SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 26
26 29. janúar 2012 Hún er stelpuleg í fasi með hlýtt viðmót enmaður þarf ekki að vera lengi nálægthenni til að sjá að hér er á ferð kvenskör-ungur mikill. Sigrún Daníelsdóttir er sál- fræðingur að mennt og hefur um nokkurra ára skeið fengist við átraskanir meðal barna og unglinga. Hún hefur verið að þróa forvarnir gegn átröskunum og á sama tíma stundað rannsóknir á þeim ásamt sam- starfskonu sinni, Elvu Björk Ágústsdóttur. Hún hefur staðið fyrir megrunarlausa deginum síðan 2006 og bloggað um líkamsvirðingu í nokkurn tíma. Sigrún segir samfélagið alltof upptekið af útliti og holdafari sem birtist meðal annars í fitufordómum og almennri vanlíðan yfir líkamsvexti. „Það er markmið mitt að vekja samfélagið til vit- undar og umhugsunar um líkamsvirðingu og málefni henni tengd. Það er alveg ótrúlegt hvað vanlíðan og þráhyggja í sambandi við líkamsvöxt, útlit, mataræði og hreyfingu er stór hluti af lífi margra. Oft þegar konur fara að velta þessu fyrir sér sjá þær að þetta hefur verið gegnumgangandi stef í lífi þeirra og stýrt sjálfsmati þeirra að miklu leyti. Þá erum við ekkert að tala um konur sem þjást af átröskun, heldur bara venjulegar konur. Þær eru alltaf innst inni ósáttar við sig. Lifa ár frá ári í líkama sem þær eru óánægðar með og eru alltaf að gera áform um að breyta sér. Það er þessi stöðuga barátta við holdið sem er svo eyði- leggjandi,“ segir Sigrún Feitir eru leyfileg skotmörk Áhugi Sigrúnar á þessu málefni er ekki sprottinn upp úr engu. Hún segist hafa fitnað á tímabili sem barn og samstundis fundið fyrir vanþóknun umhverfisins á feitum líkömum. „Ég fann nánast á einum degi hvernig allir litu mig öðrum augum en áður. Allt í einu var ég leyfilegt skotmark fyrir allskonar glósur og þær komu úr ótrúlegustu áttum. Allt frá skóla- félögum mínum til afgreiðslufólks í búðum og jafnvel foreldrum vina minna fannst við hæfi að gera at- hugasemdir við holdafar mitt. Þarna kemur fram mjög kerfisbundin andúð og mótmæli umhverfisins gegn þér. Og af því að þetta kemur úr öllum áttum er alveg ljóst að gagnrýnin er ekki bundin bara við eina manneskju eða ákveðinn hóp, þetta kemur alls staðar frá og þá hlýtur vandamálið að vera þú og líkami þinn. Það er þessi hugmynd, að ákveðnir líkamar séu óæskilegir, sem við, samfélagið í heild, þurfum að breyta.“ Þegar Sigrún hóf sálfræðinám vaknaði vitund hennar gagnvart því hvernig samfélagið elur á slæmri líkamsmynd og hversu ósanngjörn skilaboð við með- tökum á hverjum degi um hvernig líkami okkar á að vera. „Það hlýtur að ríkja margbreytileiki í sambandi við holdafar eins og alla aðra mannlega eiginleika. Þessi hugmynd um að við eigum öll að vera grönn er fáránleg í eðli sínu. Þegar ég uppgötvaði þetta hætti ég að gagnrýna líkama minn og fór að átta mig á því að vandamálið lægi í umhverfi sem gerir ekki ráð fyrir þessum fjölbreytileika. Þegar ég gekk síðan í al- þjóðlegt fagfélag um átraskanir og fór að sækja ráð- stefnur hjá því kynntist ég fagfólki sem aðhylltist þessa hugmyndafræði að við eigum að samþykkja líkama fólks og ef við viljum gera breytingar þá eiga þær að snúast um hegðun og viðhorf. Þetta sam- ræmdist minni menntun á sviði sálfræði svo mér fannst það hljóma skynsamlega. Þessi hugmyndafræði nefnist heilsa óháð holdafari eða Health At Every Size og er útlistun á því hvernig við getum nálgast heilsu- eflingu án áherslu á þyngdina. Sú hugmynd að það þurfi alltaf að grennast til þess að öðlast betra líf, betri heilsu og betri líðan er svo rík í okkur. Þá