Morgunblaðið - 02.07.2012, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Forsetakosningar Ólafur Ragnar Grímsson fylgist sposkur með Þóru Arnórsdóttur í viðtali við kosningasjónvarp Ríkisútvarpsins eftir að fyrstu tölur liggja fyrir á laugardagskvöldið.
Árni Sæberg
Gróðurhúsavandi
heimsins fer hraðvax-
andi með iðnvæðingu
Indlands og Kína,
þar sem búa sam-
anlagt 37% jarð-
arbúa, borið saman
við 25% samanlagt í
núverandi iðnríkjum.
Nærtæk viðbrögð við
þessum vanda á
hnattræna vísu eru
að þróa aðferðir til að
nýta eldsneyti úr jörðu án þess að
sleppa koltvísýringi út í andrúms-
loftið. Vísir að þróun á slíkri
tækni er nú byrjaður í Bandaríkj-
unum í samvinnu við fyrirtæki í
mörgum löndum, þar á meðal
Kína, sem nú er orðið mesta kola-
framleiðsluland í heimi, með tvö-
falda kolaframleiðslu á við Banda-
ríkin og enn fer vaxandi.
Eldsneyti úr jörðu sér nú þegar
fyrir kringum 90% af orkunotkun
mannkynsins.
Ef/þegar það tekst að nýta elds-
neyti úr jörðu án gróðurhúsa-
áhrifa nýtur Ísland þess eins og
önnur lönd.
Hlutur kjarnorku í viðleitninni
til að draga úr gróðurhúsaáhrifum
á heimsvísu er ennþá takmarkaður
en engan veginn hverfandi. Óhöpp
í kjarnorkurafstöðvum af því tagi
sem urðu í Japan nýlega og hafa
áður orðið í Bandaríkjunum
(Three Mile Island) og í Úkraínu
(Tsjernobil) eru sjaldgæf sem bet-
ur fer. Frakkar framleiða meg-
inhluta sinnar raforku úr kjarn-
orku og hafa gert það í áratugi án
óhappa. Þjóðverjar hafa líka lengi
framleitt raforku úr kjarnorku án
óhappa.Sömuleiðis Svíar og Finn-
ar. Og kjarnorkuver af Tsjernobil-
gerð hafa starfað í áratugi án
óhappa í Norður-
Rússlandi og Litháen.
Á heimsvísu er
reynslan af nýtingu
kjarnorku til raforku-
vinnslu þannig góð.
Kjarnorka er hins-
vegar þess eðlis að öll
mistök í nýtingu
hennar vekja meiri
ótta en efni eru til.
Ranglega tengja
menn kjarnorku
ómeðvitað við kjarn-
orkusprengjur. En
kjarnorkuver til framleiðslu á raf-
magni getur ekki sprungið eins og
kjarnorkusprengja samkvæmt lög-
málum náttúrunnar, enda þótt það
geti valdið geislamengun.
Langsamlega stærsti skerfurinn
sem Ísland getur lagt af mörkum
til baráttunnar við gróðurhúsa-
áhrifin í heiminum felst í því að
hýsa hér á landi iðnað sem nýtir
raforku í stórum stíl og veldur
miklum gróðurhúsaáhrifum ef raf-
orkan er framleidd úr eldsneyti úr
jörðu, kolum, olíu og gasi.
Nauðsynlegt er að afla alþjóð-
legrar viðurkenningar á þessari
staðreynd. Raforkufrekur iðnaður
á Íslandi sparar heiminum mikla
losun gróðurhúsategunda. Sann-
gjarnt er að sá sparnaður komi til
frádráttar losun gróðurhúsa-
lofttegunda frá orkufrekum iðnaði
á Íslandi.
Eftir Jakob
Björnsson
»Raforkufrekur
iðnaður á Íslandi
sparar heiminum
mikla losun gróður-
húsategunda.
Jakob
Björnsson
Höfundur er fyrrverandi
orkumálastjóri.
Framlag Íslands
í baráttunni við
gróðurhúsavandannSálfsagt hefur fréttinum fjármálaráðherrana
tíu, sem héldu fund í
Berlín fyrir Jónsmessu,
þar sem rætt var um að
stofna stórríki ESB,
farið fram hjá flestum.
Á dagskrá var upp-
bygging hers, nýr
„AGS“-sjóður og fjár-
málaráðherra fyrir að-
ildarríkin. Hópurinn,
sem kallar sig „Framtíð
Evrópu“, á að koma með tillögur til
leiðtoga ESB um sköpun „stjórn-
málasambands“ ESB.
Undir leiðsögn utanríkisráðherra
Þýskalands, Guido Westerwelle, var
tilgangi verkefnisins lýst með orðum
ráðherrans: „Við eigum að nota
kreppuna til að taka sögulegt skref að
auknum samruna. Rökin fyrir
Evrópu eru æðri málstað einstakra
þjóða.“ Í viðtali við Figaró sagði
Westerwelle: „Við þurfum að ræða
hispurslaust um leiðir til að gera
Evrópu sterkari, afkastameiri og taka
eigið frumkvæði.“ Í bráðabirgða-
skýrslu hópsins er sameiginleg
fjármálastjórn yfir fjármálum þjóða
boðuð „til að tryggja að evran verði
óafturkræf“. 10 ríkja hópurinn, sem í
eru stærstu ríki ESB á meginlandinu
eins og Þýskaland, Frakkland, Spánn,
Ítalía, Austurríki, Pólland og einnig
minni lönd eins og Danmörk, mun
birta tilllögur sínar í haust.
