SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 45
29. janúar 2012 45 Hvað ætlar þú að lesa fyrir barnið þitt í kvöld?“ Á þessarispurningu endaði rithöfundurinn Jón Kalman Stef-ánsson fyrirlestur á ráðstefnunni Alvara málsins –bókaþjóð í ólestri, sem var haldin í Norræna húsinu síð- asta laugardag. Fyrirlestrinum var útvarpað á Rás eitt í vikunni og það var við þessa spurningu sem ég fór að velta fyrir mér skyldu minni sem foreldri að lesa fyrir barnið mitt. Því í mínum huga er það skylda að foreldrar lesi fyrir börnin sín. Í hugum margra ber orðið skylda neikvæða merkingu en skyldurnar eru líka margar jákvæðar. Mín ljúfasta skylda er að lesa fyrir barnið mitt á kvöldin, áður en það fer að sofa. Því miður eru margir foreldrar sem láta þessa ánægjustund framhjá sér fara. Það er ekki aðeins að lestur auki orða- forða og skilning hjá barninu heldur gefur það því svo margt annað auk samvista við þann sem gefur sér tíma til að lesa fyrir það. Út frá bókavali barnsins má sjá ýmislegt um þroskastig þess. Sonur minn er að verða fjögurra ára og um nokkurt skeið hafa bæk- ur með smá hryllingi verið í uppáhaldi, hann er líka að uppgötva heiminn og sjálfstæði sitt. Nú eru það bæk- ur með úlfum, refum, bófum, sjóræningjum og skrímslum sem verða fyrir valinu. Hin klassíska íslenska barnabók Helgi skoðar heiminn er líka vinsæl enda Helgi lítill pjakkur sem fer einn í ferða- lag um heiminn sinn og lendir í ýmsum ævintýrum. Oft getur verið erfitt að komast í gegnum kvöldlesturinn því spurningaflóðið er mikið; afhverju og hvað þýðir þetta orð? Spurningunum verður að svara því það er hluti af lestrarstundinni að fræða og hjálpa þeim að skilja það sem lesið er. Ég trúi ekki að nokkurt foreldri vilji fara á mis við þá ánægjustund að lesa fyrir barnið sitt. Hvað ætlar þú að lesa fyrir barnið þitt í kvöld? Mín ljúfasta skylda ’ Spurn- inga- flóðið er mikið; af- hverju og hvað þýðir þetta orð? Orðanna hljóðan Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Sakramenti Einhver hefur saumað útlínur drekans með hárfínum rauðum þræði, líkt og grun, eða skugga, í rautt silkið. Það er um tvo kosti að velja: að segja já við hinu óumflýjanlega og hefja gullgerð en hafna því ella og búast til varnar. Há-karlinn hefur verið brytjaður í örsmáa, rauðleita teninga. Ég þigg bita úr silfurskálinni. Lausnarorð Hann elskar mig og ég elska hann, glæpamann, morðingja. Við hittumst á torginu og hann vef- ur mig örmum. „Hvernig hefurðu það, ELSKAN?“ Orðið kemur eðlilega og átakalaust út fyrir varir mínar. Við höldum hvort yfirum annað, elskendur frá upphafi vega, og hringsólum hlið við hlið innan um óljósan fjöldann. Hver var sá guð sem skapaði okkur að skilja? Opinberun Fríkirkjan stóð þar sem ég stend nú. Við erum mörg við þessa messu. Horfum í vesturátt og sjá, skyndilega fyllist tjörnin og húmdökkur himinninn yfir af blóðroða. Fagnandi teyga ég hina gullnu veig meðan býðst. Svo er hún jafnskyndilega horfin. Eftir lifir grunur um gljásvartan flygil undir ísnum á vatni við veginn. Ljóðið bar sigur úr býtum í keppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Höfundurinn hlaut kr. 500.000 í verð- laun og er handhafi Ljóðstafsins næsta árið. Um 350 ljóð bárust í samkeppnina. Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, skrifaði um fjölmenn- ingu í blaðið Nesavisimaja Gaseta í vikunni og vill nota bókmenntir til að skapa þjóðareiningu. „Á þriðja áratug 20. aldar ráku nokkrir leiðandi háskólar í Banda- ríkjunum áróður fyrir það sem þeir kölluðu vestrænt úrval, úrval bóka, sem taldar voru hafa haft mest að segja um að móta vest- ræna menningu,“ skrifar Pútín. „Hver námsmaður með sjálfsvirð- ingu átti að lesa 100 bækur á sér- stökum lista yfir helstu bækur hins vestræna heims. Sumir há- skólar halda enn í þessa hefð. Rússum hefur alltaf verið lýst sem „lestrarþjóð“. Við skulum gera könnun meðal okkar helstu menn- ingarvita og taka saman úrval 100 bóka sem hver Rússi á að hafa lesið þegar hann lýkur skóla- göngu – það er að lesa heima fremur en að læra í skóla eða leggja á minnið. Og síðan yrðu þeir að skrifa ritgerð um eina þeirra á lokaprófi.“ Hugmyndinni hefur verið misvel tekið. Sagði blaðamaðurinn Alex- ander Nasarjan áætlun Pútíns um að búa til þjóðareiningu í gegnum bókmenntir hrollvekjandi. Pútín vill að hver nemandi lesi 100 bækur LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar Í AFBYGGINGU Libia Castro & Ólafur Ólafsson 13.1. - 19.2 2012 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 28. jan. kl. 14 Guðmundur Steingrímsson alþingismaður ÞÁ OG NÚ 22.9. 2011-19.2. 2012 SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott í hádeginu! Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. Listsýning Eddu Heiðrúnar Backman. Munnmáluð vatnslitaverk og olíumálverk. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Á BÓNDADAG – A Farmer´s Day Feast Aðalheiður S. Eysteinsdóttir 20. janúar– 18. mars Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Nýjar sýningar: TÍZKA – kjólar og korselett Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur Aðrar sýningar: Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár Þetta er allt sama tóbakið! Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu Spennandi safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum Kyrralíf Sýning á kyrralífsmyndum eftir íslenska listamenn Pleaser Harpa Björnsdóttir Sunnudag 29. janúar kl. 15 Listamannsspjall-Harpa Björnsdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 14. janúar til 5. febrúar 2012 Anna Líndal KORTLAGNING HVERFULLEIKANS/ mapping the impermanence Opið 13-17, nema mánudaga. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Aðgangur ókeypis. LISTASAFN ASÍ HLUTIRNIR OKKAR (9.6.2011 – 4.3.2012) Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.