Morgunblaðið - 20.03.2012, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2012
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Taktu einn hlut fyrir í einu því ef þú
ert með of mörg járn í eldinum þá nærðu
ekki tökum á neinu. Gerðu ekkert til þess að
rugla þetta jafnvægi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert í rómantískum hugleiðum og
ættir að gera þér glaðan dag með ástvini
þínum. Mundu að hagsmunir barnsins verða
að ganga fyrir öllu öðru.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt svo auðvelt með að fara
þínu fram, að þú þarft að gæta þess að
ganga ekki of nærri öðrum. Velgengni getur
þýtt eitthvað allt annað í þínum huga en
annarra.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Reyndu að komast hjá því að kaupa
hluti í stað þess að búa þá til. Góð tækifæri
gefast til að auka færni ykkar og þekkingu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nauðsynlegar breytingar standa fyrir
dyrum og þú þarft að vera sáttur við þær
áður en þú hefst handa. Enginn getur unnið
hvíldarlaust án þess að tapa áttum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú verður að leggja málin niður fyrir
þér í smáatriðum og vera viðbúinn alls kyns
uppákomum. Vertu hvergi smeykur; hleyptu
heimdraganum og skoðaðu þig um.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Tækifærin eru alltaf að berast og það
er bara spurning um að vera réttur maður á
réttum stað á réttum tíma. Treystu á sjálfan
þig og varastu áhrif frá öðrum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Óvænta gesti ber að garði og
þú verður að gera þér nokkurt ómak þeirra
vegna. Leyfðu öðrum að njóta sannmælis
þegar til kastanna kemur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert í góðu skapi en skalt
muna að það getur valdið vandræðum að
hlæja þegar það á ekki við. Einhver ágrein-
ingur gæti komið upp varðandi heim-
ilisþrifin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það hefur lítið upp á sig að gera
áætlanir ef þeim er svo stungið jafnharðan
undir stól. Gerðu þér dagamun, þegar allt er
í höfn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Fjölskyldumál krefst athygli þinn-
ar og þú mátt ekki bregðast. Hættu að eyða
tímanum til einskis og drífðu þig!
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert vel að þér og hefur skarpa
hugsun. Á þessu ári muntu ljúka ákveðnum
málum og rýma þannig til fyrir einhverju
nýju.
Helgi Seljan sendi vísu umstormviðrin á dögunum:
Í storminum hvein er rauk burt rokkur,
þá reiddist Lilja.
Samstaða er fríður flokkur
er fáir skilja.
Gunnar Thorsteinsson hringdi
og sagði: „Þetta er mikil gæðarík-
isstjórn sem við höfum. Hún skap-
ar alltaf yrkisefnið! Ég sé nú ekki
annað með því að herða enn á
höftunum, þá lamast allt atvinnu-
líf. Það á bara að svelta okkur inn
í Evrópusambandið. Mér datt í
hug ein vísa, sem ég kalla: „Hvað
yrði Íslandi fyrir bestu?“
Við höfum upplifað örlögin ein hin
verstu
allmargir hafa þegar fært mikla fórn
hvað yrði annað Íslandi fyrir bestu
en að hún félli hin volaða
kommastjórn.
Og Gunnar orti einnig í tilefni
af kosningum um nýtt embætti
innan Sjálfstæðisflokksins:
Embættið mun vara og vara
varanlega allt um það,
með Kristján Þór til vara vara
en vara fyrir hvað?
Ragnar Böðvarsson benti um-
sjónarmanni á að vísa eftir sig
hefði misritast í Vísnahorni gær-
dagsins og leiðréttist það hér
með:
Það er vandi að yrkja um ís
úti vindur gnauðar.
Hrynja mér úr höfði lýs
ég held þær séu dauðar.
Og til áréttingar orti Ragnar:
Hin er eins og að ég geti
ekki fundið stuðulinn
og ljóðstafi ég lítils meti.
– Lagaðu þetta Pétur minn!
Velunnari Vísnahornsins, eins
og hann kýs að kalla sig, miðlaði
umsjónarmanni tveim vísum sem
ortar eru af hagyrðingum „sem
vísast vissi hvorugur af öðrum en
kveðskapurinn kallast óneitanlega
sterklega á – eins og sagt er“. Sú
fyrri er eftir Steinunni Guð-
mundsdóttur á Heinabergi:
Fann ég eigi orðin þá
er ég segja vildi;
varð þó fegin eftir á
að ég þegja skyldi.
