Morgunblaðið - 06.02.2012, Page 29

Morgunblaðið - 06.02.2012, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012 Sumt er hafið yfir tíma og rúm  Meistaraverk The Flaming Lips: The Soft Bulletin hljómar jafn ferskt nú og platan gerði árið 1999 Klassík The Soft Bulletin hefur öðlast sess sem eitt helsta meistaraverk poppsögunnar og er á stalli með plötum á borð við Pet Sounds og Ok Computer. stóra sinfóníska hljómi sem ein- kennir plötuna. Skyndilega hafði myndast mikið pláss sem þurfti að gera tilraunir með hvernig ætti að útfæra. Að hluta til fóru þær til- raunir fram við gerð Zaireeka sem er mun hrárri en The Soft Bulletin en sveitin fékk að gera Zaireeka með því skilyrði að næsta plata yrði aðgengilegri. Þar sem sveitin hafði ekki hugmynd um hvernig platan ætti að hljóma fór mikil orka í að gera tilraunir og margir partar voru teknir upp aftur og aftur á ótal mismunandi vegu. Að hluta til skýrir það hversu víð- feðmur hljómurinn er. Viðtökurnar sem sveitin fékk voru líka mis- jafnar þegar afraksturinn var kynntur, fólk hélt t.a.m. að Race for the prize, þekktasta lag plöt- unnar, væri hálfgert grín þar sem hljómurinn á trommunum í laginu breytist svo mikið á milli kafla. Hugleiðingar um lífið og dauðann En það var ekki bara hljómurinn sem breyttist, textagerðin tók líka miklum breytingum. Coyne hafði verið vanur að semja súrrealíska texta um jólahald í dýragörðum og fleira í þeim dúr. Nálgunin á The Soft Bulletin er persónulegri þar sem hversdagslegar vangaveltur um lífið og dauðann eru áberandi ásamt sögum sem flestir geta tengt við, þó alltaf glitti í húmorinn og kæruleys- ið sem er svo stór og heillandi þátt- ur í karakter sveitarinnar. Góðar og áhugaverðar sögur eru gjarnan á bak við gerð margra platna. En The Soft Bulletin hefur náð að eldast betur en flest það sem gert var á tíunda áratugnum. Gald- urinn á bak við þetta tímaleysi er þó hugsanlega að finna í sögunni um gerð hennar. Með því að kafa í óvissuna og reyna að gera plötu sem enginn var virkilega viss um hvernig ætti að hljóma var hægt að gera tónlist sem fangaði augnablikið fullkomlega en ásamt því að fjalla um hluti sem eru hafnir yfir tíma og rúm á þann hátt að aðrir tengi líka. Zaireeka er áttunda platan sem sveitin gerir. Platan er fjórföld og nauðsynlegt að hafa fjóra geisla- spilara við höndina til að geta spil- að hana. Verkið er framhald á til- raunum sem sveitin gerði á bílastæðum þar sem sjálfboðaliðar mættu í bílum sínum – allt að 40 bílar – og spiluðu allir 20 mínútna langar spólur sem Wayne hafði útbúið og mynduðu eina heild. Sveitin náði að telja Warner- útgáfuna á að gera plötuna og næsta plata, sem var The Soft Bulletin, var innifalin í kostnaðinum. Galin snilld FJÓRFALDA PLATAN TÓNLIST Hallur Már Hallsson Hallurmar@mbl.is Nú eru liðin tæp þrettán ár frá útgáfu meistarastykkisins The Soft Bulletin frá síglöðu skynvillupönk- urunum í The Flaming Lips, sem eru frá Oklahoma af öllum stöðum. Platan hefur smátt og smátt öðlast sess sem tímalaust meistaraverk á meðal tónlistaráhugamanna, t.d. fær hún slétta 10 í einkunn hjá Pitchfork.com, indíbiblíunni ágætu þó reyndar sé ekki hægt að fletta dómnum upp. En hvað er það sem er svona gott við plötuna og hvern- ig varð hún til? Svarið við því má finna að hluta til í frábærri heim- ildarmynd sem er að finna á áð- urnefndri síðu þar sem rætt er hljómsveitarmeðlimina Wayne Coyne, Steven Drozd og Michael Ivins, upptökustjórann