ásókn í Mývatnssveitina Formaður
SVFR hefur áhyggjur af Tungufljóti Sjötíu og fimm milljón króna jákvæð sveifla í rekstrinum
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Talsvert hefur verið um að veiði-
réttur í laxveiðiám hafi verið boðinn
út á síðustu misserum. Í öðrum til-
vikum hafa leigutakar endurnýjað
samninga við veiðifélög, þótt samn-
ingstíminn sé ekki liðinn, og er sums
staðar um umtalsverða hækkun að
ræða.
Á dögunum var auglýst útboð í
Haukadalsá í Dölum, en hún er ein
af þekktari laxveiðiám landsins og
hefur Svisslendingur haft hana á
leigu um árabil. Veitt er á fimm
stangir í Haukunni og verður áin
leigð til fimm ára. Meðalveiði í ánni
frá 1974 er rétt tæpir 700 laxar en
metveiði var 1988, 1232 laxar.
Þá hafa verið opnuð tilboð í veiði-
rétt A-deildar Skjálfandafljóts, en
þar eru sex laxastangir og tíu sil-
ungastangir. Að sögn vefjarins votn-
ogveidi.is var hæsta boð 13,6 millj-
ónir en í fyrra voru greiddar um
fimm milljónir fyrir sumarleiguna.
Haukadalsá
fór í útboð
Rannsóknir sérfræðinga Veiðimála-
stofnunar á fiskistofnum og lífríki
Sogsins, leiða í ljós að viðkoma laxins
hefur verið léleg á efstu svæðum ár-
innar og að veitt hafi verið meira en
stofninn þolir. Þá virðast vatns-
borðshækkanir af völdum virkjan-
anna þriggja, fyrir ofan hið laxgenga
svæði, hafa valdið seiðum búsifjum.
Síðustu sumur hefur verið vaxandi
veiði í Soginu. Er sú staðreynd ekki í
samræmi við niðurstöður rannsókn-
anna, en hinsvegar er líklegt að neta-
uppkaup í Hvítá hafi aukið laxagöng-
ur og þar með veiðina.
Í samantekt um skýrsluna á vef
stofnunarinnar, veidimal.is, segir að
allt frá árinu 1986 hafi vísitala seiða-
þéttleika verið afar lág í efri hluta
Sogs og bregður svo við að á efstu
svæðunum hafi laxaseiði vart fundist
eftir árið 2000. Ennfremur segir að
þéttleiki eins árs laxaseiða í Sogi hafi
minnkað verulega á þeim tíma sem
mælingar hafa staðið yfir. Þéttleiki
þeirra hefur einnig minnkað í nálæg-
um ám, en minnkunin er þó mest í
Sogi. Aðalhrygningarsvæði laxa í
Sogi er á Bíldsfellsbreiðu en annars
staðar er hrygning dreifðari.
Rannsóknir sýna lélega
viðkomu laxa í Soginu
Morgunblaðið/Golli
Við Syðri-Brú Hrygning laxa virðist
ekki takast vel efst í Soginu.
Talsverða athygli vakti í haust er
samið var við tiltölulega nýstofnað
félag, Salmon Tails, um leigu á veiði-
réttinum í Laxá á Ásum, einni af
gjöfulustu og jafnframt einni dýr-
ustu laxveiðiá landsins. Aðeins er
veitt á tvær stangir í ánni, í 80 daga
á sumri, en engu að síður er með-
alveiði síðustu 30 ára rúmlega 1.000
laxar á sumri. Heyrt hefur til und-
antekninga ef Ásarnir hafa ekki ver-
ið með bestu meðalveiði á stöng yfir
landið allt. Fyrir höfðu Salmon Tails
leigt Mýrarkvísl, þverá Laxár í Að-
aldal, í eitt sumar.
