SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 12
12 29. janúar 2012
Hún var dálæti margra á ísn-um, kraftmikil og brosmild;eini skautahlauparinn í sög-unni til að fara heljarstökk
aftur á bak og lenda á öðrum fæti í
keppni. Surya Bonaly átti sannarlega
glæsilegan feril en samt vantaði herslu-
muninn til að skáka þeim allra bestu.
Bonaly varð franskur meistari níu ár í
röð (1989-97) og Evrópumeistari fimm
sinnum í röð (1991-95) en gullið á heims-
meistaramótum og Ólympíuleikum gekk
henni iðulega úr greipum. Næst því
komst Bonaly líklega á heimsmeist-
aramótinu í Japan 1994. Flestir héldu að
hún hefði skautað til sigurs en þegar upp
var staðið afhentu dómendur heima-
stúlkunni Yuka Sato gullið. Bonaly
móðgaðist eftirminnilega og stóð við hlið
pallsins við verðlaunaafhendinguna en
ekki á honum í mótmælaskyni. Strax að
athöfninni lokinni reif hún af sér
silfrið – áhorfendum til ama. „Ég
er bara óheppin,“ sagði Bo-
naly við fréttamenn á eftir,
útgrátin.
Sami þátturinn varð Bo-
naly að falli í Japan og á öðrum
stærstu mótunum, æfingar henn-
ar voru sem endranær spartverskar en
það vantaði upp á mýktina. Bonaly skor-
aði alltaf lágt á listfengi-skalanum.
Besti árangur hennar á Ólympíuleikum
er fjórða sætið í Lillehammer 1994.
Ekki frá Réunion
Surya Bonaly fæddist í Nice í Frakklandi
1973 og er því 38 ára gömul. Hún var ætt-
leidd af leikfimikennaranum Suzanne
Bonaly og bónda hennar, Georges, sem
var arkitekt. Lengi vel hélt Surya litla að
hún væri fædd á eyjunni Réunion í Ind-
landshafi en svo reyndist ekki vera,
blóðmóðir hennar er aftur á móti þaðan.
Bonaly-hjónin sögðu dóttur sinni
þetta þar sem þeim þótti Réu-
nion meira framandi en Nice.
Fyrsti þjálfari Bonaly, Di-
dier Gailhaguet, skrökv-
aði þessu líka í þeirri
von að fjölmiðlar
tækju frekar
eftir stúlk-
unni.
Ekki var
þó þörf
fyrir
klæki af
þessu tagi því Surya Bonaly var ekki
aðeins undrabarn á ísnum heldur líka
hrífandi persónuleiki. Varð hún fyrir vik-
ið snemma yndi fjölmiðla og ekki síður
skautahreyfingarinnar. Var til að mynda
send um víðan völl að kynna greinina,
meðal annars til Íslands. Hingað
kom hún árið 1992 til sýningahalds
og hefur án efa gefið íþróttinni
byr í seglin.
Eftir að Bonaly lagði keppn-
isskautana á hilluna 1998 flutti
hún til Bandaríkjanna og fékk þar
ríkisborgararétt árið 2004. Hún
ferðaðist um tíma með farandsýn-
ingunni Champions on Ice um Bandarík-
in og sýndi gömlu góðu trixin. Eftir að
sýningin lagði upp laupana 2007 hefur
Bonaly fengist við þjálfun í Las Vegas.
Hún hefur ekki stofnað til eigin fjölskyldu
en býr með móður sinni.
orri@mbl.is
Suryu Bonaly?
Hvað varð um …
Surya Bonaly í sínu fínasta pússi.
Fyrr skautar Bonaly nakin
en í loðfelldi. Hún auglýsir
reglulega fyrir PETA-
samtökin.
Bonaly hafði meiri
stökkkraft en gengur
og gerist á ísnum.
Þriðjudagur
Anna Lóa Aradóttir
Að sjálfsögðu ætlum
við ekki heldur að
læra af reynslunni,
hvað ætli margar
konur séu enn með
alræmdu Dow Corn-
ing-púðana sem settir voru í á
LSH. Ætli þær hafi verið leitaðar
uppi eins og þær sem kannski
hefðu fengið Tófú túttur í útlönd-
um … Efast um það, held samt að
Dow Corning séu með þeim al-
verstu ever.
Sigurður Svavarsson
finnur fyrir bráðri
handboltaóeirð og
tekur sér hlé – har-
pixklístrið fer líka svo
illa með lykla-
borðið …
Miðvikudagur
Otto Tynes gaf skít í
veðrið og keypti sér
sólgleraugu.
Dagur Gunnarsson
Af hverju er myndin í
nýja vegabréfinu
mínu gul?
Fésbók
vikunnar flett