SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 39

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 39
29. janúar 2012 39 lenskir örlagaþættir, til og gjarnan gripið í. En auðvitað voru það ljóða- bækurnar sem skópu Tómasi nafn og þeirra kunnust er líklega Fagra veröld, sem út kom árið 1934. Yrkisefni skáldsins úr Grímsnesinu þar voru gjarnan mannlíf og svipmyndir í Reykjavík sem á þessum tíma var að breytast úr bæ í borg. Í vitund almennings þótti staðurinn ekki neitt sérstaklega fínn en bókin átti þátt í því að breyta viðhorfum. Reykjavík komst á kortið og Tómas varð hið viðurkennda borgarskáld. Tómas Guðmundsson lést í Reykjavík í nóvember 1983. Margir minntust hans þá í Morgunblaðsgreinum og þeirra á meðal var Gylfi Þ.Gíslason fv. menntamálaráðherra. Þar sagði hann að Tómas hefði haft meiri og dýpri áhrif á hugarheim heillar kynslóðar á Íslandi en nokkurt skáld annað á þessari öld. Hann hefði leitt fegurðina til hásæt- is í íslenzkum skáldskap, eins og Jónas Hallgrímsson. „Við hlið Jónasar er hann skáld fegurðarinnar í íslenzkum bók- menntum. En Fögur veröld Tómasar Guðmundssonar er ekki aðeins fágaður heimur göfugs listamanns, þar sem Stjörnur vorsins skína og vekja unað ástar og vináttu, — við Sundin blá er einnig gleði og fögn- uður, kímni og kátína. Jafnframt heyrist úr Fljótinu helga niður þeirrar lífsgátu, sem engin vísindi fá ráðið ... Tómas Guðmundsson er það skáld íslenzkrar þjóðar á þessari öld, sem kveðið hefur fegurð veraldar og fegurð mannlífs, ást og gleði ljúfast lof, og unnið frelsi og mannúð, ættjörð og arferni dýrust heit. Í kvæðum, sem munu lifa meðan íslenzk tunga er töluð, minnti hann okkur á að gleyma ekki bláu blómi, litlum fugli né helgu fljóti, — á það, sem gerist hvergi nema í hjörtum mann- anna.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Tómas Guð- mundsson er það skáld ís- lenzkrar þjóðar á þessari öld, sem kveðið hefur fegurð veraldar og fegurð mannlífs. Gylfi Þ. Gíslason. Síðustu tvö og hálft árið hefur Spitz líka gefið eigin gangverki aukinn gaum en hann fór í opna hjartaaðgerð sumarið 2009. Spitz, sem fagnar 49 ára afmæli sínu nú um helgina, fann fyrir and- nauð og lét lækni hlusta á sér brjóstið í örygg- isskyni. Fáeinum tímum síðar fór hann undir hnífinn. „Þetta var ótrúlegt. Kransæðin reyndist 90% stífluð. Hvernig gat þetta komið fyrir mig, mann sem æfir á hverjum degi, hvorki reykir né drekkur og sneiðir hjá rauðu kjöti? Finnir þú fyrir andnauð eða brjóstverkjum brunaðu þá beint til læknis. Fyrst þetta kom fyrir mig getur þetta hæglega komið fyrir þig!“ Dan Spitz er víð góða heilsu í dag. Gullaldarlið Anthrax: Frank Bello, Scott Ian, Charlie Benante, Joey Belladonna og Dan Spitz. ’ Hvernig gat þetta komið fyrir mig, mann sem æfir á hverjum degi, hvorki reyk- ir né drekkur og sneiðir hjá rauðu kjöti? Úrsmiðurinn Dan Spitz að störfum. Hún var í miklu uppnámi, unglings- stúlkan sem hringdi í neyðarlínuna frá heimili sínu í Flórída í Bandaríkj- unum eina nóttina fyrir skemmstu og óskaði eftir því að fá lög- reglufylgd í næsta unglingaathvarf. Ástæðan? Móðir hennar var að stunda kynmök með gesti í næsta svefnherbergi – með óhljóðum. Særði athæfið að vonum blygð- unarkennd aumingja stúlkunnar, sem er fimmtán ára. Þegar lögreglu bar að garði var móðirin full iðrunar og harmaði að ástarleikurinn hefði farið úr böndunum. Aldrei hefði staðið til að vekja dótturina. Eftir reki- stefnu féllst dóttirin á að vera um kyrrt á heimilinu. Óhljóð undir voðum Uss, uss, kona. 85 ára gömul kona í Alaska, Bandaríkjunum, vann mikla hetju- dáð á dögunum þegar hún bjargaði bónda sínum undan elg. Ekki vatnselg, heldur elgsdýri. Er það mál manna að Dorothea Murphy hafi bjargað lífi eiginmanns síns, George. Hjónin voru að viðra hundana sína í grennd við flugvöll- inn í Willow þegar illa upplagður elgur varð á vegi þeirra. George brá við þetta og stakk sér á kaf í snjóinn. Skipti þá engum togum að elg- urinn byrjaði að traðka á honum. Þá var Dorotheu, sem er 152 sentimetrar á hæð og vegur 44 kg, nóg boðið og barði hún elginn í haus og búk með skóflu. Við það kom styggð að dýrinu sem lagði á flótta. George var fluttur á spítala og er óðum að jafna sig. Elgur fékk það óþvegið Týpískur elgur. Maður úti að ganga með hundinn í gær 17 stiga frosti í Victory Park í rússnesku borginni Stavropol. Reuters Frost um víða veröld Skeggið á einum 1.100 skautahlaupara safnaði snjó og klaka meðan á 200 km skautahlaupi stóð í Techendorf í Austurríki í gær. Skóflan á lofti norðaustur af Búkarest í Rúmeníu gær. Herinn hefur verið kallaður út til að bjarga hundruðum ferðamanna sem sitja fastir í snjónum.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.