Morgunblaðið - 02.07.2012, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
Mallorca
Frá 72.950 kr.
10. júlí í 2 vikur
Heimsferðir bjóða
ótrúlegt tilboð á Club
Cala d´Or Park 10. júlí í
14 nætur. Önnur gisting í
boði á ótrúlegum kjörum
Club Cala d´Or Park
Frá kr. 72.950 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu
svefnherbergi.
Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 110.950
á mann. 10. júlí í 2 vikur.
4
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Af þeim tæplega 236 þúsund sem
voru á kjörskrá í forsetakosning-
unum á laugardag greiddu rúm-
lega 163 þúsund atkvæði. Heildar-
kjörsókn var því 69,2%.
Mest var kjörsóknin í Norð-
austurkjördæmi eða 72%. Lakasta
kjörsóknin var í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður, þar var kjörsóknin
rúmlega 66,5%. Fyrstu tölur bár-
ust frá Norðausturkjördæmi um
kl. 22.30 á laugardagskvöld. Síð-
ustu tölur bárust frá Suðvestur-
kjördæmi um kl. 6.30 að morgni
sunnudags.
Ljóst var frá fyrstu tölum að
Ólafur Ragnar Grímsson var með
góða stöðu. Alls staðar nema í
Reykjavík var hann með yfir 50%
atkvæðahlutfall frá fyrstu tölum.
Ólafur Ragnar var úrskurðaður
sigurvegari kosninganna skömmu
eftir að lokatölur bárust.
Forsetakosningar 2012
Lökust kjörsókn
í Reykjavík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Birgir Guðmundsson, stjórnmála-
fræðingur og dósent við Háskólann
á Akureyri, segir að úrslit forseta-
kosninganna hafi ekki komið á óvart
því að kannanir hafi verið búnar að
gefa þau til kynna. Hins vegar hafi
komið á óvart hvað stærri skoð-
anakannanir reyndust vera nærri
úrslitunum.
Birgir segir úrslitin eðlileg og
nefnir þrennt til sögunnar: Í fyrsta
lagi vegna þeirrar reynslu sem Ólaf-
ur Ragnar hafi sem slyngur stjórn-
málamaður, í öðru lagi vegna þess að
sitjandi forsetar njóti oftast ákveð-
ins forskots og í þriðja lagi vegna
þess að Ólafi hafi tekist að spila
kosningabaráttuna þannig að hann
stillti sér upp sem mótvægi við rík-
isstjórnina. Þannig hafi hann náð að
sækja til sín fylgi frá þeim sem væru
óánægðir með
ríkisstjórnina. Að
sama skapi hefði
Þóra Arnórs-
dóttir verið
stimpluð, með
réttu eða röngu,
sem frambjóð-
andi stjórnar-
flokkanna, og hún
hefði tapað á því.
Birgir segir að
eina spurningin sé hvort Ólafur
Ragnar hafi í raun ekki átt inni
meira fylgi sem sitjandi forseti, því
þeir hafi jafnan í ljósi sögunnar náð
góðum árangri gegn mótfram-
boðum. „Ég held að Ólafur hafi verið
að keppa að sumu leyti við sjálfan
sig í þessum kosningum. Það er
spurning hvort hann hefði hugs-
anlega getað fengið fleiri atkvæði,
hefði hann tilkynnt strax um ára-
mótin að hann ætlaði sér aftur í
framboð. Það sjónarspil sem skap-
aðist í kringum undirskriftalistann
og áskorunina á hann virkaði ótrú-
verðugt, og það kann að hafa kostað
hann einhver atkvæði. Hann getur
þó vel við unað, að hafa lagt glæsi-
legt mótframboð sem hann fékk á
móti sér.“
Þátttakan í kosningunum var lak-
ari í Reykjavík en hinum kjördæm-
unum. Birgir segir að meðal annars
hafi áhugaleysi á kosningunum og
gott veður á kjördag dregið úr þátt-
tökunni. Margir hafi nýtt helgina til
að fara úr bænum og það hafi end-
urspeglast í fleiri utankjörfundar-
atkvæðum en venjulega. Þá gæti
einnig spilað inn í ákveðin þreyta á
stjórnmálum, t.d. vegna setu Alþing-
is fram í júní. Birgir segir að það
verði áhugavert að sjá hvort kjör-
sóknin nú muni endurtaka sig í al-
þingiskosningunum sem verða
næsta vor en telur það þó ólíklegt.
Ólafur getur vel við unað
Athyglisvert hvað úrslitin voru nálægt könnunum
Dræm kjörsókn bendir til þreytu á stjórnmálum
Birgir
Guðmundsson
„Ég er mjög
ánægður með það
að könnunin sem
við birtum tveim-
ur dögum fyrir
kosningar er nán-
ast í algjöru sam-
ræmi við niður-
stöður forseta-
kosninganna,“
segir Einar Ein-
arsson, fram-
kvæmdastjóri Capacent Rannsókna,
en fyrirtækið er aðili að Gallup
International og tekur reglulega
þátt í alþjóðlegum könnunum á veg-
um þess.
