Morgunblaðið - 02.07.2012, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er óþarfi að vera svo feiminn að
þora ekki að viðra skoðanir sínar við vini og
vandamenn. Lestu gömul ástarbréf og flettu
í dagbókum ef það á við.
20. apríl - 20. maí
Naut Hlutirnir kunna oft að virðast flóknari
en þeir eru. Huggaðu þig við það að verk
þitt er vel metið af þínum nánustu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur bætt umhverfi þitt og
samband við aðra úr fjölskyldunni á fjöl-
marga vegu. Byrjaðu bara á fyrsta verkefn-
inu og leystu þau svo eitt af öðru.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forðastu rifrildi við vini eða félaga í
dag, þér hættir til að ýta undir ágreining
með framkomu þinni núna. Ef þú hefur ekki
tekið eftir því, þá ert þú jafn hæfur og allir
aðrir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það sem þú ákveður að gera í dag
munt þú leysa mjög vel úr hendi. Hvað get-
urðu gert til að grynnka á skuldunum?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt skapandi dag í vændum. Skil-
greindu mörkin og mundu að eigir þú að
geta hjálpað öðrum þarft þú fyrst að hugsa
um þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert venju fremur metnaðargjarn í
dag. Ef þú ert ekki vinur viss aðila en elskar
hann samt á einhvern hátt, skaltu finna út
hvernig þið getið orðið vinir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er mikil togstreita innra
með þér svo að þú átt erfitt með að ein-
beita þér. Leitaðu þér aðstoðar og komdu
lagi á tilfinningalíf þitt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hnökrar af ýmsu tagi gætu gert
vart við sig í vinnunni. Þú skalt njóta þess
að vera í sviðsljósinu ef þú færð tækifæri til
þess. Að gera eitthvað að óathuguðu máli er
ávísun á vandræði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert að springa úr krafti og
bjartsýni á framtíðina og ekkert fær stöðvað
þig. Sá sem hunsar tilfinningar þínar er
meira særður en þig grunar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hreinlega þráir spennu og
leitar að nýjum leiðum til þess að svala
þorsta sínum. Breyttu út af venjunni með
því að gera eitthvað alveg nýtt til að örva
hugann.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver náinn þér gæti valdið þér
vonbrigðum í dag. Gleymdu því ekki að upp-
örvun er yfirleitt árangursríkari en skammir,
þær duga ekki lengi.
Karlinn á Laugaveginum varkampakátur þegar hann
hringdi í mig. Hann sagðist vera á
Landsmóti hestamanna og ekki
ætla á kjörstað:
Hér í Víðidal hrossum ég hrósa
og horfi á þá Grána og Mósa,
því að kosningar bara
eins og kannanir fara
- svo alveg er óþarft að kjósa.
Svo fór hann að tala um Þor-
stein Valdimarsson. „Hann var
gott limruskáld,“ sagði hann.
„Stefán Þorláksson minnist oft á,
að Vilmundur landlæknir hefði
komið í Svalbarð og verið þar eina
nótt eða tvær:
Gamla Vilmundarvitið
er vitanlega orðið slitið
á stöku stað, -
svo þeir stíga ekki í það
nema stundum eins og þið vitið.“
Svo tautaði karlinn eins og við
sjálfan sig:
Þeir segja það sé orðið slitið
en samt þegar á það er litið
að til þess að þvarga
þarf ekki marga
ef Þorvaldur leggur til vitið.
Ég vildi gleðja karlinn, svo að ég
fór með limru eftir Kristján Karls-
son og vandaði mig sérstaklegq
með framburðinn á „Don Quixote“
svo að h-hljóðið heyrðist stuðlanna
vegna:
Hvað sem öllu öðru líður
ævinlega á nýjan leik
ef Don Quixote að heiman ríður
fer herra Sancho líka á kreik.
Og þar sem ég vissi ekki hvernig
honum líkaði gladdi ég hann með
annarri riddarasögu og nú eftir
Hrólf Sveinsson:
Frú Rannveig kom ríðandi á ketti
svo roggin, þótt að henni setti
mjög kröftugan grát
þegar kötturinn át
hana alla á einu bretti.
Og af því að ég vissi að Guðni
Ágústsson var með karlinum á
landsmótinu lét ég þessa stöku
fjúka eftir framsóknarmanninn og
alþingismanninn Skúla Guð-
mundsson:
Það var skrýtið sem ég sá
á Suðurlandi núna
þegar þeim liggur lítið á
leggja þeir hnakk á kúna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þeir segja það
sé orðið slitið
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
HÚRRA!
