Morgunblaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Á ferðakaupstefnuninni Mid-
Atlantic sem Icelandair heldur koma
kaupendur og seljendur ferðaþjón-
ustu saman. Kaupstefnan, sem er sú
stærsta sinnar tegundar á Íslandi,
er haldin árlega en þetta er í tutt-
ugasta skiptið sem hún fer fram.
Þarna eru meðal annars sam-
ankomnir fulltrúar frá hótelum, veit-
ingastöðum og fyrirtækjum sem
bjóða upp á skoðunar- og dagsferðir
af ýmsu tagi. Alls eru fulltrúarnir á
kaupstefnunni um 650 talsins frá
fimmtán löndum en þar af eru um
420 erlendir fulltrúar frá löndum
Evrópu og Norður-Ameríku.
Þeir erlendu fulltrúar sem Morg-
unblaðið ræddi við í Laugardalshöll-
inni í gær voru ánægðir með það
sem fyrir augu bar.
Ætlar að fjölga ferðum
„Þið getið farið að undirbúa ykkur
fyrir þá hjörð af ferðamönnum sem
ég á eftir að koma með hingað á
næsta ári!“ segir Fiona Brijnath,
framkvæmdastjóri Arcturus-
ferðaskrifstofunnar á Bretlandi sem
sérhæfir sig í ferðum á norðurslóðir.
Fyrirtækið hefur selt eitthvað af
ferðum til Íslands, mest til ein-
staklinga, para og minni hópa. Hún
segir áhugann á Íslandi og norð-
urslóðum almennt vera að aukast.
Hún skipuleggur aðallega ferðir að
sumarlagi en kaupstefnan gæti hins
vegar breytt því.
„Nú er ég búin að sjá hvað er
hægt að gera á veturna og þá ætla
ég að gera meira. Ég er búin að vera
að skoða ýmsar jeppaferðir. Bretar
elska allir Land Rover-jeppa þannig
að ef þeir komast upp í eitthvað
þeim líkt líður þeim eins og heima
hjá sér,“ segir hún og hlær.
Dominique Friedman er fram-
kvæmdastjóri Nortour í París en sú
ferðaskrifstofa skipuleggur meðal
annars starfsmannaferðir fyrir fyr-
irtæki. Hann segir að Ísland bjóði
upp á marga möguleika fyrir slíkar
ferðir. Þá segist hann hafa áhuga á
að þróa Ísland sem áfangastað fyrir
franska ferðamenn.
„Við viljum bjóða Frökkum upp á
ferðir sem tengjast náttúrunni og
venjulegu fólki. Við höfum skipulagt
ferðir til Lapplands í mörg ár og ég
held að við getum þróað eitthvað
nýtt en þó af svipuðum meiði hér. Ég
hef fundið fullt af áhugaverðum hlut-
um hérna til að gera um vetur,“ seg-
ir Friedman.
Hann segir að Frökkum finnist
þeir vera velkomnir á Íslandi vegna
þess að öll ferðaþjónustufyrirtækin
séu með fararstjóra sem tala
frönsku. Það sé ekki algengt á Norð-
urlöndunum. Áhugi Frakka á ferð-
um til Íslands fari vaxandi.
„Vissulega. Frá því að krónan
lækkaði er verðlagið svipað og í
Frakklandi og það hentar núna öll-
um tekjuhópum að koma hingað,“
segir hann.
Úrvalið að aukast
Ferðaskrifstofan America Scand-
inavia Travel Inc. í Minneapolis hef-
ur skipulagt ferðir til Noregs und-
anfarin 25 ár en síðustu fjögur árin
hefur hún staðið fyrir ferðum til Ís-
lands. Marv Kaiser, forseti félags-
ins, segir að það hefði komið hingað
fyrr ef verðlagið hefði verið hag-
stæðara. Aðstæður hafi batnað með
veikara gengi krónunnar.
„Síðustu ár hafa verið frábær og
fólk elskar að koma hingað. Við er-
um með þriggja til fjögurra daga
ferðir og á þeim tíma kemst fólk á
bragðið með um hvað Ísland snýst,“
segir Kaiser. Einn dagur í ferðunum
er frídagur þar sem fólk skipuleggur
sjálft hvað það vill gera. Kaiser seg-
ist vera að skoða ýmsar skoðunar-
og dagsferðir sem íslensku ferða-
þjónustufyrirtækin kynna á ferða-
kaupstefnunni til að geta gefið fólki
hugmynd um hvernig það gæti nýtt
daginn.
