SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 40
40 29. janúar 2012
Lífsstíll
Kerti
Nú er kerta-
tíminn alveg í
hámarki.
Einna best
finnst mér við
veturinn sú
kósístemn-
ing. Á heim-
ilinu er sér-
stök
kertahilla sem ég safna í jafnt og
þétt. Hún ilmar vel því þar er að
finna ilmkerti í bland við önnur. Á
ferðum mínum um ókunn höf hef
ég gjarnan kippt með mér einu og
einu vellyktandi. Samt bara litlu
svo það passi í töskuna. Ætli
þetta sé ekki næstum því það
eina sem ég sakna við veturinn á
sumrin. Ekki sakna ég kuldans í
það minnsta mjög mikið. Eða að
þurfa að skafa af bílnum. (Tuð,
tuð, ég veit.) Kveikjum eld, strax í
kveld og ornum okkur við fallegt
kertaljós.
New Girl
Það er alltaf
jafngaman að
uppgötva
nýja þætti.
Ég uppgötv-
aði einn slík-
an í vikunni.
Hann heitir
New Girl og
fjallar um
hressa og
fyndna unga
stúlku sem
einbeitir sér
að því að hafa gaman af lífinu. Eft-
ir að hafa hætt með kærastanum
flytur hún inn með þremur gaurum
og sambúðin er skrautleg á köfl-
um. Einn af þessum þáttum sem
erfitt er að horfa á nema tvo eða
jafnvel þrjá í einu. Mæli með
þessu til afþreyingar nú í vetr-
arhreti og snjó.
Í minni fjölskyldu ríkir sú hefð, ef hefð mættikalla, að láta hvert annað vita sé framundanferð í búðina stóru gulu og bláu. Þangað ernefnilega ansi langt að fara úr vesturbænum
og ekki leggjandi í slíka „sveitaferð“ eftir tveimur
glösum eða servíettupakka. Þó að maður kippi
slíku auðvitað gjarnan með í leiðinni. Alveg síðan í
gamla daga hefur viss spenna ríkt yfir ferðum í
þetta mikla undraland. Land þar sem hægt er að
finna óteljandi lausnir fyrir heimilið á alveg hreint
ágætu verði. Meira að segja í dag þegar gengið er
ekkert til að hrópa húrra yfir. Það er líka svo snið-
ugt að geta keypt t.d. einn stóran bókaskáp og
raðað svo endalaust inn í hann boxum og hólfum
eftir þörf. Nú er ég alveg hætt að fara í boltalandið
en minnir að það hafi verið sport á sínum tíma.
Síðan komu unglingsárin og þá þurfti maður að
eignast sófa fyrir vinina. Auðvitað var hann keypt-
ur í búðinni góðu. Í dag dettur mér ekkert annað í
hug en búðin góða þegar huga skal að húsgagna-
kaupum. Hvers vegna líka að kaupa sófaborð á
25.000 þegar maður getur fengið það á 4.900? Jú,
jú, kannski fær maður aðeins meiri gæði fyrir pen-
inginn. En í bili er mér sama. Hingað til hefur ekk-
ert bilað úr búðinni góðu. Blái stofusófinn hefur
staðið sína plikt með prýði í ein fjögur ár og frá-
leggsborðin þrjú eru enn næstum sem ný. Þrátt
fyrir polla af ýmiss konar partídrykkjum. Síðast
fór ég í búðina góðu keyrandi á Saab. Það held ég
að sænskir vinir mínir verði ánægðir að heyra það.
Gula og bláa undralandið
Í undralandinu sænska er hægt að ímynda sér að maður búi þar, svo heimilislegt er það.
Undralandið góða sem
byggði frændi vor Svíi. Með
einni góðri „sveitaferð“ má
redda heimilinu.
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kistan
Mikilvægt er að hugsa
vel um hárið á þessum
kalda árstíma svo og all-
an ársins hring auðvitað.
Hér er góð uppskrift að
banana- og hunangsnær-
ingu úr bók Arndísar Sig-
urðardóttur, Náttúruleg
fegurð, útgefandi Bóka-
félagið.
Banana- og
hunangsnæring
½ banani
1 tsk hunang
4 msk nýmjólk
glerskál
sturtuhetta eða plastpoki
handklæði
Aðferð
Stappið bananann í mauk og blandið svo
hunanginu vel saman við. Bleytið hárið með
volgu vatni og nuddið næringunni í allt hárið.
Setjið svo sturtuhettu yfir hárið, ef þið eigi
hana en annars virkar plastpoki ágætlega
líka, og loks handklæði yfir það. Leyfið þessu
að vera í hárinu í 1 klukkutíma og þvoið svo
vel úr með sjampói. Notist samdægurs.
Vítamínrík og mýkjandi heimatilbúin hárnæring
Kryddaðu tilveruna
Margar kryddtegundir eru tald-
ar hafa kynferðislega örvandi
áhrif.
Kardimomma er vel þekkt fyrir
rómantísk áhrif.
Negull er örvandi en um leið ró-
andi fyrir taugarnar.
Svört piparkorn örva blóð-
rennsli.
Kanill örvar bæði og róar sam-
tímis.
Kóríander róar taugar og örvar
þrá.
Múskat örvar kynhvötina.
Úr bókinni 1001 Leið til að
slaka á, Susannah Marriott,
Salka.
Það er um að gera að nota
vonda veðrið um helgina til þess
að kíkja í eldhússkápinn. Kannski
áttu þar eitthvað af þessu kryddi
og þá er bara að búa til rjúkandi
góða ástargrýtu. Negul er líka
hægt að stinga í eins og eina app-
elsínu og hafa á fallegum diski í
svefnherberginu. Það er um að
gera að nota bara hugmynda-
flugið til að krydda rómantíkina
dálítið og gefa henni margvíslegt
ólíkt og gott bragð. Munum að
hlúa að ástinni og rómantíkinni nú
í kulda og trekki. Ekki veitir af að
halda hjartanu heitu þegar svo
hráslagalegt er úti.
Logandi rómans