SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 20
20 29. janúar 2012
Gunnar segir það alls ekki hafa verið
sjálfgefið að hann legði fyrir sig ljós-
myndun, hvað þá að hann tæki við af
föður sínum sem ljósmyndari stjórn-
arráðins og forsetaembættisins. „Ég var
ekki með neina ljósmyndadellu sem
drengur og unglingur,“ upplýsir hann.
„Þetta bara gerðist. Ljósmyndun er ekk-
ert verri en hvað annað.“
Hann glottir.
Gaf syninum góð ráð
Vigfús sá um að mynda embættistöku
Kristjáns Eldjárns sumarið 1968 en upp
frá því fór hann að rifa seglin, orðinn 68
ára, og Gunnar tók smátt og smátt við.
Að sögn Gunnars dró faðir hans sig þó
aldrei alveg í hlé. „Hann var áfram með
hugann við ljósmyndina til dauðadags,
1984, og gaf góð ráð.“
Ógrynni mynda liggur eftir Vigfús af
ríkisstjórnum og forsetum þessa lands og
er það allt í fórum Gunnars og Berthu
systur hans. Hann segir ótvírætt hagræði
í því fólgið að hafa myndefnið á einum
og sama staðnum. Spurður hvort hann
langi ekki að gera eitthvað með þessa
sjötíu ára sögu þeirra feðga, svo sem að
setja upp sýningu eða gefa út bók, við-
urkennir Gunnar að það væri vissulega
gaman. Engin áform eru þó uppi um
slíkt – alltént ekki enn.
Ásgeir Ásgeirsson er eini forsetinn
sem tekið hefur ljósmyndara með sér í
opinberar heimsóknir erlendis, í tíð
Kristjáns Eldjárns, Vigdísar Finn-
bogadóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar
hefur hlutverk Gunnars einkum verið í
því fólgið að mynda opinberar heim-
sóknir forsetans innanlands og opinber-
ar heimsóknir erlendra þjóðhöfðingja
hingað.
Leiðtogafundurinn
minnisstæður
Spurður hvort einstakir viðburðir standi
upp úr nefnir Gunnar annars vegar op-
inbera heimsókn Margrétar Þórhildar
Danadrottningar árið 1973, en það var
fyrsta heimsóknin af þessu tagi sem
hann myndaði, og hins vegar leiðtoga-
fund Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta
og Mikhaíls Gorbatjovs, leiðtoga Sov-
étríkjanna, í Reykjavík 1986. „Sem ljós-
myndari forsetaembættisins fékk ég
mun betri aðgang að þeim en ljósmynd-
arar blaðanna. Leiðtogafundurinn var
mjög skemmtilegt verkefni.“
Gunnar segir alltaf jafnánægjulegt að
fylgja forsetanum í heimsóknir innan-
lands. „Það er augljóst af mannfjöld-
anum og viðtökunum sem forsetinn fær
að þessar heimsóknir skipta miklu máli
fyrir fólkið í landinu.“
Hann segir lítinn mun á því að mynda
Kristján, Vigdísi og Ólaf Ragnar. Þau hafi
öll verið boðin og búin að taka tillit til
þarfa ljósmyndarans. „Engan skugga
hefur borið á samstarf mitt við forsetana
allan þennan tíma. Þetta er allt mjög við-
kunnanlegt fólk, hvert á sinn hátt.“
Tíðar ferðir á Bessastaði
Gunnar hefur sinnt fleiri verkefnum fyrir
íslenska ríkið gegnum árin. Hann hefur
til dæmis myndað mikið fyrir bisk-
upsstofu og fjölmarga sendiherra er-
lendra ríkja hér á landi þegar þeir af-
henda forsetanum trúnaðarbréf sitt. Þær
myndir eru iðulega teknar á sama stað í
stofunni á Bessastöðum en hafa eigi að
síður mismunandi blæ enda fólkið eins
ólíkt og það er margt.
Ferðirnar á Bessastaði eru orðnar ófáar
og líklega hafa fáir núlifandi Íslendingar,
sem ekki eru fastráðnir við embætti for-
seta, komið þangað oftar en Gunnar. „Þú
segir nokkuð,“ segir hann og veltir vöng-
um. „Ég hef satt best að segja ekki hug-
leitt þetta.“
Forsetakjör er framundan á þessu ári og
mögulega tekur nýr húsbóndi við á Bessa-
stöðum. Gunnar segir það ekki í sínum
verkahring að ákveða hvort hann verði
áfram ljósmyndari embættisins en kveðst
vel geta hugsað sér það. „Meðan heilsan
leyfir gef ég áfram kost á mér í starfið. Ég
hef haft reglulega gaman af þessu alla
tíð.“
Fyrsta ríkisstjórnin sem Gunnar Geir myndaði á Bessastöðum árið 1974.
Ljósmynd/Gunnar G.Vigfússon
Núverandi ríkisstjórn mynduð af Gunnari um síðustu áramót.
Ljósmynd/Gunnar G.Vigfússon
Sveinn Björnsson á leið í land í opinbera heimsókn. Oft var farið með varðskipum. Til hægri er Guðmundur Kjærnested, síðar skipherra.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
’
Engan skugga hefur
borið á samstarf
mitt við forsetana
allan þennan tíma. Þetta
er allt mjög viðkunn-
anlegt fólk, hvert á sinn
hátt.