Morgunblaðið - 04.02.2012, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
✝ Pálína Guð-jónsdóttir
fæddist að Forn-
usöndum, Vestur-
Eyjafjöllum, 29.
október 1914. Hún
lést að heimili
sínu, Berjanesi í
Vestur-Landeyjum,
28. janúar 2012.
Foreldrar Pál-
ínu voru hjónin
Guðjón Einarsson,
bóndi, f. 29.7. 1886, d. 30.8.
1968 og Guðríður Jónsdóttir,
húsfreyja, f. 20.6. 1886, d. 17.4.
1974. Systkini hennar eru: Ein-
ar Guðjónsson, f. 2.2. 1916, d.
29.8. 1982, Jón Guðjónsson, f.
27.3. 1917, d. 21.10. 1994, Sig-
urður Guðjónsson, f. 27.11.
1918, d. 31.7. 2007, Egill Guð-
jónsson, f. 15.1. 1921, d. 16.2.
1994, Sigríður Guðjónsdóttir, f.
17.9. 1923, d. 11.1. 2012, Elín
Guðjónsdóttir, f. 4.5. 1926 og
Guðlaug Guðjónsdóttir, f.
13.10. 1929. Uppeldissystir Pál-
ínu var Guðrún Auðunsdóttir,
f. 30.7. 1905, d. 9.9. 1991.
Einnig ólst upp á heimilinu
Hörður Runólfsson, f. 4.10.
1935.
Dóttir Pálínu er Erna Ár-
fells, f. 11.2. 1942, sambýlis-
maður hennar er Jón Guð-
sér húsnæði í Reyjavík og tók
að sér kjólasaum og fleira eftir
máli, oft á heilu fjölskyldurnar.
Þá gerðist hún ráðskona á
ýmsum vinnustöðum en lengst
vann hún 19 vertíðir í Hrað-
frystistöð Keflavíkur. Á þess-
um árum eignaðist hún marga
framtíðarvini. Alla tíð sat hún
við saumavélina þegar færi
gafst eða hún greip í prjónana,
heklunálina eða útsaumsnál.
Heima í Berjanesi var hún
samt alltaf á sumrin og hjálp-
aði til við heyskap og önnur
sveitastörf. Oft var margt um
manninn, hópur af sumardval-
arbörnum og öðrum gestum
svo ekki veitti af að allir tækju
til hendinni. Pálína var lánsöm
að eiga góða foreldra sem
hjálpuðu henni við uppeldi
einkadóttur hennar, Ernu, sem
hún eignaðist árið 1942. Síð-
ustu áratugina hafði hún alveg
búsetu í Berjanesi og tók full-
an þátt í að líta eftir ömmu-
börnum sínum og halda heim-
ili. Pálína var víðlesin og hafði
mikinn áhuga á landafræði og
sögu. Hún lagði mikið upp úr
því að varðveita gamla hluti,
t.d. átti hún skilvindu og
strokk sem hún notaði af og
til. Pálína lagði upp í þó nokk-
ur ferðalög um ævina, Þýska-
land og Írland voru í mestu
uppáhaldi en einnig ferðaðist
hún mikið innanlands.
Útför Pálínu fer fram frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljóts-
hlíð í dag, 4. febrúar 2012 og
hefst athöfnin klukkan 11.
mundsson, f. 6.4.
1939. Börn þeirra
eru: Guðmundur
Jón, f. 21.12. 1972,
sambýliskona hans
er Svandís Þór-
hallsdóttir, á hún
fjóra syni. Björg-
vin Pálmar, f. 1.1.
1975, sambýlis-
kona hans er Elfa
Björk Ágústs-
dóttir, börn þeirra
eru: Þórey, f. 30.6. 2007, Hild-
ur, f. 8.10. 2008 og Jón Ingi, f.
17.10. 2011. Gunnhildur Þór-
unn, f. 2.4. 1976, sonur hennar
er Sigurpáll Jónar, f. 26.1.
2004.
Árið 1931 fluttist Pálína
ásamt foreldrum sínum, systk-
inum og föðursystur sinni,
Margréti Einarsdóttur, frá
Fornusöndum og að Berjanesi
í Vestur-Landeyjum. Á Forn-
usöndum höfðu verið torfbæir
en er fjölskyldan flutti voru
gömul og léleg hús í Berjanesi
en fjölskyldan hjálpaðist að við
að byggja upp ný og betri
húsakynni á næstu árum. Um
tvítugt fór Pálína fyrst að
heiman og fór í vist til Vest-
mannaeyja, þar lærði hún m.a.
kjólasaum hjá Kristínu í
Merkisteini. Síðar leigði hún
Elsku amma, komið er að
kveðjustund. Á björtum laugar-
degi þegar gulgrænt grasið
teygði sig upp úr snjónum, var
stundin runnin upp. Ég er svo
óendanlega þakklát fyrir að hafa
verið hjá þér á síðustu metr-
unum, við upphaf ferðalags þín
yfir í annan heim. Það þurfti allt
að gerast strax ef þér datt eitt-
hvað nýtt í hug og þannig var
það líka þennan dag, þú kvaddir
okkur snögglega, þinn tími var
kominn.
