Morgunblaðið - 02.07.2012, Qupperneq 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is
Útsalan hefst í dag
v/Laugalæk • sími 553 3755
Reiðmennskuverðlaun Félags tamninga-
manna, FT-verðlaunin, voru að þessu sinni
veitt Sigurbirni Bárðarsyni, en verðlaunin eru
veitt þeim reiðmanni sem þykir hafa sýnt fyr-
irmyndarreiðmennsku á Landsmóti hesta-
manna sem skilar miklum afköstum og ár-
angri. Sigurbjörn Bárðason átti góðu gengi að
fagna á mótinu. Hann sigraði í 150 og 250
metra skeiði og varð annar í 100 metra flug-
skeiði. Þá endaði hann í 4. sæti í töltkeppninni
og 3. sæti í A-flokki gæðinga. Þá reið hann
með afkvæmahópi Markúsar frá Langholtsp-
arti á gæðingnum Ögra frá Hólum, en þess má
geta að Sigurbjörn sigraði í B-flokki gæðinga
á landsmóti í Reykjavík árið 2000 á Markúsi.
Sigurbjörn sem er 60 ára gamall hefur
keppt frá unga aldri og á því langan keppn-
isferil að baki. Hann hefur ávallt verið mikil
fyrirmynd yngri knapa og er eini hestaíþrótta-
maðurinn sem hlotið hefur titilinn íþróttamað-
ur ársins. Hann á einnig fjölmarga Íslands-,
Norðurlands-, landsmóts- og heimsmeist-
aratitla að baki. Það var einróma álit dóm-
nefndar FT að Sigurbjörn væri mjög vel að
verðlaununum kominn þar sem hann náði
glæsilegum árangri á landsmótinu með afar
fallegri, prúðri og faglegri reiðmennsku.
Fyrirmynd Sigurbjörn Bárðarson hlaut reið-
mennskuverðlaun FT á landsmótinu.
Reiðmennsku-
verðlaun FT
Það var hart barist um sigur í ungmenna-
flokki í A-úrslitunum í gær. Kári Steinsson
sigraði að lokum eftir frábæra yfirferð sem
þeir hlutu 8,96 fyrir. Það voru sviptingar á
toppnum því Teitur Árnason kom efstur inn,
Ásmundur Ernir Snorrason stóð efstur eftir
hægt tölt og var keppnin spennandi fram á
lokamínútu þar sem Kári, Ásmundur og Teit-
ur voru mjög jafnir framan af.
1. Kári Steinsson
Tónn frá Melkoti - 8,78
2. Ásmundur Ernir Snorrason
Reyr frá Melabergi - 8,74
3. Teitur Árnason
Hróarskelda frá Hafsteinsstöðum - 8,70
4. Arnar Bjarki Sigurðarson
Kaspar frá Kommu - 8,66
5. Ragnar Tómasson
Sleipnir frá Árnanesi - 8,65
6. Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir
Glíma frá Bakkakoti - 8,65
7. Julia Lindmark
Lómur frá Langholti - 8,63
8. Ellen María Gunnarsdóttir
Lyfting frá Djúpadal - 8,43
9. Anna Kristín Friðriksdóttir
Glaður frá Grund - 8,42
Ungmennaflokkur Kári Steinsson og Tónn
frá Melkoti sigruðu og fögnuðu gríðarlega.
Kári Steinsson
sigraði að lokum
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir sigraði í
unglingaflokki eftir spennandi keppni. Það
var Dagmar Öder Einarsdóttir sem gaf ekk-
ert eftir en hún sigraði í B-úrslitum og náði
öðru sæti undir lokin. Þá munaði einnig að-
eins 0,04 á þriðja og sjöunda sæti. Það var að-
eins einn strákur í úrslitunum, Gústaf Ásgeir
Hinriksson, en hann lenti í því óhappi í mikilli
rigningu að hesturinn rann með þeim afleið-
ingum að hesturinn fór á hliðina og þurftu
þeir því að hætta keppni.
1. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
Blæja frá Háholti - 8,83
2. Dagmar Öder Einarsdóttir
Glódís frá Halakoti - 8,73
3. Þórdís Inga Pálsdóttir
Kjarval frá Blönduósi - 8,54
4. Brynja Kristinsdóttir
Bárður frá Gili - 8,53
5. Jóhanna Margrét Snorradóttir
Solka frá Galtastöðum - 8,52
6. Glódís Helgadóttir
Geisli frá Möðruvelli - 8,50
7. Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Lárus frá Syðra-Skörðugili - 8,50
8. Gústaf Ásgeir Hinriksson
Húmvar frá Hamrahóli
Unglingaflokkur Guðmunda Ellen Sigurð-
ardóttir og Blæja frá Háholti sigruðu.
Unglingarnir
gáfu ekkert eftir
Á laugadaginn voru A-úrslit í barnaflokki.
Hestakosturinn hjá krökkunum var ótrúleg-
ur og sigraði Glódís Rún örugglega með 9,02.
Svo há einkunn hefur aldrei sést í barna-
flokki á landsmóti áður. Glódís og Kamban
komu efst inn á mót og héldu forystu allt mót-
ið. Sylvía Sól lenti í því óhappi í úrslitunum að
hesturinn hennar fór út af brautinni og var
því dæmd úr leik og fékk ekki einkunn. Aron
Freyr var hástökkvarinn en hann vann B-
úrslit og endaði í öðru sæti.
1. Glódís Rún Sigurðardóttir
Kamban frá Húsavík - 9,02.
2.Aron Freyr Sigurðarson
Hlynur frá Haukatungu syðri - 8,72.
3.Thelma Dögg Tómasdóttir
Taktur frá Torfunesi - 8,58.
4. Viktor Aron Adolfsson
Leikur frá Miðhjáleigu - 8,56.
5. Bríet Guðmundsdóttir
Dagbjartur frá Flagbjarnarholti - 8,47.
6. Vilborg Marí Ísleifsdóttir
Svalur frá Blönduhlíð - 8,39.
7. Annika Rut Arnarsdóttir
Gáta frá Herríðarhóli - 8,34.
8. Sylvía Sól Guðmundsdóttir,
Skorri frá Skriðulandi.
Barnaflokkur Glódís Rún Sigurðardóttir og
Kamban frá Húsavík sigruðu örugglega.
Glódís fékk 9,02
í barnaflokki
Flugubikarinn hlaut Gletta frá Þjóð-
ólfshaga 1 sem efsta 7 vetra og eldri
hryssa landsmóts með 8,53.
Kröflubikarinn, sem veittur er
efstu hryssu í 6 vetra flokki, hlaut
Spá frá Eystra-Fróðholti með ein-
kunnina 8,63. Spá hlaut einnig Þor-
kelsskjöldinn sem veittur er efstu
einstaklingsdæmdu hryssu lands-
móts hverju sinni.
Hremmsuskjöldinn hlaut Fura frá
Hellu sem efsta 5 vetra hryssan.
Hún er með 8,46 í aðaleinkunn.
Ljónslapparbikarinn hlaut Pála
frá Hlemmiskeiði 3 sem varð efst í 4
vetra flokki hryssna með 8,24.
Feldman-styttuna hlaut Arion frá
Eystra-Fróðholti sem efsti 5 vetra
stóðhestur LM 2012 með 8,67 í ein-
kunn. Arion hlaut einnig Farandbik-
ar FEIF sem hæst dæmda kynbóta-
hross Landsmóts 2012.
Náttfarabikarinn hlaut heims-
meistarinn Nói frá Stóra-Hofi. Hann
varð efstur í flokki 4 vetra stóðhesta
með einkunnina 8,51 sem er hæsta
kynbótaeinkunn 4 vetra stóðhests á
heimsvísu.
Gjóstubikarinn hlaut Hrannar frá
Flugumýri II sem varð efstur í flokki
6 vetra stóðhesta með 8,67.
Faxabikarinn hlaut Konsert frá
Korpu, efsti 7 vetra og eldri stóð-
hestur á LM 2012 með 8,58.
Þorkelsskjöldur Spá frá Eystra-Fróðholti hlaut Þorkelsskjöldinn á LM 2012
sem hæst dæmda kynbótahross mótsins, en hún varð efst 6 vetra hryssna.
Efstu kynbótahross