Morgunblaðið - 04.02.2012, Qupperneq 38
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4. d4
Rf6 5. Rf3 g6 6. Rb5 Dd8 7. c4 Bg7 8. h3
O-O 9. Be2 c5 10. d5 a6 11. Rc3 b5 12. O-O
Rbd7 13. cxb5 Rb6 14. Re5 Rfxd5 15.
Rxd5 Bxe5 16. Rxb6 Dxb6 17. Dd5 Db8
18. b6 Bb7 19. Dxc5 Hc8 20. Da3 Bd5 21.
Hd1 e6 22. Be3 Hc2 23. Bf3 Bxb2 24. Da4
Hc4 25. Dxc4 Bxc4 26. Hab1 Be5 27. b7
Bd5 28. Bxd5 exd5 29. Hxd5 Bc7 30. Hd7
Be5 31. bxa8=D Dxa8 32. Bh6 De8 33.
Hbd1 Bf6 34. H7d6 Be7 35. He1 a5 36.
Hb6 Dd8
Staðan kom upp í B-flokki Corus-
skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee í Hol-
landi. Rússneski stórmeistarinn Alex-
ander Motylev (2677) hafði hvítt gegn
hollenska kollega sínum Sergei Tivjakov
(2677). 37. Hxe7! og svartur gafst upp.
Lokastaða efstu manna varð þessi: 1.
Pentala Harikrishna (2665) 9 vinninga af
13 mögulegum. 2.-3. Alexander Motylev
(2677) og Lazaro Bruzon (2691) 8 1/2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
38 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
3 7
2 7
8 4
3
4 2 8 9 5
5 8 3 2
7 4
2 6 8 9 5
8 2 3 6
5 1 2 3 7
8 6
8 7
1 7 4
4 6 1 2
5
7 4 8
6 1 2 5
8 9
8 2
9 1
2 9 5
7
6 1 3 2 7
3 1 7 6 9
9 6 7 2
8
6 8 9 5 3 7 2 1 4
2 5 7 4 1 6 9 3 8
1 3 4 8 2 9 7 6 5
5 9 6 3 4 8 1 2 7
8 1 2 7 6 5 3 4 9
7 4 3 2 9 1 8 5 6
4 6 1 9 7 3 5 8 2
9 2 8 1 5 4 6 7 3
3 7 5 6 8 2 4 9 1
9 5 8 7 2 4 6 3 1
2 3 1 5 9 6 8 4 7
7 6 4 8 3 1 2 5 9
5 1 9 2 8 3 4 7 6
4 8 2 6 1 7 5 9 3
3 7 6 4 5 9 1 2 8
6 2 3 9 4 8 7 1 5
1 4 7 3 6 5 9 8 2
8 9 5 1 7 2 3 6 4
6 7 9 8 5 3 4 2 1
5 8 2 4 9 1 3 7 6
3 1 4 6 7 2 5 8 9
9 6 7 5 1 4 2 3 8
2 3 1 7 8 6 9 4 5
4 5 8 2 3 9 6 1 7
8 2 3 1 6 5 7 9 4
1 4 5 9 2 7 8 6 3
7 9 6 3 4 8 1 5 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 4. febrúar, 35. dag-
ur ársins 2012
Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að
ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að
mér verði hjálpað, því að þú ert minn
lofstír. (Jer. 17, 14.)
Víkverji sá hið flotta verkFanný og Alexander sem
Borgarleikhúsið setti á svið og
frumsýndi í byrjun janúar. Verkið
byggir á æskuminningum Ingmar
Bergmans, þess þekkta leikhús-
og kvikmyndagerðarmanns. Nú ku
Borgarleikhúsið vera nýbúið að
frumsýna annað verk, Eldhafið,
sem hefur vakið mikla athygli en
Víkverji á eftir að sjá. Í um-
ræðunni um þetta leikverk varð
Víkverja allt í einu hugsað til þess
hvað leikhúslífið er blómlegt á Ís-
landi.
x x x
Fyrir utan stóru leikhúsin tvö,Borgarleikhúsið og Þjóðleik-
húsið, sem frumsýna í hverjum
mánuði vönduð verk að þá er
aragrúi af áhugaleikhópum að
gera góða hluti. Nánast sérhvert
bæjarfélag er með sitt leikhús
sem setur í það minnsta eitt verk
upp á ári.
x x x
Leikfélag Akureyrar er líklegaþekktast en það hefur oft
veitt stóru leikhúsunum tveimur
mikla samkeppni. Gæði leiksýn-
inganna hafa verið til jafns við hin
ríku og voldugu leikhús í Reykja-
vík.