Við fráfall þitt hrannast upp
minningar liðinna stunda. Þú
hafðir unun af lífinu og sást það
fallega í því litla og smáa. Já-
kvæðni þín og glaðværð var ein-
kennandi alla daga. Oft sátum
við með kaffibolla við eldhús-
borðið, í gamla húsinu þínu og
töluðum um lífið og tilveruna.
Stundum hélstu slid-
es-myndasýningar fyrir okkur
og sýndir myndir liðinna tíma,
þegar við systkinin vorum lítil. Í
þá daga kenndir þú okkur að
kveðast á, spila Marías og Púkk
og söngst t.d. fyrir okkur barna-
sálmana. Þú kenndir mér að
prjóna, hekla, sauma og annað
sem húsmæður þurftu að kunna.
Þér fannst alltaf meira varið í
konur ef þær kunnu að vinna
eitthvað í höndunum, stundum
sagðir þú: „Hún er eflaust dug-
leg og góð en ég held hún kunni
ekki að gera neitt í höndunum“.
Það var táknmynd hinnar góðu
húsmóður gömlu tímanna, að
búa til sína dúka og föt sjálf,
enda prjónaðir þú og saumaðir
fram á síðasta dag. Þú varst
mikil félagsvera en þó þú nytir
þín innan um fólk fannst þér líka
gott að vera ein og leiddist aldr-
ei, enda hafðir þú alltaf eitthvað
fyrir stafni. Ekki leist þér of vel
á saumaaðferðir mínar, að nota
ekki neitt snið en rúmlega tvítug
notaði ég þó snið er þú sendir
mig á námskeið þar sem ég
saumaði mér upphlut, allan
kostnað lagðir þú til því þér var
mikið í mun að ég ætti slíka flík.
Verð ég þér ævinlega þakklát
fyrir upphlutinn minn.
Við tengdumst alveg á nýjan
hátt þegar ég varð barnshafandi
og sagði þér fréttirnar, þú ljóm-
aðir og við áttum þetta leynd-
armál saman í smá tíma. Hann
Sigurpáll minn varð ekki síður
sólargeislinn þinn en hann er
minn. Þú varst alltaf svo spar-
söm en kvöldið sem hann fædd-
ist kveiktir þú öll ljós í húsinu
þínu, þá var sko ekki sparað.
Þrátt fyrir sparnað varstu örlát
þegar eitthvað var, mest spar-
aðir þú í sjálfa þig því þú varstu
búin að lifa tímana tvenna og
vissir hvað það var að þurfa að
nýta allt sem til var.
Þú vissir fátt skemmtilegra en
að ferðast, bæði innan- sem ut-
anlands. Síðasta ferðalagið þitt
fórstu í haust með eldri borg-
urum um nýjan Suðurstrandar-
veg en þá var keyrt um Suð-
urnesin. Það var svo gaman að
fá að aðstoða þig í þeirri ferð og
fylgjast með því hve gaman þér
þótti að heimsækja gamalkunnar
slóðir. Nú ferðast þú um á nýj-
um slóðum, skildir við húsið þitt
hreint og fínt, skúraðir og skipt-
ir á rúminu þínu á föstudeginum
eins og þú gerðir alla aðra föstu-
daga og varst að skera lifrar-
pylsuna í hrafnana þína á hádegi
á laugardaginn þegar kallið kom.
Nú ertu farin, en minningin mun
lifa um góða, hressa og
skemmtilega konu.
Góða ferð elsku amma.
Þín
Gunnhildur Þórunn.
Mínar helstu og bestu minn-
ingar um góða konu eru frá því
við eldhúsborðið í gamla húsinu
að spila og þá helst „gamal-
jómfrú“. Oft þegar ég var búin
að fara í fjósið á mínum yngri
árum var farið til Pálínu, spilað
og oftar en ekki fékk maður sér
skyrhræring og kandís, sem var
mjög gott.
Aðfangadagsmorgunn byrjaði
ávallt á því að fara í morgunkaffi
til Pálínu, færa henni smá jóla-
gjöf, taka við kortum til að bera
út til nágrannanna og svo var
spjallað, drukkið heitt súkkulaði
og borðaðar smákökur, yndislegt
að byrja jólahátíðina svona.