Nokkur umræða var um það í
haust að nýir leigutakar myndu
hækka verð veiðileyfa um allt að
helming, en síðustu ár hafa stang-
irnar tvær verið seldar á hátt í hálfa
milljón króna dagurinn. Arnar Agn-
arsson, sölustjóri Salmon Tails, seg-
ir þær fréttir ekki eiga við rök að
styðjast, verðið sé það sama og síð-
ustu ár hjá fyrri leigutaka.
„Við byggðum verðskrá á því sem
við vissum að hefði verið í gangi áð-
ur. Við hækkuðum ekki. Umræður
um mikla hækkun veiðileyfa eru
ekki réttar,“ segir Arnar. Hann bæt-
ir við að vissulega sé verðið hátt en
áin hafi alltaf verið dýr. „Ef við skoð-
um verð veiðileyfa á Ásunum frá
1989 þá er áin hlutfallslega jafndýr
nú og hún var þá,“ segir hann.
„Á besta tíma sumarsins hafa út-
lendingar nánast eingöngu verið við
veiðar í ánni og svo verður áfram. Í
Laxá á Ásum hefur alltaf verið auð-
veldast að selja besta tímann, menn
koma ár eftir ár. Það hefur verið
sagt að hægt væri að selja bestu vik-
una, þá síðustu í júlí, fimm eða sex
sinnum. Íslendingar koma að veiða í
júlí og seint í ágúst og í september.
Salan hefur gengið vel og við lít-
um björtum augum til framtíð-
arinnar.“
Nýtt veiðihús að rísa
„Laxá á Ásum er ein af perlum ís-
lenskra veiðiáa og við vorum heppn-
ir að fá að leigja hana,“ segir Arnar.
Fyrir sumarið verður risið nýtt og
glæsilegt veiðihús við ána, rétt hjá
Sauðaneskvörn. Önnur breyting
verður nýr kvóti.
„Það hefur verið 10 laxa kvóti á
stöng á dag en nú verður leyfilegt að
drepa tvo laxa á dag, ef menn kjósa.
Við hvetjum til að menn sleppi laxi.
Það er gert til að vernda ána og er í
takt við það sem gerist í ánum í
kring; Miðfjarðará, Vatnsdalsá og
Víðidalsá, en í þeim hefur sífellt
meira verið sleppt af laxi. Það skilar
sér, í fleiri löxum og stærri.
Hátt hlutfall laxins í Laxá hefur
verið drepið en með þessum breyttu
reglum má gera ráð fyrir því að um-
talsvert fleiri laxar verði í ánni í
ágúst og september, hvernig sem
þeir annars taka,“ segir Arnar.
Kanna silungsveiði í ósnum
Ákveðnar nýjungar kunna að vera
í farvatninu hvað varðar veiði í Laxá
í Ásum, því nýju leigutakarnir á
þessum laxgenga hluta árinnar eru í
viðræðum við veiðifélagið um að at-
huga með að selja veiðileyfi í silung í
ósnum í maí og júní.
Laxá á Ásum deilir ósi með Vatns-
dalsá en á vesturbakka óssins hafa
veiðimenn á silungasveiði Vatns-
dalsár veitt sjógengna bleikju og
sjóbirting um langt árabil. „Það væri
spennandi að geta veitt silung þarna
á vorin og veiðin yrði eflaust jafngóð
og á silungasvæðunum í Vatnsdalsá
og Víðidalsá. Það er mikið af silungi
þarna,“ segir Arnar.
Gætu selt bestu vikuna fimm, sex sinnum
Ljósmynd/Hanna Kristín
Eftirsótt laxveiðiá Veiðimaður hefur landað laxi í Laxá á Ásum. Í sumar
verður kvótinn í ánni tveir laxar á dag en var tíu áður.
Nýir leigutakar minnka kvótann í
Laxá á Ásum Segja verð ekki hækka
100.000 kr. í Debenhams
Meikóver-dag með Kalla
Fjölda annarra vinninga
Sendu 5 toppa
af Merrild eða
Senseo-pökkum fyrir
17. mars til:
Merrild
Pósthólf 78
130 Rvk