SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Blaðsíða 34
34 29. janúar 2012
Henni hefur aldrei verið lýstsem manneskju. Mér þykirvænt um hana, ég held að égelski hana,“ sagði Madonna
nýlega í viðtali. Hún var þar að tala um
Wallis Simpson, konuna sem varð til þess
að Játvarður VIII Bretakonungur afsalaði
sér krúnunni árið 1936. Madonna er leik-
stjóri kvikmyndarinnar W.E. sem fjallar
um ævi Wallis, sem var hötuð og fyrirlitin
og hefur ekki fengið verulega uppreisn
æru fyrr en nú.
Kvikmynd Madonnu hefur fengið mis-
jafnar undirtektir. Hún fékk vonda dóma
á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum en aðr-
ir eru hrifnari. Gagnrýnandi Sunday Tim-
es gaf myndinni þrjár stjörnur af fimm
mögulegum og sagði: „Drottinn minn!
Madonna hefur gert kvikmynd sem er
næstum því alveg ágæt.“ Gagnrýnendur
hafa svo yfirleitt hrósað leikurunum sem
fara með aðalhlutverkin, Andreu Rise-
borough sem leikur Wallis og James
D’Arcy sem leikur Játvarð. Ný ævisaga
Wallis, That Woman, eftir Anne Sebba
hefur svo enn átt þátt í að vekja athygli á
henni.
Dásamlegasta kona í heimi
Wallis, eða Bessiewallis eins og hún hét
réttu nafni, fæddist árið 1896 í Baltimore.
Sem ung kona þótti hún fyndin, greind og
daðurgjörn og kunni betur við sig í fé-
lagsskap karla en kvenna. Hún stefndi
aldrei að starfsframa heldur leitaði að
mönnum sem veittu henni öryggi og
sagði opinskátt að maðurinn sem hún
myndi giftast yrði að vera ríkur. Hún var
rétt um tvítugt þegar hún giftist Winfield
Spencer liðsforinga sem var átta árum
eldri en hún. Hann var drykkfelldur og
ofbeldisfullur og tuttugu og fimm ára
gömul var Wallis fráskilin. Næsti eig-
inmaður var Ernest Simpson skipamiðl-
ari. Hann var kvæntur þegar þau Wallis
kynntust og átti unga dóttur. Hann var
vel lesinn og mikill áhugamaður um listir
en þótti fremur litlaus persónuleiki. Hann
varð heillaður af Wallis, skildi við konu
sína og kvæntist henni. Þau Wallis bjuggu
í Englandi þar sem þau kynntust Játvarði
prins en fyrir honum lá að erfa krónuna
eftir lát föður síns, Georgs V.
Játvarður var 37 ára þegar þau Wallis
kynntust. Hann þótti hafa mikla per-
sónutöfra en hann tók konunglegar
skyldur lítt alvarlega og honum leiddust
opinberar athafnir. Konungurinn, faðir
hans, sagði: „Eftir dauða minn mun þessi
drengur eyðileggja sig á tólf mánuðum.“
Játvarður var sérstakur maður sem tók
persónulega hamingju og frelsi fram yfir
starfsskyldur sínar. Þetta þótti undarlegt
og sumir sem unnu fyrir prinsinn töldu
hann hreinlega geðbilaðan. Einkaritari
Georgs konungs sagði eitt sinn eftir að
hafa talað við prinsinn: „Hann er brjál-
aður. Hann er brjálaður. Við þurfum að
loka hann inni. Við þurfum að loka hann
inni.“
Eiginmanni Wallis var ekki skemmt
vegna vináttu konu sinnar við prinsinn en
hún sagði honum að sambandið við Ját-
varð myndi ekki standa að eilífu.
Hún var ekki ástfangin af Játvarði en
heillaðist af lífsstílnum sem líf með hon-
um bauð upp á. Hann dáði hana og dýrk-
aði og hún hafði hann algjörlega á valdi
sínu.
Georg V lést árið 1936 og Játvarður varð
konungur. Hjónabandi Wallis lauk en hún
hafði verið mjög hikandi við að skilja við
mann sinn. Játvarður var nú staðráðinn í
að hún yrði drottning hans.
Sú fyrirætlan Játvarðar að kvænast
tvífráskilinni bandarískri konu mætti
vægast sagt harðri andstöðu, bæðið innan
ríkisstjórnar og konungsfjölskyldunnar
sjálfrar. Smám saman komust fréttir um
sambandið í breska fjölmiðla og Wallis
tóku að berast hatursbréf sem fylltu hana
skelfingu. Hún var tilbúin að slíta sam-
bandinu við konung en hann tók það ekki
í mál og hótaði að skera sig á háls ef hún
yfirgæfi hann. Hann var reiðubúinn að af-
sala sér konungdómi og kvænast henni en
Wallis vissi að ef hann gerði það myndi
hatur og heift beinast gegn henni og
mannorði hennar yrði rústað. Hún reyndi
því að fá konunginn af því að afsala sér
krúnunni. Fyrir honum var valið einfalt.
