SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 2
2 29. janúar 2012 Við mælum með Fimmtudagur 2. febrúar Fáir aðalstjórnendur Sinfón- íuhljómsveitar Íslands hafa not- ið meiri hylli en Finninn Osmo Vänskä. Hann snýr nú aftur sem gestastjórnandi og stjórnar flutningi á Sjöttu sinfóníu Ma- hlers og Sieben frühe Lieder eft- ir Alban Berg í Hörpunni. Ein- söngvari á tónleikunum er Helena Juntunen. Morgunblaðið/Jim Smart Osmo í Hörpunni 26 Í herför gegn fitufordómum Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur hefur um nokkurt skeið verið ötul í baráttu gegn fitufordómum og hugmyndafræðin heilsa óháð holdafari hefur verið útgangspunktur í pistlum hennar og fyrirlestrum. 28 Ég vil skemmta með gleðinni Jóhannes Kristjánsson eftirherma ræðir um starf skemmtikraftsins, erfið veikindi sem hann glímdi við og nýtt hjarta sem hefur reynst vel. 31 Ekki nein stofnanatónlist Páll Ragnar Pálsson hefur verið við nám í klassískum tónsmíðum í Eistlandi síðustu ár. Hann var áður í rokksveitinni Maus. 34 Wallis fær uppreisn æru Madonna hefur gert mynd um Wallis Simpson, kon- una sem varð til þess að konungur afsalaði sér krún- unni vegna ástar sinnar. 36 Uppskriftabók með al- fræðiívafi Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson er höf- undur nýstárlegu matreiðslubókarinnar Silver of the Sea. 40 Gula og bláa undralandið Undralandið góða sem byggði frændi vor Svíi. Með einni góðri „sveita- ferð“ má redda heimilinu. Lesbók 42 Tvíræðar, vafasamar ... Um kveikjuna að röð ljósmyndaverka sem birtist í nýrri bók Katrínar Elvarsdóttur ljósmyndara, segir hún: „Að vera inni og horfa út.“ 47 Þetta eru allt átök Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona á síðasta orðið. 13 8 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Gunnar Geir Vigfússon af Margréti Þórhildi Danadrottn- ingu og Kristjáni Eldjárn forseta Íslands í Reykjavík árið 1973. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson. Eins og fyrri daginn hefur mannfjöldi safn-ast fyrir utan þinghúsið í logni og fallegrisnjódrífu. Eflaust myndu veðurvísir mennkalla það svikalogn. Það kemur á daginn að hópurinn fylgist með gjörningi listamannsins Santiagos Sierra og óhætt er að segja að gjörningurinn sé táknrænn. Það er verið að kljúfa heljarinnar grjót með því að reka fleyga þvert í það. „Fleygarnir eru komnir í og fólk bara bíður þess að það klofni,“ segir áhorfandi og fylgist spenntur með. En þarna er líka mótmælandi. „Ég er sjálfstæður mótmælandi,“ segir hún. Og kápan skreytt fjöl- breyttum málefnum. „Ég berst fyrir öryrkja, ég er í Siðbót og ég hef tvisvar setið í fangelsi fyrir Heima- varnarliðið. Auk þess tek ég að mér ýmis verkefni – ég hengdi til dæmis þennan makríl upp,“ segir hún og bendir upp í einn ljósastaurinn. Úti er kalt en inni er þingmönnum heitt í hamsi. Eftir að dagskrártillaga var lögð fram um morg- uninn, að vísað yrði frá tillögu Bjarna Benedikts- sonar um að draga til baka ákæruna á Geir Haarde, er fullyrt á þingpöllum að „skera hafi mátt and- rúmsloftið með hníf“. Í stiganum mætir blaðamaður Birgittu Jónsdóttur og Margréti Tryggvadóttur og spyr hvernig stemmningin sé. „Okkur langar bara í brennivín,“ svarar Birgitta. „Það hefur ekki gerst lengi. Ekki síðan við vorum sautján.“ Matsalurinn er auður. Aðeins Birgir Ármannsson í ræðustól á sjónvarpsskjá. Honum er þungt niðri fyrir. „Menn til dæmis heykjast við að svara þeim rökum, sem Róbert Spanó [forseti lagadeildar Há- skóla Íslands] hefur sett fram...“ Það liggur hins- vegar vel á matseljunni. „Það var steiktur fiskur í tilefni bóndadagsins, alveg rosalega góður.“ Svandís Svavarsdóttir er ábúðarfull í símanum í einu glerherberginu. Fyrir utan mætir blaðamaður Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra. Hann dregur ekkert undan þegar hann lýsir stemmning- unni í þinginu. „Það er frost,“ segir hann. „Frosta- veturinn mikli.“ Og má heyra að það eru hann, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Jón Bjarnason sem eru úti í kuldanum. Búið sé að draga upp „þum- alskrúfurnar“. Hann bætir brosandi við: „En þeir reyna það ekki við okkur.“ Um morguninn höfðu þau tíðindi gerst, að Atli Gíslason lögfræðingur og formaður þingnefnd- arinnar um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, lýsti því yfir að Alþingi hefði gert mistök, ann- aðhvort hefði þurft að ákæra alla eða engan – þess vegna væri mikilvægt að málið fengi aftur þinglega meðferð. Það er ekki lengur hægt að smala honum, þar sem hann er ekki lengur einn af köttum for- sætisráðherra. Þorgerður Katrín er komin í ræðustól og telur upp lögfræðinga og fræðimenn, sem hafa verið á einu máli um að landsdómsmálið sé þingtækt. „All- ir þegið laun,“ kallar Þór Saari fram í. „Allir þegið laun,“ ítrekar hann. Þorgerður Katrín bregst skjótt við: „Mér finnst vont að heyra hvernig hæstvirtir þingmenn vega að fólki úti í bæ sem getur ekki komið hingað í salinn og varið sig. Mér finnst það miður og slæmt ef þetta er breytingin á Íslandi og hið svokallaða nýja Ísland.“ Úti tollir grjótið enn saman. Skyldi það klofna? Pétur Blöndal pebl@mbl.is Morgunblaðið/Golli Skyldi það klofna? Össur og Jóhanna. Hann mætti óvænt í atkvæðagreiðsluna. Augnablikið Í enska bikarnum Tvö sigursæl- ustu lið enskr- ar knatt- spyrnu, Liverpool og Manchester United, mætast á heimavelli þess fyrrnefnda í dag, laugardag, kl. 12:45, í enska bikarnum. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Tíbrá Gyðingaljóða- flokkurinn op.79 eftir Shostakovitsj fyrir sópran, alt, tenór og píanó, verður fluttur í fyrsta skipti á Íslandi af Þóru Einars, Snorra Wium, Nínu M. Grímsdóttur og Nathalíu D. Halldórsdóttur í Salnum kl. 17 á sunnudag. www.noatun.is Fermingar- veislur Veisluþjónusta Nóatúns býður upp á úrval af hlaðborðum fyrir fermingarveisluna! pantaðu veisluna þína á 2100 Á MANN VERÐ FRÁ

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.