SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 31
29. janúar 2012 31
Páll Ragnar Pálsson gekk lengstaf undir nafninu Palli í Mausen rokkhljómsveitin Maus ernú hætt störfum eftir langan
og farsælan feril. Páll Ragnar er enn í
tónlist, nema af öðrum toga, en hann
er í doktorsnámi í klassískum tón-
smíðum í Eistlandi. Hann flutti til
landsins árið 2007, „á hápunkti góð-
ærisins“, og fór í meistaranám.
„Mig langaði að fara til staðar sem
væri aðeins út úr þessari venjulegu leið
og eftir miklar pælingar varð Tallinn
fyrir valinu,“ segir Páll sem hafði ekki
komið þangað áður. „Ég vissi ekki al-
veg hvað ég væri að fara út í,“ segir
hann en ákvörðunin hefur reynst af-
drifarík en í Eistlandi kynntist hann
núverandi kærustu sinni Tui Hirv og
eiga þau saman eitt barn, Eirík Hirv.
Greinilegt er að honum þykir vænt um
nýja heimalandið og er búinn að kynn-
ast því vel.
Hann fór úr góðærinu hér til Eist-
lands. Þar ríkti vissulega líka góðæri en
engu að síður voru það mikil viðbrigði
að flytja út.
„Eitt það fyrsta sem ég tók eftir var
hvað það var mikið af yfirgefnum hús-
um sem höfðu greinilega staðið auð í
áratugi, tæmst þegar fólk var sent í
gúlagið. Kannski er ennþá verið að
deila um eignarhald því þegar Eistar
fengu sjálfstæði fékk fólk húsin sín aft-
ur, jafnvel þótt það byggi einhver ann-
ar þar,“ segir Páll en tekur upp léttara
hjal og segir að það allra fyrsta sem
fólk taki eftir þegar það kemur til Tall-
inn í fyrsta sinn sé hvað þetta er falleg
borg. „Gamli bærinn er sérstaklega fal-
legur. Hann er frá því á miðöldum. Það
liggur borgarmúr í kringum þennan
gamla miðbæ, sem er haldið mjög vel
við,“ segir hann en gamli miðbærinn er
á heimsminjaskrá UNESCO. „Þetta er
algjör ævintýraheimur, rosalega róm-
antískt og fallegt.“
Námið ytra hefur haft mikil áhrif á
hann og ekki síður landið og sagan.
„Ég hef ekki aðeins skoðað Tallinn
heldur líka mikið ferðast um landið.“
Hann útskýrir að mörg húsin í Tall-
inn utan miðbæjarins hafi verið byggð
á fyrri sjálfstæðistíma þjóðarinnar á
milli 1918 og 1940. „Þá var mikill
blómatími hjá þjóðinni, uppbygging og
Ekki nein
stofnanatónlist
Páll Ragnar Pálsson hefur verið við nám í klassískum
tónsmíðum í Eistlandi síðustu ár. Það er breyting frá
því sem áður var en hann spilaði í mörg ár á gítar í
rokksveitinni Maus, sem naut töluverðra vinsælda.
Dvölin í landinu hefur haft mikil áhrif á hann faglega
og persónulega en hann hefur stofnað fjölskyldu í
Tallinn og er ekki á leið heim til Íslands í bráð.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Mynd: Árni Sæberg saeberg@mbl.is