Ef hann ætti að velja milli hennar og
krúnunnar þá myndi hann velja Wallis.
Forsætisráðherrann Baldwin var
hneykslaður á því að konungurinn ætti
ekki í innri baráttu um það hvað hann
ætti að gera. Í samtali við Baldwin um
málið veifaði konungurinn höndunum og
sagði: „Hún er við hlið mér, dásamlegasta
kona í heimi.“ „Það var vonlaust að koma
fyrir hann vitinu,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Þegar hertoginn af Kent, bróðir kon-
ungsins, var spurður hvort hann héldi að
konungurinn yrði hamingjusamur með
Wallis svaraði hann: „Hamingjusamur?
Almáttugur minn nei, ekki með þessari
konu.“
Játvarður sagði af sér konungdómi í
frægu útvarpsávarpi og sagði í einni
sterkustu ástarjátningu allra tíma: „Mér
er ómögulegt að bera hina þungu ábyrgð
og framfylgja, eins og ég vil, skyldum
mínum sem konungur, án hjálpar og
stuðnings konunnar sem ég elska.“
Bróðir hans Georg VI, faðir Elísabetar
II, varð konungur í hans stað.
Hjón í útlegð
Játvarður og Wallis gengu í hjónaband í
Frakklandi í júní 1937. Enginn úr fjöl-
skyldu hans var viðstaddur brúðkaupið
og sú fjarvera var Játvarði mikil von-
brigði.
Vinur Játvarðar sagði seinna: „Eftir
hjónavígsluna sagði ég við Wallis að fólki
líkaði illa við hana af því að hún væri völd
að því að Játvarður hefði afsalað sér krún-
unni en það myndi breytast ef hún gerði
hann hamingjusaman. Ef hún gerði hann
óhamingjusaman myndi fólki finnast hún
eiga allt illt skilið. Hún tók orðum mínum
af skilningi og svaraði: „Heldurðu að ég
hafi ekki velt þessu fyrir mér? Ég held að
ég geti gert hann hamingjusaman.“
Það er enginn vafi á því að henni tókst
að gera hann hamingjusaman. Á þeim
áratugum sem þau voru saman þótti hon-
um alltaf jafnvænt um hana og var dapur
ef hún var fjarverandi. Hann tilbað hana
allt þar til yfir lauk.
Tilfinningar hennar voru flóknari. „Ég
held að hún elski hann en ég er hrædd um
að hún sé ekki ástfangin af honum,“ sagði
ljósmyndarinn Cecil Beaton. Wallis gat
verið afar hvöss í tali við mann sinn og
hann sást tárast undan meinlegum at-
hugasemdum hennar, en það breytti engu
um ást hans.
Hjónin vildu setjast að á Englandi en
fjölskylda hans stóð í vegi fyrir því. Þau
bjuggu aðallega í Frakklandi og höfðu
þjónustufólk sem var skipað að ávarpa
Wallis sem „yðar konunglega tign“. Hún
hafði þó engan konunglegan titil þótt eig-
inmaður hennar reyndi allt sem hann gat
til að útvega henni hann. Fjölskylda hans
hafði megna óbeit á Wallis og þær tilfinn-
ingar breyttust lítt með árunum. Þau
fengu þó titilinn hertoginn og hertoga-
ynjan af Windsor.
Hjónin skiptu tíma sínum milli Frakk-
lands og Bandaríkjanna. Þau höfðu ekki
ýkja mikið að gera annað en að halda boð
og mæta í boð. Það átti svosem ekki illa
við Wallis sem þótti frábær gestgjafi og
snjöll í samræðulist. Hún þótti aldrei fal-
leg, en hún hafði óaðfinnanlegan fata-
smekk og í fjóra áratugi var hún reglulega
á lista yfir 10 best klæddu konur heims.
Hún var í sífelldri megrun og ef hún bætti
á sig kílói svelti hún sig næsta dag. Eftir
henni er höfð setning sem oft er vitnað til:
„Maður er aldrei of ríkur eða of grannur.“
Dapurlegt ævikvöld
FBI hélt sérstaka skrá um hjónin, þótt þau
væru nú ekki beinlínis líkleg til að brjóta
af sér. Ásakanir um samúð með nasistum
hafa þó alltaf fylgt þeim, en Játvarður tal-
aði reiprennandi þýsku og átti þýska vini
á stríðsárunum sem hann hitti. Hjónin
höfðu svo farið til Þýskalands árið 1937 og
til er ljósmynd þar sem Wallis brosir inni-
lega til Hitlers. Sú mynd varð síst til að
auka vinsældir hennar. Hún var alla tíð
afar umdeild og margir Bretar neituðu að
Wallis fær
uppreisn
æru
Madonna hefur gert mynd um Wallis Simpson,
konuna sem varð til þess að konungur afsalaði
sér krúnunni vegna ástar sinnar.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Wallis og Játvarður á ferðalagi árið 1967.
Getty Images
Madonna hefur tekið Wallis upp á arma sína.
Reuters