x x x
En minna þekkt leikhús einsogNorðurpóllinn á Seltjarn-
arnesi og Hafnarleikhúsið hafa
einnig verið að gera spennandi
hluti í gegnum tíðina. Norðurpóll-
inn var ekki stofnað fyrr en 2010
en hefur þegar náð 15.000 manns
inná sýningar sínar.
x x x
Hafnarfjarðarleikhúsið er eldraen það sló í gegn árið 1995
með leikritinu Himnaríki og hel-
víti eftir Árna Ibsen. Það leikhús
á mikið lof skilið fyrir að hafa frá
upphafi styrkt frumsköpun og birt
íslensk verk og leikgerðir. Eitt-
hvað sem stóru leikhúsin mættu
leggja meiri áherslu á. En öllum
til hróss að þá er leikhúslífið
blómlegt á Íslandi. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lyfta, 4 plönturíki,
7 fiskúrgangur, 8 tuskan, 9
ávinning, 11 kvenmanns-
nafn, 13 þrjóskur, 14 krús,
15 hörfa, 17 galdratilraun,
20 nóa, 22 lélegrar skepnu,
23 laun, 24 að innanverðu,
25 drykkjumaður.
Lóðrétt | 1 ómjúka, 2 fá-
lætið, 3 siga, 4 gaffal, 5
stórsjór, 6 fífl, 10 dinguls,
12 keyra, 13 þekja, 15 líti,
16 lauslætisdrósin, 18
endurbót, 19 koma skapi
við, 20 sleif,
21 bút.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tónsmíðin, 8 glæða, 9 aflát, 10 Rán, 11 teikn, 13
syrpa, 15 hvarf, 18 safna, 21 róm, 22 miðli, 23 áferð, 24
tungutaks.
Lóðrétt: 2 ónæði, 3 skarn, 4 Írans, 5 illur, 6 ógát, 7 ótta, 12
ker, 14 yla, 15 híma, 16 auðnu, 17 Frigg, 18 smátt, 19 flekk,
20 arða.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í slemmuleit. N-AV.
Norður
♠K87
♥ÁD2
♦Á87
♣D1075
Vestur Austur
♠4 ♠G63
♥653 ♥K10984
♦KD10965432 ♦--
♣-- ♣K9643
Suður
♠ÁD10952
♥G7
♦G
♣ÁG82
Suður spilar 4♠.
Þú ert þátttakandi í sveitakeppni
Bridshátíðar. Makker þinn í norður
opnar á grandi (15-17) og næsti kem-
ur inn á 2♣. Vestur bankar í borðið
og veifar bláa „alert“-miðanum til
áréttingar: Þú spyrð og færð svarið
„lauf og annar“. Nú er freistandi að
stökkva í 4♠, en slemma er ekki langt
undan og þú ákveður að fara rólega í
sakirnar og doblar til úttektar. Vestur
segir 2♦ „leitandi“, makker pass og
næsti 2♥. Austur á sem sagt mjúku
litina. Þú krefur með 3♥ í von um 3♠
hjá makker, en þá segir vestur óvænt
4♦! Pass til þín og þú gefst upp á
slemmuleitinni, segir 4♠. Útspilið er
♦K.
Makker á draumaspilin í slemmu,
en þú lætur málið niður falla þegar
austur trompar ♦Á og vestur trompar
lauf í næsta slag.
4. febrúar 1898
Staðfest voru „lög um að-
greining holdsveikra frá öðr-
um mönnum og flutning
þeirra á opinberan spítala“.
Samkvæmt lögunum áttu
holdsveikir að „hafa borð-
búnað hvers konar er þeir ein-
ir noti“ og máttu ekki „að
nauðsynjalausu fara á aðra
bæi eða taka á móti gestum“.
4. febrúar 1968
Fárviðri gekk yfir Vestfirði og
var verst á Ísafjarðardjúpi.
Heiðrún II frá Bolungarvík
fórst með sex mönnum. Varð-
skipið Óðinn bjargaði átján
manna áhöfn breska togarans
Notts County sem strandaði
við Snæfjallaströnd. Annar
breskur togari, Ross Clevel-
and, sökk og fórust nítján
manns en einn, Harry Eddom,
fannst á lífi eftir hrakninga í
hálfan annan sólarhring.
4. febrúar 1968
Snjóflóð féll á tvö hús við Suð-
urgötu á Siglufirði en engin
slys urðu. Tæpum sjö árum
síðar féll aftur snjóflóð á sömu
hús.