Oftar en ekki þegar ég horfði
út um gluggann heima í Ey var
Pálína að mála, setja niður kart-
öflur, hengja út á snúru, gefa
hænunum, já hún hafði sko alltaf
eitthvað fyrir stafni. Síðasta
heimsókn mín til hennar var
laugardaginn 14. janúar, en þá
var hún að skúra forstofuna.
Pálína
Guðjónsdóttir
✝ Kristinn HelgiGíslason fædd-
ist á Ólafsfirði 19.
nóvember 1936.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Fjallabyggðar 29.
janúar 2012.
Hann var sonur
hjónanna Sum-
arrósar Sigurð-
ardóttur og Gísla
Kristinssonar, þau
skildu. Sumarrós giftist Sigurði
Ringsted Ingimundarsyni.
Kristinn var alinn upp hjá föður
sínum, föðurafa Kristni Axel
Jónssyni og föðurömmu Helgu
Sigurlaugu Grímsdóttur. Alsyst-
ur Kristins eru Halla og Björk.
Systkini sammæðra eru Sólveig,
hún á soninn Gabríel Martinez,
Sigurður á þrjá drengi úr fyrri
sambúð með Svölu Sigurð-
ardóttur, Reyni Valdimar-
,sambýliskona hans er Hafdís
Gunnarsdóttir, þau eiga soninn
Mikael Aron, Kristinn Axel,
sambýliskona hans er Sólveig
Anna Brynjudóttir, þau eiga
dótturina Ásdísi Ýr, yngstur
barna Sigurðar er Hlynur Geir.
3) Íris Hrönn, f. 1979, sambýlis-
maður hennar er Ingvar Karl
Þorsteinsson, þau eiga þrjú
börn, Huldu Karen, Daníel
Hrafn og Kristínu Helgu.
Á yngri árum keyrði Kristinn
vörubíl sem hann átti í félagi við
föður sinn og frænda. Hann fór
einnig á vertíðir suður á land til
Keflavíkur og Vestmannaeyja.
Hann var síðan bæjarverkstjóri
í rúm fjörutíu ár hjá Ólafsfjarð-
arbæ.
Útför Kristins fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju í dag, 4. febr-
úar 2012, og hefst athöfnin kl.
14.
Bjarki, Þráinn, Lís-
bet, Rögnvaldur,
Sigurður, Rík-
harður og Hjörtur.
Kristinn kvænt-
ist árið 1965 Sigríði
Vilhjálms, f. 1943.
Börn þeirra eru: 1)
Gísli, f. 1961, kona
hans er Ragnhildur
Vestmann og eiga
þau þrjú börn; Frið-
rik Vestmann, sam-
býliskona hans er Agnes Sara
Rúnarsdóttir, Aldísi Völu, unn-
usti hennar er Sigurður Brynj-
ólfsson, yngst barna Gísla er Ás-
dís Ósk.
2) Sigurður, f. 1964, kona
hans er Þorgerður Jósepsdóttir,
þau eiga dótturina Lindu Rós,
Við vorum u.þ.b. 10 ára þegar
við kynntumst Kidda. Hann var
stór og karlmannlegur og okkur
fannst það spennandi þegar þau
voru að draga sig saman, hann og
stóra systir okkar.
Þau voru þrjú systkinin, Krist-
inn, Halla og Björk, börn Sumar-
rósar Sigurðardóttur og Gísla
Kristinssonar. Börnin voru ung
þegar þau hjónin skildu. Eftir það
ólust Kiddi og Björk upp hjá föður
sínum og föðurforeldrum en Halla
hjá öðru góðu fólki.
Eins og margir ungir menn í
Ólafsfirði fór hann á vertíð suður,
enda litla vinnu að hafa fyrir norð-
an á þessum árum. En stórhuga
bræður fyrir norðan létu ekki við
svo búið standa. Atvinnu þurfti á
staðnum. Magnús Gamalíelsson,
föðurbróðir Kidda, hóf saltfisk-
þurrkun í Ólafsfirði og Kiddi
keypti, ásamt föður sínum og föð-
urbróður, öflugan vörubíl til að
flytja saltfisk norður til þurrkun-
ar. Hugur þeirra frænda sést best
á því að keyptur var öflugasti
Benz vörubíll sem völ var á á þeim
tíma. Og Kiddi gerðist atvinnubíl-
stjóri. Það starf stundaði hann um
árabil. En Kiddi var ekki einham-
ur, dugnaðarforkur, í höndum
hans lék flest sem hann tók sér
fyrir hendur. Hann átti ekki í
neinum vandræðum með að
bregða sér upp í vinnuvélar og
hverskyns verkfæri léku í höndum
hans. Og þar kom að til hans var
leitað um að gerast verkstjóri við
hafnargerð í Ólafsfirði. Höfnin var
ekki merkileg á þeim tíma. En
með öflugum stuðningi bæjaryfir-
valda og traustum samstarfs-
mönnum tókst að gera höfnina að
þeirri lífhöfn sem hún er í dag.