„Það er aðalmarkmiðið okkar hér.
Úrvalið hefur aukist mikið síðustu
árin og það er okkar að kynna það,“
segir hann.
„Fólk elskar að koma til Íslands“
Aldrei hafa verið fleiri þátttakendur en á tuttugustu árlegu Mid-Atlantic-ferðakaupstefnu Icelandair
Erlend ferðaþjónustufyrirtæki skoða úrvalið á Íslandi Kynna sér nýja möguleika í vetrarferðum
Morgunblaðið/Kristinn
Básar Ferðaþjónustufyrirtæki kynntu starfsemi sína hvert fyrir öðru á kaupstefnunni í Laugardalshöll í gær.
Fiona Brijnath Marv KaiserDominique Friedman
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
„Þetta
byggist á
því að leiða
saman þá
sem eru að
kaupa og
selja ferða-
þjónustu. Í
þessu til-
viki náum
við saman
yfir sex
hundruð aðilum,“ segir Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, um Mid-Atlantic
ferðakaupstefnuna.
Þátttakendur eru fulltrúar
ferðaskrifstofa, hótela, bíla-
leigna, skemmtigarða og marg-
víslegra annarra ferðaþjónustu-
fyrirtækja. Að auki taka þátt
ferðamálaráð á Norðurlöndum
og ferðamálaráð þeirra svæða
og borga sem Icelandair flýgur
til í Norður-Ameríku.
Guðjón segir þátttakendur
aldrei hafa verið fleiri frá upp-
hafi og það gefi til kynna að
kaupstefnan skili árangri. Auk
kynninga eins og þeirra sem
voru í Laugardalshöll í gær séu
fundir skipulagðir í kringum
kaupstefnuna og menn gangi
jafnvel frá samningum.
„Svo fylgir þessu líka alhliða
kynning. Stór hluti þessara er-
lendu gesta fer út fyrir borgina
og kynnir sér það sem ferða-
þjónustan hefur upp á að bjóða
í rauninni um allt land,“ segir
Guðjón.
Kaupstefnunni lýkur form-
lega í kvöld en verulegur hluti
þátttakendanna dvelst eitthvað
áfram á landinu.
Aldrei fleiri
þátttakendur
FERÐAKAUPSTEFNAN
Guðjón
Arngrímsson
Met var slegið í fjölda erlendra ferðamanna á landinu í
nýliðnum janúar. Frá því Ferðamálastofa fór að fylgjast
með fjölda erlendra ferðamanna hafa aldrei fleiri gestir
verið hér í janúarmánuði. „Ferðaárið 2012 fer vel af
stað,“ segir í tilkynningu Ferðamálastofu.
Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í janúar
sem leið og eru þetta 3.900 fleiri en í fyrra. Erlendum
gestum fjölgaði því um 17,5% á milli ára, segir í tilkynn-
ingunni.
Flestir ferðamennirnir voru frá Bretlandi eða 26,6% af
heildarfjöldanum. Um var að ræða verulega fjölgun frá
Bretlandi eða 53,7%. Næstfjölmennastir voru Banda-
ríkjamenn eða 15%. Þar á eftir komu Danir og Norð-
menn með 6,6% hvor þjóð, síðan Svíar með 5,5%, Frakk-
ar með 5,3% og Þjóðverjar voru 4,9% af
heildarfjöldanum. Ferðamenn frá þessum ríkjum voru
samtals 70,5% af erlendum ferðamönnum í janúar.
Fleiri ferðamenn en áður
Brottfarir erlendra gesta í janúar
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
20
03
20
04
20
05
20
06 20
07
20
08
20
09 20
10 20
11
20
12
Heimild: Ferðamálastofa
LOKSINS
FÁANLEG
AFTUR
Matreitt af ástríðu
Lærðu að rækta, tína, veiða, verka og nýta
– og elda síðan og framreiða það sem hollt er og gott
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
Spry tyggjó
með 100% xylitoli
Spry minnkar hættuna
á tannsteini.
Spry lækkar sýrustig í munni.
Spry styrkir tannglerunginn
og seinkar eyðingu hans.
Spry kælir og minnkar munnþurrk.
Spry heldur munninum hreinum.