4. febrúar 2003
Listasafn Háskóla Íslands
fékk 894 verk eftir Þorvald
Skúlason listmálara að gjöf úr
dánarbúi Sverris Sigurðs-
sonar, skissur, teikningar,
vatnslitamyndir o.fl. Áður
höfðu Sverrir og Ingibjörg
Guðmundsdóttir kona hans
gefið Háskólanum 140 lista-
verk.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það verða margir undrandi á því að ég skuli geta
haldið partý en mér tekst þetta alltaf einu sinni á
ári,“ segir Þorsteinn Guðmundsson, grínisti og
leikari með meiru, sem er 45 ára í dag. Hann held-
ur upp á daginn með partýi í kvöld.
„Það er spurning hvort og ég og félagar mínir í
nýstofnuðum gönguskíðaklúbb, förum á göngu-
skíði í hádeginu,“ segir Þorsteinn en þeir hafa
komið sér upp upp heimasíðu fyrir klúbbinn Létt-
feta. Skíðin hafa aðallega verið notuð í Heiðmörk.
„En ég hefði líka getað verið í miðbænum. Reynd-
ar er ég líka búinn að vera á Miklatúni en það er
svo mikill snjór að maður hefði getað hoppað bara út á gangstétt og
farið á gönguskíði,“ segir Þorsteinn enda sé þetta fyrsti veturinn, þar
sem hann fagni snjónum.
Þorsteinn er mjög önnum kafinn maður. „Ég er alltaf að búa til
auglýsingar með félaga mínum, Degi Hilmarssyni og við köllum okk-
ur Dag og Steina. Ég er að vinna að hugsanlegu sjónvarpsverkefni og
svo er Mottumars framundan sem ég ætla að taka þátt í. Síðan er ég
alltaf í Gamla Bíói með Pétri Jóhanni með uppistand,“ segir Þorsteinn
sem undirbýr ánægjulegt ævikvöld. sigrunrosa@mbl.is
Þorsteinn Guðmundsson, leikari 45 ára
Ánægjulegt ævikvöld
Flóðogfjara
4. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.09 3,2 10.34 1,3 16.36 3,0 22.41 1,1 10.01 17.24
Ísafjörður 6.13 1,7 12.39 0,6 18.40 1,6 10.21 17.14
Siglufjörður 2.05 0,5 8.27 1,1 14.56 0,3 21.15 1,0 10.04 16.56
Djúpivogur 1.22 1,5 7.42 0,6 13.35 1,3 19.41 0,5 9.34 16.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú þarft að koma þér upp dagbók
og skipuleggja tíma þinn betur. Reynið að
vera jákvæð gagnvart breytingum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Um þessar mundir gefur þú meira en
þú hefur efni á. Foreldrum er því ráðlagt að
hafa augum opin og gæta sérlega vel að
börnum sínum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér er allt að því ómögulegt að
hafa hugann við vinnuna í dag. Þú færð að
reyna sitthvað nýtt sem hefur varanleg áhrif
á líf þitt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fortíðin lætur á sér kræla með
leyndarmál í farteskinu, vísbendingar leyn-
ast í draumum og „deja vu“ upplifunum. Ný
hárgreiðsla væri frábær fyrir þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ljónið er sér hugsanlega ekki meðvit-
andi um forgangsröðun verkefna, þótt það
endurspegli hvernig það ver tíma sínum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er einhvern veginn eins og allt
sé nýtt úr kassanum i dag. Vertu ekki svo
stífur og þver að halda að þú einn hafir efni
á að dæma aðra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú fyllist mikilli ferða- og ævintýraþrá
af ókunnum ástæðum. Dugnaður þinn skilar
þér vel áfram og það er þægileg tilfinning
sem þú skalt njóta.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er ekkert rangt við það að
þig skuli langa til þess að létta á hjarta
þínu. Að öðrum kosti getur allt farið úr-
skeiðis.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu ekki skapið hlaupa með
þig í gönur því þá gæti illa farið. Farðu þér
hægt því tækifærin hlaupa ekkert frá þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er engin spurning að sér-
stakrar þolinmæði er nú þörf við þína nán-
ustu. Aðrir vilja bara að fólk hlusti. .
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Fólk sem hefur áhrif á vinnu þína
er ósanngjarnt, duttlungafullt og í litlu sam-
bandi við raunveruleikann. En þú verður að
hlýða skipunum fyrir því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Reyndu að vera raunsær og nota
skynsemina þegar kemur að væntingum
þínum í vinnunni. Farðu vel yfir stöðuna og
þá finnurðu hvað vantar.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is