ÉG ER ORÐINN
FIÐRILDI!
ÚFF,
ÉG ER
ORÐINN
SVOLÍTIÐ
VANKAÐUR
ÉG HELD AÐ ÉG
LIGGI BARA OG
BÍÐI EFTIR
LEIGUBÍL
NÁTTÚRUNNI
FER VÍST
LÍKA
HNIGNANDI
HMM... ÞAÐ HEFUR
PADDA KOMIST INN
HÉLSTU VIRKILEGA AÐ
ÉG MYNDI EKKI TAKA
EFTIR ÞÉR!?
ÞARNA
STENDUR:
„VIÐ FÓRUM
SUÐUR YFIR VETURINN.
EF ÞÚ HEFUR EITTHVAÐ
VIT Í KOLLINUM ÞÁ MUNT
ÞÚ GERA ÞAÐ LÍKA”
HVER ERTU
EIGINLEGA OG
HVAÐAN
KOMSTU?
ÉG HEITI
„GOODY”
OG VAR Í
LEIKFANGA-
KASSANUM SEM
ÞIÐ KEYPTUÐ
UM DAGINN
SÝNDU MÉR HVAR
KLÓSETTIÐ ER!
GOTT OG VEL,
GOTT OG VEL...
GRÍMUR, HVERNIG
STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ ERU
RÚSÍNUR Í KLÓSETTINU!
Enn og aftur fór Víkverji að hugsaum hjólreiðar á dögunum og erf-
iðleikana sem virðast fylgja þeim.
Það má ekki skilja svo að átt sé við
líkamlega erfiðið, heldur frekar
vandamálin sem virðast fylgja því að
mörgum tegundum umferðar sé att
saman án nokkurra ráðstafana. Mál-
um er þannig farið á litla Íslandi að
við erum fá, skattar og útsvar þar af
leiðandi frekar lágt á hvern fermetra.
Reykjavík er nefnilega litlu minni en
Queens-hverfið í New York að flatar-
máli en þar búa, samkvæmt nýlegu
mati, um tvær og kvartmilljón og það
liggur í augum uppi að í svona
dreifðri byggð eru góðar samgöngu-
æðar mikilvægar
x x x
Á þessum síðustu og verstu tímumhækkandi bensínverðs og þess-
um nýjustu og bestu tímum aukinnar
vitundar um heilbrigði liggur í augum
uppi að spara við sig í bílanotkun. Þá
er reiðhjól góður kostur en þar er
ljóður á ráði. Hjólreiðafólk hefur orð-
ið útundan í borgarskipulaginu, það
er að batna en þangað til þurfum við
að vinna saman.
x x x
Á flestum stöðum borgarinnar eruvalmöguleikar reiðhjólamanns-
ins gatan, gangstéttin eða göngustíg-
urinn. Vissulega er afmörkuðum reið-
hjólastígum að fjölga en oft eru hinir
möguleikarnir þeir einu. Reiðhjóla-
fólk setur sig í hættu með því að nota
götuna og hætt er við að truflanir geti
orðið á umferð þurfi ökumenn sífellt
að vera að sveigja frá því. Á göngstíg-
unum er hættan svipuð nema þar eru
hjólin orðin hraðskreiðu tækin sem
geta slasað þá gangandi. Í ljósi þessa
er það hugmynd Víkverja að gang-
andi reyni að vera meira meðvitaðir
þegar þeir eru á ferð þar sem umferð
hjólandi er mikil og taka kannski ekki
allan stíginn. Eins verða hjólandi að
vera vakandi og láta þá gangandi vita
að þeir nálgist með því að nota bjöll-
una. við verðum að víkja hvert fyrir
öðru og það er best að gera til hægri
eins og venja er í umferðinni. Síðast
en ekki síst verða ökumenn að horfa í
kringum sig og passa sig á því að hjól-
reiðamaður getur auðveldlega verið á
40 km hraða þegar hann nálgast
gatnamótin. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Í hverjum pakka af
Fjólu Lúxus salernispappír
er ein rúlla vafin happamiða.
Innan á miðanum kemur í ljós
hvort heppnin sé með þér.
Meðal vinninga:
Auk fjölda annarra vinninga
Flug og gisting fyrir 2 innanlands
RÚLLU
LEIKURINN