Með formlegu starfi tíu ríkja hóps-
ins „Framtíð Evrópu“ er staða Evr-
ópumála komin á nýtt stig. Þjóðverjar
hafa tekið forræðið og stefnt er að
stofnun stórríkis. Að 10 ríki gangi
saman og verði sem eitt er lausn sem
hentar stjórnvöldum Þýskalands til
að fá landsmenn með sér í uppbygg-
ingu stórveldisins. „Framtíð Evrópu“
hefur miðstöð í Berlín og þaðan mun
heimsveldinu stjórnað. Með uppbygg-
ingu eigin, sjálfstæðs herafla undir
forystu Þjóðverja mun stærri hern-
aðarmáttur leystur úr læðingi en nú-
tíminn hefur áður kynnst og mun það
breyta öryggismálum öllum í heim-
inum. Vænta má, að NATO veikist til
muna. Löskuð Banda-
ríki eftir stríðsrekstur
síðustu ára eru sjálf að
kollsteypast í eigin
skuldakreppu og þá
munu hryðjuverkaöfl
eins og al-Qaeda o.fl. sjá
sér leik á borði að færa
út kvíarnar. Ástandið
fyrir botni Miðjarðar-
hafs er púðurtunna,
sem getur sprungið,
hvenær sem er. Kín-
verjar munu ekki fara
varhluta af evru- og
skuldakreppunni og má
þá búast við nýrri hallarbyltingu, þar
sem uppreisn verður gerð gegn „kap-
ítalistum og byltingarsvikurum“ og
grímulausir kommúnistar veifa vopn-
um í Norður-Kóreustíl. Hafi Kínverj-
ar náð fótfestu á Íslandi mun Ísland
verða notað í hernaðartilgangi, sem
þjónar heimsyfirráðum Kínverja.
Þetta er nýrri veruleiki en Mats
Persson, hagfræðiprófessor við
Stokkhólmsháskóla, lýsir í nýju riti
um skuldakreppuna, þar sem „björg-
un evrunnar“ sl. tvö ár er skilgreind
sem brot á Maastricht-samningnum
frá 1992. Þá var samþykkt, að önnur
lönd legðu sig ekki í fjármál einstakra
evrulanda. Óhugsandi er skv. Maa-
stricht-samningnum, að lönd taki sig
saman eins og nú hefur gerst með
þátttöku Seðlabanka Evrópu, sem
kaupir ríkisskuldabréf einstakra
evrulanda. Mats skrifar: „Ákvörðunin
um að „bjarga evrunni“ er í reynd
gríðarleg eignayfirfærsla frá skatt-
greiðendum til eigenda bankanna.“
Fyrir utan bankaeigendur hafa bú-
rókratar í Brussel hagsmuna að gæta
vegna eigin frama og afkomu: „Hags-
munir framkvæmdastjórnarinnar
falla saman með hagsmunum bank-
anna og vaxandi miðstýringu nýrri og
stærri sjóða.“ Niðurstaða Mats er, að
ESB kyndi í reynd undir ábyrgðar-
lausri spákaupmennsku banka, þar
sem skattgreiðendum ESB er gert að
greiða tap þeirra. Framkvæmda-
stjórnin vill tryggja afkomu og fram-
tíð búrókratanna í Brussel. Prófess-
orinn vill, að ESB stöðvi tafarlaust
„björgun evrunnar“ og fylgi Maa-
stricht-samningnum. Sú leið er því
miður ekki trúverðug, þar sem reglur
samningsins og seinni stöðuleikasátt-
mála með hámark 60% ríkisskulda og
3% tapi ríkissjóða hafa verið brotnar
af öllum nema Eistlandi, Finnlandi,
Lúxemborg og Svíþjóð.
„Framtíð Evrópu“ hefur valið aðra
leið. Myndun stórríkisins til að
„bjarga evrunni“. Það Evrópusam-
band sem ríkt hefur sl. tvö ár tilheyr-
ir sögunni. Hin nýja staða með stór-
veldi 10 ríkja, sem vinna sem eitt
undir forystu Þjóðverja, vekur áleitn-
ar spurningar um framtíð álfunnar.
Heimsmyndin breytist með nýjum
valdahlutföllum sem einnig kalla á
breytt viðhorf öryggismála vegna
ásetnings stórríkisins um uppbygg-
ingu eigin herafla. „Framtíð Evrópu“
mun sniðganga bann Þjóðverja við
uppbyggingu hers eftir seinni heims-
styrjöldina og gera það að engu.
Við má búast dýpkandi mótsetn-
ingum milli stórveldismarkmiða ann-
ars vegar og ríkja sem vilja frjálst
samstarf á jafnréttisgrundvelli hins
vegar. Þróun komandi missera verð-
ur háð uppbyggingu stórveldisins og
þeirrar þjóðfélagslegu spennu sem
vex innan ESB og getur leitt til blóð-
ugra átaka. Þrælaböndin, sem þrí-
eykið ESB, SE og AGS eru að
hlekkja almenning margra evrulanda
í, veldur djúpum þjóðfélagslegum
óróa um álfuna alla.
Hvað svo sem manni finnst um þá
mynd, sem ég hef hér dregið upp, þá
er ljóst að draumur Hitlers getur
ræst, verði hún að raunveruleika. Við
getum samt öll andað rólega, því okk-
ar eigin Bagdad Bob, Össur Skarp-
héðinsson frá litla fallega Íslandi, ætl-
ar að bjarga málunum með því að
ganga í klúbb hinna rjúkandi rústa.
Eftir Gústaf Adolf
Skúlason » „Framtíð Evrópu“
mun sniðganga bann
Þjóðverja við uppbygg-
ingu hers eftir seinni
heimsstyrjöldina og
gera það að engu.
Gústaf Adolf
Skúlason
Höfundur er fyrrv. ritari
Smáfyrirtækjabandalags Evrópu.
„Framtíð Evrópu“