Morgunblaðið - 20.03.2012, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. M A R S 2 0 1 2
SIGURINN KOM
VINTAGE CARA-
VAN Á ÓVART
HJÓLAR HÆGT
OG NÝTUR ÞESS
AÐ VERA TIL
FRÁBÆR SKEMMTUN
OG FRAMMISTAÐA
Í LA BOHÉME
HJÓLAFERÐIR UM ÍTALÍU 10 FJÖGURRA STJÖRNU DÓMUR 30UNNU GLOBAL BATTLE OF THE BANDS 33
Morgunblaðið/Eyþór
Póstur Frá árinu 1998 til 2011 fækkaði
starfsmönnum Póstsins úr 1.130 í 830.
Frá árinu 1998 hefur Íslands-
póstur þurft að loka 20 pósthúsum
á landinu, þar af fjórum á höf-
uðborgarsvæðinu, þar sem eru 11
pósthús. Þá var nýverið tekin sú
ákvörðun að loka pósthúsinu í
Breiðholti og þar með verður fjöl-
mennasta hverfi landsins, með rúm-
lega 20 þúsund íbúa, án póst-
afgreiðslu. Eftir að lokunin tekur
gildi verða sjö póstnúmerahverfi í
Reykjavík án pósthúss – 103, 104,
105, 107, 109, 111 og 113.
Bréfum hjá Íslandspósti undir 50
grömmum fækkaði um 30% frá
2006 til ársloka 2011 og er talið að
frekari 16% fækkun verði til ársins
2015. »16
Sjö póstnúmera-
hverfi í Reykjavík
verða án pósthúss
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Von er á stærsta skemmtiferðaskipi
sem komið hefur til Íslands í sumar.
Þá stefnir í að töluvert fleiri slík skip
komi til Reykjavíkur í sumar en
fyrri ár að sögn Ágústs Ágústssonar,
markaðsstjóra hjá Faxaflóahöfnum.
Alls hafa 76 skemmtiferðaskip
boðað komu sína til Reykjavíkur í
sumar og geta þau tekið rétt um
hundrað þúsund farþega. Því stefnir
í talsverða fjölgun ferðamanna sem
koma með skipunum frá því í fyrra
en þá komu 63 þúsund farþegar með
67 skipum.
Stærsta skipið sem von er á til
Reykjavíkur í sumar ber nafnið Ad-
venture of the Seas, er 137 þúsund
tonn að stærð og getur tekið um
3.500 manns um borð. Áætlað er að
það komi hingað fyrst 3. júní og aft-
ur 4. september.
Skipið er í eigu fyrirtækisins Ro-
yal Caribbean Cruise Line, sem er
önnur tveggja stærstu
skemmtiferðaútgerðanna sem gera
út skip til Íslands, ásamt Celebrity
Cruises, að sögn Ágústs.
Þær útgerðir sigla í meira mæli til
Íslands í sumar en áður og bæði fé-
lög hyggjast auka enn við sig hér á
næsta ári, segir Ágúst.
Algengast er að skipin stoppi hér
á landi í tíu klukkustundir en Ágúst
segir það færast í aukana að þau séu
hér yfir nótt. Adventure of the Seas
verði t.a.m. yfir nótt í Reykjavík.
Stór skip á leið til landsins
Stefnir í metfjölda skemmtiferðaskipa í Reykjavík í sumar
Engu er líkara en listmálarar séu við störf í slipp-
stöðinni við gömlu höfnina í Reykjavík. Svona verk
komið á striga gæti selst fyrir góðar fjárhæðir en
þetta er nú bara undirlag á skipsskrokki.
Listmálarar að störfum í slippnum?
Morgunblaðið/RAX
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
NÝJUNG ÍSLENSKUR OSTUR
100%
Nicolas Sar-
kozy Frakk-
landsforseti gaf í
gær skipun um
hæsta viðbún-
aðarstig í suð-
vesturhéruðum
landsins vegna
árásar á gyð-
ingaskóla í Tou-
louse þar sem
fjórir létu lífið.
Sami maður hefði verið að verki
þegar skotið var á þrjá hermenn í
liðinni viku, tveir féllu. Líklega
hefði ástæðan verið gyðingahatur,
sagði Sarkozy. „Við vitum að þetta
er sami maður, sama vopn sem varð
hermönnunum, börnunum og kenn-
aranum að bana.“ »15
Mikill viðbúnaður
í SV-Frakklandi
Nicolas
Sarkozy
„Í öðru orðinu eigum við að vera að hugsa um
umhverfisvernd og þetta dýrmæta og fallega
land en svo eigum við að grafa skurði til þess
að urða sorp,“ segir Eygló Kristjánsdóttir,
sveitarstjóri Skaftárhrepps, um nýjar breyt-
ingar á reglugerð
um brennslu úr-
gangs sem fela
það í sér að sér-
ákvæði um starf-
andi sorp-
brennslustöðvar
hafa verið felld úr
gildi. „Þessi
stefna gengur
ekki upp, það
verður að taka
heildstætt á mál-
inu fyrir allt land-
ið í heild,“ segir
Eygló en að sögn
hennar verður
sorpbrennslu-
stöðinni á Kirkju-
bæjarklaustri sennilega lokað 1. desember
næstkomandi ef engin stefnubreyting verður
af hálfu stjórnvalda í þessu máli. „Það er
mjög sorglegt að á tíu árum séu algjör um-
skipti. Stöðin er opnuð fyrir tíu árum sem
besti kosturinn við förgun á sorpi,“ segir
Eygló sem telur þessi umskipti fáránleg og
bætir við: „Við erum með heljarinnar fjár-
festingar og hvað eigum við að gera við lánin
á þessu? Hverfa þau?“ Að sögn Eyglóar kost-
ar svona sorpbrennslustöð marga tugi millj-
óna og því séu slíkar stöðvar settar upp til
framtíðar en ekki sem tilraunaverkefni í örfá
ár. „Með einni reglugerðarbreytingu er allt
verðlaust,“ segir Eygló.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmanna-
eyjabæjar, tekur í svipaðan streng en hann
gagnrýnir stjórnvöld fyrir að staldra ekki við
og athuga heildaráhrifin. skulih@mbl.is
„Allt
verð-
laust“
Breytingar á sorp-
brennslum gagnrýndar
Sorpbrennsla
» Eygló Kristjáns-
dóttir spyr hvað
verði um lán á tíu
ára gamalli sorp-
brennslustöð.
» Hún kallar eftir
því að tekið sé
heildstætt á málinu.
» Hún efast um að
urðun sé umhverf-
isvænni en
brennsla.
MGagnrýna stjórnvöld »4
Stofnað 1913 67. tölublað 100. árgangur