SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 42

SunnudagsMogginn - 29.01.2012, Síða 42
42 29. janúar 2012 Glöggur maður benti mér á „sí-vaxandi misnotkun á hugtak-inu fræði, t.d. þegar mennsegja að eitthvað hafi haft sál- fræðileg áhrif á einhvern í stað þess að segja einfaldlega að það hafi haft sálræn áhrif“. Hann bætti við atriði af sama toga: „…fólk virðist nánast hætt að tala um að- ferðir og talar þess í stað í sífellu um að- ferðafræði, þótt einungis sé verið að vísa til aðferðar, svo sem við val á frambjóð- endum: „Sú aðferðafræði sem við not- uðum var….“ Hér nægir að tala um „að- ferð“.“ Annar góðkunningi sagði að ég mætti vekja athygli á sögnunum gæða og glæða: Kennarinn glæðir áhuga nem- enda sinna á móðurmálinu; hann gæðir [ekki: glæðir!] kennslu sína lífi. Hermann Pálsson prófessor í Edinborg bar hróður Íslendinga víða um heim með skrifum sínum á ensku um fornbók- menntir okkar og ekki síður með þýð- ingum fornra rita. Hann skrifaði einnig stórmerk fræðirit á íslensku. Texti hans var kraftmikill og hrífandi enda tilfinn- ingin næm fyrir máli og stíl. Í grein sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins þann 15. febrúar 1992 sagði Hermann meðal ann- ars: „Svo telja fróðir meistarar að rit- smiðum og ræðumönnum sé skylt að rækja þrjú boðorð framar öllum öðrum: 1. Þú skalt velja þau orð sem hæfa best. […] 2. Þú skalt finna hverju orði sem bestan stað í verkum þínum. […] 3. Þú skalt aldrei nota fleiri orð en þörf krefur.“ Mig langar að taka dæmi þar sem öll ofangreind boðorð eru í heiðri höfð; það er fengið úr minningabók Hannesar Pét- urssonar, Jarðlag í tímanum. „Séra Tryggvi var hneigður til ferða- laga á reiðhestum, og til víndrykkju. Við skál í hófi nutu menn hrifnir gáfna hans: andríkis og sönggleði, orðfyndni og víð- kunnrar hagmælsku. En oft var setið lengur við en vera skyldi. Sannaðist þá að öl er annar maður.“ Þessu fylgir síðan átakanleg lýsing á því andrúmslofti sem ríkti á skagfirsku prestssetri dagana eftir að víndrykkju guðsmannsins lauk. Ef boðorðin, sem Hermann Pálsson til- tekur, eru ekki virt er hætt við að lesand- inn þreytist. Hann á erfitt með að fylgja þræði, áttar sig ekki á inntaki og mark- miði texta og gefst jafnvel upp í miðjum klíðum. Þetta hefur hvað eftir annað hent mig, t.d. við lestur blaðagreina um efna- hags- og stjórnmál. Ég tek hér örfá nýleg dæmi og bið lesandann að velta því fyrir sér hvort stíllinn megi teljast þróttmikill og gagnorður og tungutak blæbrigðaríkt. „Veikt Alþingi þýðir veikt lýðræði. Við þessi áramót væri ekki úr vegi að hver Ís- lendingur strengdi það heit að leggja sitt af mörkum til þeirrar nýju hugsunar sem þarf til að berja í trúnaðarbrestinn. Það gæti orðið góð pólitísk úrbót.“ „Af sjálfu leiðir að skoða þarf aðra kosti til samanburðar ef krónan þykir ekki duga til að veita launafólki öryggi og at- vinnulífinu samkeppnishæfa stöðu. En rétt er að íhuga fyrst okkar íslenska Mammon með því að meta reynsluna af sjálfstæðum eigin gjaldmiðli og hversu líklegt er að hann geti svarað framtíð- arkröfum þjóðarinnar. Forystumenn Al- þýðusambandsins byrjuðu því um- ræðuna á réttunni.“ „Andstæðingar frekara samstarfs við Evrópuþjóðir eru helstu talsmenn þess að verja krónuna á hverju sem gengur. Þeir benda réttilega á að sjálfstæð mynt auð- veldar stjórnvöldum að færa peninga frá launafólki til útflutningsfyrirtækja. En reynslan af þeirri ljúfu leið er einmitt þyrnir í augum talsmanna launafólks. Hér togast á ólíkir hagsmunir. Þeir eru eigi að síður jafn íslenskir.“ „Kjarni málsins er sá að málsvarar krónunnar þurfa að rökstyðja að stjórn- endur peningamálanna hefðu átt að ráða við þá markaðskrafta sem léku gjaldmið- ilinn jafn grátt og raun ber vitni á opnum alþjóðlegum markaði og með hvaða ráð- um.“ „Hvaða rök standa til þess að okkur standi ógn af þeim aga sem myntsamstarf við Evrópuþjóðirnar gæti leitt til standi það á annað borð til boða? Stærsti vandi okkar er ef til vill sá að með áframhald- andi ráðleysi er ekki víst að við getum valið neitt annað en endurtekningu á því sem áður hefur gerst.“ Ég veit ekki af hverju mér komu í hug, við lestur síðustu klausunnar, orð mannsins sem sagði eitthvað á þessa leið: „Það sem aldrei hefur gerst áður getur alltaf komið fyrir aftur.