Og sú síðari eftir ókunnan höf-
und:
Get ég þeigi gert að því
guðs þótt feginn vildi
þó mér smeygist þankann í
það sem eigi skyldi.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af lúsum, Samstöðu og
„volaðri kommastjórn“
Víkverji brosti út í annað er hannlas frétt í Morgunblaðinu í gær
um bætta stundvísi flugfélagsins
Iceland Express. Hún gat nú varla
annað en batnað þegar félagið er
bara með eina flugvél í notkun og
flýgur á tvo áfangastaði í áætl-
unarflugi, skárra væri það nú. At-
hyglisverðara var þó að lesa að Ice-
landair þjónustar keppinautinn sinn
á Keflavíkurflugvelli. Menn eru
greinilega nokkuð heiðarlegir og
samviskusamir á þeim bæ. Það hlýt-
ur að vera freistandi að setja færi-
bandatöskurnar á hálfan hraða og
taka fleiri kaffipásur þegar vél frá
Iceland Express er annars vegar.
En svoleiðis gera menn auðvitað
ekki við litla bróður. Víkverji bíður
spenntur eftir því að sjá stundvísina
í sumar þegar vélarnar verða orðnar
þrjár og áfangastaðirnir mun fleiri.
x x x
Víkverji var hins vegar ekkertbrosmildur eftir að hafa farið
inn á vefi flugfélaganna og athugað
með flugmiða fyrir sumarfríið. Það
er ekkert gefið í þeim efnum, í raun
sama hvaða flugfélag á í hlut. Greini-
lega búið að smyrja vel á gjald-
skrána en það sem pirraði Víkverja
er uppsetning á verðinu og hvernig
reynt er að plata fólk með því að
gefa upp eitthvað farmiðaverð. Síð-
an á eftir að bæta við það sköttum og
„öðrum greiðslum“, eins og það er
kallað. Flugvallargjöld eru þar
stærsti liðurinn. Hreinlegra væri
bara að félögin gæfu upp fullt verð
strax í upphafi og þeir sem vildu sjá
sundurliðað verð geti valið um það.
x x x
Nú er mikið kvartað undan háueldsneytisverði og því hve ríkið
tekur til sín mikinn hluta. Víkverji
sér ekki betur en ríkið og flugvellir,
sem hér á landi eru í ríkiseigu, taki
litlu minni hlut af flugmiðanum en
lítið heyrist kvartað undan þessu.
Ekki er hægt að ætlast til þess af
FÍB að atast í þessu en hvar eru
Neytendasamtökin? Kannski þarf
að fara að stofna Félag íslenskra
flugfarþega. Með áframhaldandi
skattpíningarstefnu stjórnvalda
gæti sá hópur verið í útrýming-
arhættu og fámennt yrði á stofn-
fundi.
Víkverji
Orð dagsins: Andinn opinberast í sér-
hverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.
Kor. 12, 7)
ÞETTA ER
BARA PRÓUN
ÞETTA ER
BARA PRÓUN
HVAÐ HEITIR
HÖUÐBORG
NORÐUR-DAKOTA?
ÞAÐ
ER VERIÐ
AÐ PRÓ MIG!
BARA
22 DAGAR
Í AMÆLI
BEET-
HOVEN
ÞAÐ ÆTTI
EKKI AÐ
ÞURA AÐ
MINNA ÞIG Á
ÞETTA ÁRLEGA
HELGA,
ÉG ER KOMINN
HEIM!
HVERNIG
VAR Í
VINNUNNI?
ÞAÐ
VAR ALVEG
ÁGÆTT
EN ÉG HELD AÐ ÉG ÞURI AÐ
KAUPA MÉR BRYNJU
ÉG HE ALDREI ÁÐUR
ARIÐ Á STENUMÓT
MEÐ SPÁKONU
ÉG VEIT ÞAÐ
AUÐVITAÐ
ÞÁ ERU AUGLÝS-
INGARNAR BÚNAR OG
MYNDIN AÐ BYRJA
ÞESSI ÞARNA ER
MORÐINGINN OG ÞESSI
TVÖ ÞARNA VERÐA
ÁSTANGIN
ÞARNA SPÖRUÐUM
VIÐ OKKUR TVO TÍMA
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lf
ur
hr
æ
ði
le
gi
Fe
rd
in
an
d
G
æ
sa
m
am
m
a
og
G
rí
m
ur
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957