Lengstan starfsaldur átti Kiddi
sem bæjarverkstjóri hjá Ólafs-
fjarðarbæ, í 40 ár. Á þeim tíma
voru nýjar götur lagðar, lagnir
endurnýjaðar, flestar götur mal-
bikaðar og bærinn varð raunar að
nútímalegum bæ. Þarna var Kiddi
í essinu sínu, ýmist ofan í skurðum
með skóflu í hönd, uppi í skurð-
gröfu eða stjórnandi flokki manna.
Hann gekk í öll störf.
Kiddi hafði sérstakt yndi af
gróðurstörfum og ræktun. Í gróð-
urhúsinu sínu ræktaði hann blóm
og plöntur og svo hafði hann skika
fyrir trjárækt.
Enginn maður var eins fiskinn
og Kiddi. Silungsgengd var alltaf
mikil í Ólafsfirði, bæði með fjörum
og í Ólafsfjarðarvatni og Kiddi
beinlínis mokaði fiskinum upp
meðan aðrir fengu varla bröndu.
Þær voru skemmtilegar veiðiferð-
ir með Kidda og frændum hans
Svavari og Sigurgeir um bjartar
sumarnæturnar í Ólafsfjarðar-
vatn.
Við eldhúsgluggann á Horn-
brekkuvegi 5 var sérstakur sam-
komustaður. Margir áttu leið í
kaffi hjá systur okkar. Húsið
stendur hátt og var því tilvalinn
útsýnisstaður. Í eldhúsinu var
spáð og spjallað, fylgst með um-
ferðinni í bænum og stundum tek-
ist á um menn og málefni. Þar átt-
um við margar skemmtilegar
stundir.
Hann kvaddi lífið eftir löng og
ströng veikindi. Auðvitað er eld-
húsglugginn á sínum stað en við
komum til með að sakna umræð-
unnar, hlátursins og hans Kidda
þar sem hann sat í horninu sinu.
Guð geymi góðan dreng.
Helga Björnsdóttir og
Sigurður Björnsson.
Kristinn Helgi
Gíslason
✝
Við þökkum innilega fyrir þann hlýhug og
auðsýnda samúð sem okkur var sýnd vegna
andláts og útfarar ástkærs sonar okkar og
bróður,
JÓNS ELLERTS TRYGGVASONAR.
Sérstakar þakkir fá Fylkismenn og vinir Jóns
Ellerts fyrir vinarhug og ómetanlegan
stuðning.
Inga Ásgeirsdóttir, Sæmundur Gunnarsson,
Tryggvi Sv. Jónsson, Erna Agnarsdóttir,
Arnar Þór Björgvinsson, Guðrún Björg Elíasdóttir,
Ásgeir Þór Björgvinsson, Svana Emilía Kristinsdóttir,
Elva Tryggvadóttir, Einar Ágústsson,
Ása Sif Tryggvadóttir, Þorsteinn Þór Traustason,
Sigrún Kjartansdóttir, Karsten Hoff,
systkinabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og systur,
ÁSDÍSAR KATRÍNAR
VALDIMARSDÓTTUR,
Skaftahlíð 40,
Reykjavík,
sem andaðist föstudaginn 6. janúar.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki líknardeildar Landspítala
Landakoti fyrir hlýhug og góða umönnun.
Ingimar Guðmundsson og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
VILHELMS INGIMUNDARSONAR,
Fróðengi 1,
Reykjavík.
Ragnhildur J. Pálsdóttir,
Hjörtur Ingi Vilhelmsson, Vilborg Sigrún Ingvarsdóttir,
Jóhanna E. Vilhelmsdóttir, Sigurjón Bolli Sigurjónsson,
Gunnar Vilhelmsson, Bjarnveig Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra móðurbróður og frænda,
JÓNS BRYNJÓLFSSONAR,
Blönduhlíð 16,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði.
María J. Guðmundsdóttir,
Gíslína Sigurbjörg Kauffman,
Brynjólfur Guðmundsson
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
HALLBJÖRN KRISTINSSON,
lést á Skógarbæ fimmtudaginn 12. janúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Við færum starfsfólki Skógarbæjar þakkir
fyrir umönnun og hlýju.
Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir, Helgi Gústafsson,
Kristín Björg Hallbjörnsdóttir,
Guðmundur Viðar Hallbjörnsson,
barnabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg frænka okkar,
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður Bröttukinn 2,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi miðvikudaginn 1. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarni Valdimarsson,
Eygló Valdimarsdóttir,
Halldóra Valdimarsdóttir.