“ Og hann bætti við: „Þetta er afleiðingin af því sem koma skal.“ „Þú skalt…“ ’ Hann á erfitt með að fylgja þræði, áttar sig ekki á inntaki og markmiði texta og gefst jafnvel upp í miðjum klíð- um. Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Málið El ín Es th erVoðalega finnst mér oft á tíðum þreytandi og letjandi að lesa texta, hvort sem það er til gagns eða gamans, sem er ómarkviss og morandi í útúrdúrum og málalengingum. Ég hef miklu meiri ánægju af því að lesa texta sem höfundurinn hefur greinilega haft fyrir að meitla og slípa í kjarnyrt meistaraverk. Sem sagt: „Stuttur texti er góður texti“? Tja... já. Tvíræður; óviss, vafasamur;grunsamlegur, tortryggilegur.Þannig skýrir Ensk-íslenskaorðabókin orðið Equivocal, heitir nýrrar bókar Katrínar Elvarsdóttur myndlistarmanns. Á kápu bókarinnar eru rauð sviðstjöld og þegar hún er opn- uð má sjá röð ljósmyndaverka, alls á fimmta tuginn, og vissulega er andrúms- loftið óvisst og grunsamlegt. Áhorfand- anum er látið eftir að geta í merkingu og lesa sögu úr ljósmyndunum sem eru margar teknar í rökkvuðum herbergjum þar sem horft er út um glugga; glugga- tjöld eru áberandi sem og glerið, þessi skil milli heima. Fólk er á nokkrum myndanna; ung stúlka horfir í augu áhorfandans, á annarri mynd snýr kona baki í okkur á sama stað. Rautt er áberandi, og auga ljósmyndarans gælir við yfirborð hlutanna. Það er rík tilfinning fyrir áferð í þessum óræða mynd- heimi. „Ég tók mynd af sjónvarpsherbergi árið 2007, þar sem sést hlynur úti í garði fyrir utan gluggann. Þarna er sófi og birt- an er rauð. Það var upphafið og ég ákvað að taka fleiri myndir í þessum stíl,“ segir Katrín. Ljósmyndavélin er hennar miðill. Hún lauk námi frá Art Institute of Boston árið 1993 og hefur verið ötul við sýning- arhald, er ein af listamönnum Gallerí Ágústs við Baldursgötu. Árið 2005 kom út bók hennar Mórar-nærvídd með svarthvítum ljósmyndum teknum á ódýra Holga-myndavél, móskukenndar og dularfullar, en á annan hátt en lit- myndirnar í nýju bókinni sem spruttu út frá myndinni úr sjónvarpsherberginu. „Ég fór markvisst að leita að mynd- efni og vann að þessari myndröð næstu þrjú árin, hér heima og erlendis. Ég blanda saman ýmsum stöðum og þráðurinn spannst um leið og ég myndaði. Ég var sífellt að mynda og sía réttu mynd- irnar úr og var að lokum komin með þetta úrval, hálfgerða sögu, sem hefur ekki hefðbundið upphaf, miðju og endi. Þetta er ákveðin stemning.“ Þegar Katrín er spurð að því hverjar kveikjurnar að þessari röð mynda hafi verið, svarar hún: „Að vera inni og horfa út. Ef ég tala aftur um þessa mynd úr sjónvarpsherberginu, þá tók ég myndina um sumarnótt, það var bjart úti en drungalegt inni og sjónarhornið fannst mér spennandi.“ Skrásetur ekki þekkjanlega staði Um ljósmyndun Katrínar má segja að hún sé huglæg og stemningarnar óræðar. „Jú, ég er ekki að skrásetja þekkjanlega nafngreinda staði. Ég vil helst ekkert tala um staðsetninguna, það þvælist bara fyrir fólki sem sér verkin. Ef ég segi Stykk- ishólmur þá gæti það spurt hvort þetta væri rauða húsið þar.“ En hvað um fólkið í myndunum? „Fólkið hef ég valið sérstaklega inn í stemninguna sem ég hef í huga og þetta er allt fólk sem ég þekki. Fjölskylda og vinir. Fyrir myndirnar í þessu verki hafði ég valið nokkra einstaklinga að vinna með og svo langaði mig að mynda aðra á sömu stöðum í sömu fötum, en á öðrum aldri en fyrri fyrirsæturnar. Á einni myndini eru ung stúlka og eldur en í annarri eldri kona og sami eldur. Í einni mynd sér aftan á strák úti í skógi en í annarri framan á mann í skóginum. Þarna birtast ákveðnar pælingar um tímalínu og spurningar vakna: er þetta sama fólkið eða annað fólk á sama stað?“ Áhorfandinn á að fá tilfinningu fyrir aðstæðum, og spurningunum, þetta er ekkert sem Katrín vill upplýsa okkur um. „Þetta á ekki að vera augljóst, frekar óræðar vísanir. Það er gott ef fólk áttar sig smám saman á tenginum milli mynda.“ Katrín hefur á síðustu árum haldið sýn- Tvíræðar, vafasamar og tortryggilegar Um kveikjuna að röð ljósmyndaverka sem birtist í nýrri bók Katrínar Elvarsdóttur ljósmyndara, segir hún: „Að vera inni og horfa út.“ Í bókinni birtist óræður myndheimur og einskonar saga sem byggist á tilfinningu frekar er röklegri fram- vindu. Katrín fer sínar leiðir í sköpuninni. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.