Dave Frid- mann ofl. um gerð plötunnar. Þar kemur fram að sveitin var á tímamótum þegar platan var gerð. Eftir að hafa átt smellinn She don’t use jelly í upphafi tíunda áratugarins var hljómsveitin þokkalega þekkt sem nokkuð hefð- bundin bandarísk nýbylgjurokk- sveit. Í stað þess að fylgja þeirri velgengni eftir með fleiri smellum hrundu sölutölur sveitarinnar. Drozd trommuleikari og færasti hljóðfæraleikari sveitarinnar átti við þráláta heróínfíkn að stríða. Ofan á það ákvað sveitin að gefa út plötuna Zaireeka sem kom út á fjórum geisladiskum – sem þurfti að spila alla samtímis til að tónlist- in hljómaði eins og ætlast var til! Galin hugmynd – en eins og allir vita er velgengni oft það eina sem skilur að snilld frá brjálæði. Á sama tíma hófust upptökur á The Soft Bulletin. Engir gítarar Þegar sveitin hóf upptökur hafði gítarleikari sveitarinnar haldið á önnur mið og ákveðið var að nýta það sem tækifæri til að bylta hljómi sveitarinnar sem var þekkt fyrir mikla gítarveggi. Lagt var upp með að engir gítarar myndu verða notaðir. Þó svo að í ein- hverjum lögum heyrist í gítar- plokki er þetta lykillinn að þeim MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS ONE FOR THE MONEY kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 ONE FOR THE MONEY kl. 8 - 10:20 2D VIP MAN ON A LEDGE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 CONTRABAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 16 CONTRABAND kl. 5:40 2D VIP 50/50 kl. 10:40 2D 12 PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5:40 2D L SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 - 10:40 2D 12 MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 8 2D 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 3D L / ÁLFABAKKA ONE FOR THE MONEY kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12 MAN ON A LEDGE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 WAR HORSE kl. 9 2D 12 J. EDGAR kl. 6 2D 12 UNDERWORLD: AWAKENING kl. 8 - 10:10 2D 16 PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5:40 2D L / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / AKUREYRI / SELFOSSI ONE FOR THE MONEY kl. 10 2D 12 WAR HORSE kl. 5 - 8 - 10:50 2D 12 J. EDGAR kl. 8 2D 12 SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:45 2D 12 PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5 2D L THE HELP kl.5 -7:10 2D L NÆSTU SÝNINGAR Á ÞRIÐJUDAG ONE FOR THE MONEY kl. 8 2D 12 CHRONICLE kl. 10:20 2D 12 SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:10 2D 12 50/50 kl. 8 2D 12 SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK ONE FOR THE MONEY kl. 8 2D 12 MAN ON A LEDGE kl. 10:10 2D 12 SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 - 10:10 2D 12 ÍSLENSKUR TEXTI HHHHH - ARIZONA REPUBLIC SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI „ENNÞÁ BESTIR“ HHHH KG-FBL LOS ANGELES TIMES HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI CHICAGO SUN-TIMES HHHH NÝJASTA MEISTARAVERK STEVEN SPIELBERG MÖGNUÐ SPENNUMYND K.S. - NEW YORK POST HHHH R.C. - TIME HHHH TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYNDIN6 YFIR 20.000 MANNS! STÓRSKEMMTILEG MYND MEÐ KATHERINE HEIGL Í AÐALHLUTVERKI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK M.M. - Biofilman.is HHHH T.V. - Kvikmyndir.is HHHH KATHERINE HEIGL Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA BYGGÐ Á METSÖLUBÓKUNUM UM STEPHANIE PLUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.