SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 13
29. janúar 2012 13 Plássið fyrir fæturna á gestum hátískusýningar Cha-nel í París í vikunni, virtist vera nægt. Að minnstakosti var þarna nóg fyrir augað. Hönnuðurinn KarlLagerfeld lýsti því yfir eftir sýninguna að það væru yfir 150 tónar af bláum lit í fatalínunni, sem samanstóð af um 60 alklæðnuðum. Hin sígilda samsetning af svörtum og hvítum lit var þarna líka en Lagerfeld er hrifinn af svörtu. Lagerfeld kann að meta orðaleiki og sagði bláa litinn tengjast „Blue Moon“ með Elvis, Kind of Blue með Miles Davis og bjartsýni heiðblás himins. Hann sagði hann tengjast öllu nema blús, hann væri ekki þunglyndur. Útlínan var afslöppuð. Mittið var lágt, það lágt að Lagerfeld sagði að það ætti að minna á stráka sem ganga um með buxurnar á hæl- unum. Meira að segja síðkjólarnir voru með vasa sem lögðu áherslu á þessa línu. Efnin voru auðvitað ekki nema þau fínustu og mikið um útsaum og handavinnu að hætti hátískunnar. Sviðið var „flugvél“ að hætti Lagerfelds með Chanel-lógóinu í teppinu. Það er varla mikið mál fyrir Lagefeld að láta búa til eitt stykki flugvélasvið en hann hefur áður flutt ísjaka til Parísar, búið til garð í höll og byggt minnisvarða um frægustu tösku tískuhússins. Í þessari flugvél var meira að segja „flugstjórnarklefi“ og auðvitað kom enginn annar en hönnuðurinn sjálfur út úr honum að sýningunni lokinni. Mikil handavinna liggur að baki þessum fallegu hátískukjólum. Hárgreiðslan var oftar en ekki pönkuð að hætti fyrirsætunnar Alice Dellal, sem var skemmtileg andstæða við fínu kjólana. Á fyrsta farrými Karl Lagerfeld fór með gesti á flug um tískuheim sinn á há- tískusýningu Chanel í París. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Reuters Það vantar ekki hugarflugið hjá Karli Lagerfeld en sýningin fór fram í rými sem leit út fyrir að vera flugvél.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.