verð- ur þyngdartap eins og hlið sem þarf að komast í gegnum til að uppskera jákvæðar breytingar og það er hrikalega erfitt. Fólk er ekki fyrr komið inn fyrir hliðið en það sogast aftur til baka og þá verður allt svo vonlaust. Þá verður heilsa bara fyrir einhverja fáa útvalda og hinir eru bara alltaf að ströggla og ná aldrei að vera á þeim stað í lífinu að lifa heilbrigðu og uppbyggilegu lífi,“ segir Sigrún. Erum ekki næstfeitust Í októberlok varð sú frétt um að Íslendingar væru næstfeitastir í heimi áberandi í öllum fjölmiðlum. Að þessar niðurstöðu væru byggðar á misskilningi og að við værum í raun í sjötta sæti líkt og árið á undan komst aftur á móti seint og illa í kastljós fjölmiðlanna og er vafalaust enn í dag eitthvað sem fáir vita. „Það er svolítið þannig með fréttir sem sjokkera að það fer að verða aukaatriði hvort þær eru réttar eða rangar. Nú er umfjöllun eftir umfjöllun um hvað þetta sé agalegt og stjórnvöld eru krafin um aðgerðir. Það er verið að halda fram alls konar vitleysu eins og því að sú kynslóð barna sem nú er að vaxa upp eigi eftir að vera skammlífari en foreldrar þeirra sem er ekki byggt á neinum rannsóknum heldur eru bara getgát- ur og yfirlýsingar. Þessar hörmungaspár hafa verið í gangi síðastliðin 10-15 ár. Þetta fer að verða eins og í sögunni um strákinn sem hrópaði úlfur úlfur, það er alltaf verið að spá einhverjum heimsendi sem síðan verður ekki. Fáir átta sig á því að allan þann tíma sem offita hefur verið að aukast hafa lífsvenjur og heilsa almennt farið batnandi. Við lifum miklu betra lífi í dag en við gerðum áður, við borðum hollara fæði, reykjum minna og leggjum betri rækt við lík- ama og sál. Við fáum króníska sjúkdóma síðar á æv- inni og lifum einna lengst allra jarðarbúa. Yfirlýsingar um að það sé bara tímaspursmál hvenær heilbrigð- iskerfið okkar hrynur vegna offitutengdra sjúkdóma verða bara kjánalegar í þessu samhengi. Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin spáði þessu skömmu fyrir alda- mót en þrátt fyrir að ekkert hafi dregið úr offitu ból- ar ekkert á hruninu. Það varð reyndar stórfellt hrun sem ógnar heilbrigðiskerfinu, en það var ekki feitu fólki að kenna heldur peningafólkinu. Við hefðum kannski betur beint sjónum okkar að vaxandi pen- ingagræðgi þjóðarinnar en meintri matgræðgi. Ég hugsa að það hafi eftir á að hyggja verið stærra þjóð- félagslegt vandamál.“ Heilbrigt líf er markmiðið Þegar Sigrún er innt eftir því hvernig við aðskiljum áherslu á heilbrigt líferni og þyngd segir hún svarið mjög einfalt. „Það felst í raun í því að í staðinn fyrir að segja að feitt fólk sé vandamálið þá segjum við að óheilbrigðar lífsvenjur séu vandamálið. Í stað þess að segja að fita sé slæm og eitthvað sem einstaklingurinn þurfi að losa sig við þá segjum við að það þurfi allir að hugsa vel um líkama sinn hvort sem að þeir eru feitir eða grannir. Þegar fólk er farið að lifa heil- brigðara lífi þá getur orðið mikil heilsubót af því einu og sér. Af hverju ætti heilbrigt líf ekki að vera mark- mið í sjálfu sér?“ Sigrún vill meina að ekki sé víst að líkamsfita sem slík valdi heilsufarsvanda þeirra sem eru of þungir. „Við vitum að aukin líkamsþyngd tengist slæmum Í herför gegn fitu- fordómum Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur hefur um nokkurt skeið verið ötul í baráttu gegn fitu- fordómum og hugmyndafræðin heilsa óháð holdafari hefur verið útgangspunktur í pistlum hennar og fyrirlestrum. Texti: Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Mynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.