Margir eru þeirrar skoðunar að
banna eigi birtingu skoðanakannana
stuttu fyrir kosningar og segja þær
vera skoðanamyndandi. „Ef við
skoðum niðurstöður kosninganna og
skoðum svo skoðunarkönnunina sem
við birtum stuttu fyrir, þá sjáum við
að það hefur lítil sem engin áhrif á
hegðun fólks,“ segir Einar.
„Í rannsóknarheiminum í dag eru
flestar kannanir gerðar á netinu og
það skiptir mestu máli þegar skoð-
unarkönnun er gerð, að ná sem
bestu svarhlutfalli,“ segir Einar, en
hann segir það algengan misskilning
að netkannanir séu alltaf óöruggari
en skoðanakannanir í gegnum síma,
því aðferðafræðin við kannanirnar
sé það sem skipti máli. pfe@mbl.is
Lítil áhrif á kosningar
Einar
Einarsson
Norðvesturkjördæmi
Ólafur Ragnar Grímsson 58,16%
Þóra Arnórsdóttir 29,08%
Ari Trausti Guðmundsson 7,3%
Herdís Þorgeirsdóttir 2,19%
Hannes Bjarnason 2,08%
Andrea J. Ólafsdóttir 1,18%
Norðausturkjördæmi
Ólafur Ragnar Grímsson 50,61%
Þóra Arnórsdóttir 34,31%
Ari Trausti Guðmundsson 9,18%
Herdís Þorgeirsdóttir 2,85%
Andrea J. Ólafsdóttir 1,7%
Hannes Bjarnason 1,35%
Suðurkjördæmi
Ólafur Ragnar Grímsson 63,57%
Þóra Arnórsdóttir 23,88%
Ari Trausti Guðmundsson 7,77%
Herdís Þorgeirsdóttir 2,44%
Andrea J. Ólafsdóttir 1,46%
Hannes Bjarnason 0,88%
Suðvesturkjördæmi
Ólafur Ragnar Grímsson 52,97%
Þóra Arnórsdóttir 33,28%
Ari Trausti Guðmundsson 8,7%
Herdís Þorgeirsdóttir 2,45%
Andrea J. Ólafsdóttir 1,88%
Hannes Bjarnason 0,71%
Reykjavík suður
Ólafur Ragnar Grímsson 49,55%
Þóra Arnórsdóttir 36,04%
Ari Trausti Guðmundsson 9,05%
Herdís Þorgeirsdóttir 2,63%
Andrea J. Ólafsdóttir 1,95%
Hannes Bjarnason 0,7%
Reykjavík norður
Ólafur Ragnar Grímsson 46,26%
Þóra Arnórsdóttir 38,5%
Ari Trausti Guðmundsson 9,13%
Herdís Þorgeirsdóttir 3,11%
Andrea J. Ólafsdóttir 2,18%
Hannes Bjarnason 0,83%
Atkvæðaskipting eftir kjördæmum
Skipting atkvæða í forsetakosningunum
Óla
fur
Rag
nar
50%
40%
30%
20%
10%
0
Þór
a
Ari
Tra
ust
i
Her
dís
And
rea
Han
nes
52,78%
33,16%
8,64%
2,63% 1,8% 0,98%
Icesave 2011
Heildarkjörsókn 75,3%
Icesave 2010
Heildarkjörsókn 62,7%
Stjórnlagaþingskosning 2010
Landið eitt kjördæmi 36,8%
Alþingiskosningar 2009
Heildarkjörsókn 85,1%
Samanburður á kjörsókn
í síðustu kosningum
Forsetakosningar 2012
Heildarkjörsókn 69,2%
Norðvesturkjördæmi 71,8%
Norðausturkjördæmi 72%
Suðurkjördæmi 68,3%
Suðvesturkjördæmi 69,9%
Reykjavík suður 68,8%
Reykjavík norður 66,5%
Kjörsókn
Forsetakosningar 2012
Auðir 2,15%
Ógildir 0,3%
Norðvesturkjördæmi
Auðir 1,7%
Ógildir 0,2%
Norðausturkjördæmi
Auðir 1,6%
Ógildir 0,3%
Suðurkjördæmi
Auðir 0,9%
Ógildir 0,1%
Suðvesturkjördæmi
Auðir 2,4%
Ógildir 0,3%
Reykjavík suður
Auðir 2,7%
Ógildir 0,4%
Reykjavík norður
Auðir 2,2%
Ógildir 0,3%
Kosningar þegar sitjandi
forseti fékk mótframboð
2004
Auðir 20,6%
Ógildir 0,6%
1988
Auðir og ógildir 2%
Auðir og
ógildir seðlar