Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 171. tölublað 100. árgangur
Græddu á
gulli á
Grand Hótel
í dag frá kl.
11:00 til 19:00
Upplýsingar og tímapantanir,
Sverrir s. 661 7000
sverrir@kaupumgull.is
GUÐMUNDUR
KVADDI MEÐ SIGRI
Í KAPLAKRIKA
HEIMSPEKI
OG ÍHUGUN
Í HAPKIDO
ÞORGERÐUR MEÐ
KÓRINN Á HÁTÍÐ Í
TÓRÍNÓ Á ÍTALÍU
BARDAGALIST 10 HAMRAHLÍÐARKÓRINN 33LANDSLIÐIÐ Á ÓL ÍÞRÓTTIR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Menn horfa til aukinna vöruflutn-
inga frá Kyrrahafi til Atlantshafs um
Norðuríshafsleiðina og þá er Ísland
afar vel staðsett og nægir þar að
horfa til Finnafjarðar undir Langa-
nesi. Á Finnafjarðarsvæðinu væri
því fýsilegt að byggja upp umskip-
unarhöfn fyrir vörur sem yrði um-
skipað og þær síðan fluttar frá
Finnafirði til Evrópu og Bandaríkj-
anna,“ segir Þorsteinn Steinsson,
sveitarstjóri á Vopnafirði, sem telur
einsýnt að siglingar um Norðurís-
hafið geti keppt við vöruflutninga
um Súez-skurðinn í framtíðinni.
Halldór Jó-
hannsson, skipu-
lagsráðgjafi
Langanesbyggð-
ar og talsmaður
Huang Nubo,
hefur unnið fram-
tíðarskipulag fyr-
ir Vopnafjörð og
nágrenni. Er þar
m.a. gert ráð fyrir
15.000 manna
byggð við Þórshöfn, stórum flugvelli
þar og stórskipahöfn í Finnafirði.
Aðeins hefur verið dregið úr um-
fangi þessara áætlana í nýju aðal-
skipulagi en áfram er miðað við stór-
skipahöfn í Finnafirði.
Þorsteinn kveðst fylgjandi því að
olíuhreinsunarstöð rísi í Finnafirði.
Umhverfisvæn olíuhreinsun
„Gríðarlegt magn óunninnar olíu
er flutt frá Múrmansk í Rússlandi til
Bandaríkjanna og framhjá Íslandi.
Ef við hugsum grænt, eins og er dá-
lítið tíska í dag, er mun umhverfis-
vænna að olían kæmi í land á Íslandi
til vinnslu og hreinsunar … Við höf-
um skoðað olíuhreinsunarstöðvar
víða. Sums staðar eru þær and-
styggilegar en annars staðar eru
þær mjög vel búnar m.t.t. mengunar
og umhverfisins,“ segir Þorsteinn
sem bindur vonir við að olíuleit á
Drekasvæðinu hefjist á næsta ári.
Ekki eru allir á eitt sáttir um þess-
ar hugmyndir og sakar Guðmundur
Vilhjálmsson, eigandi jarðarinnar
Syðra-Lóns í nágrenni Þórshafnar,
sveitarstjórnir á svæðinu um hroka.
„Sveitarstjórnir á svæðinu eiga
hvorki landið né geta þær sýnt fram
á almenningsþörf fyrir því að stór-
skipahöfn rísi á svæðinu. Það er til
dæmis til skipulagt svæði í Eyjafirði
í eigu sveitarfélaganna þar sem gæti
allt eins risið stórskipahöfn,“ segir
Guðmundur sem stendur ásamt
nokkrum landeigendum í málaferl-
um við sveitarstjórn Langanes-
byggðar vegna málsins.
MOlíuhreinsunarstöð rísi »14
Keppi við Súez-skurðinn
Sveitarstjóri á Vopnafirði sér fyrir sér stóra umskipunarhöfn á Austurlandi
Talsmaður Huang Nubo hefur gert drög að stórfelldri iðnaðaruppbyggingu
Þorsteinn
Steinsson
Guðrún Jónsdóttir, fædd á Bala í Gnúpverjahreppi, og fjórir niðjar hennar
komu saman á veitingastaðnum Lauga-ási í gær. Guðrún, sem varð 101 árs
í júní síðastliðnum, er einn af tryggum viðskiptavinum staðarins en þar
snæddi hún gjarnan vínarsnitsel eftir að hafa sótt vínartónleika í Há-
skólabíói ásamt syni sínum. Guðrún fylgist vel með fréttum og ekki síður
vel með handboltanum en meðal niðja hennar er mikið handboltafólk, með-
al annars barnabarnabarnið Arnór Atlason, sem lék með landsliði Íslands á
móti Argentínu í Kaplakrika í gærkvöldi. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fimm ættliðir komu saman á Lauga-ási
Það lítur út
fyrir að þetta
verði erfitt sum-
ar. Laxagöng-
urnar eru ekki
jafngóðar og
undanfarin ár,“
segir Guð-
mundur Við-
arsson, umsjón-
armaður veiðihússins við Norðurá.
Veiðimenn á vestanverðu landinu
fengu ekki þær rigningar um
helgina sem þeir vonuðust eftir, en
ár eru margar vatnslitlar og veiðin
víða döpur. „Það óx aðeins í ánni á
sunnudag og þá veiddust tólf, sem
lofaði góðu, en svo komu bara tveir
upp á morgunvaktinni í gær,“ sagði
Guðmundur. Betur gengur á norð-
austurhorninu en 150 laxar veidd-
ust í Selá og Hofsá um helgina. Í
Selá veiddist 109 cm lax. »12
Lítur út fyrir erfitt
laxveiðisumar í
sumum ánum
Vegagerðin telur langlíklegast
að Vestfjarðavegur verði lagður
um Gufudalssveit um göng um
Hjallaháls, á nýjum stað yfir
Ódrjúgsháls og síðan fyrir Djúpa-
fjörð og yfir Gufufjörð. Þetta virð-
ist valkostur Vegagerðarinnar,
samkvæmt drögum að tillögu að
matsáætlun sem kynnt hefur verið,
þótt ekki sé skýrar að orði kveðið
um ágæti leiðarinnar. Rætt er um
að þetta sé ódýrasta leiðin sem til
greina komi en um leið lýst
ákveðnum efasemdum um umferð-
aröryggi í jarðgöngum. Tvær aðrar
leiðir verða kannaðar í fyrirhuguðu
umhverfismati.
Ein leiðin gerir ráð fyrir jarð-
göngum um Hjallaháls. Drög um
tillögu að matsáætlun eru kynnt á
vef Vegagerðarinnar. Almenningur
getur gert athugasemdir til 7.
ágúst næstkomandi. »6
Jarðgöng um Hjalla-
háls efst á blaði
Einn var fluttur á slysadeild eftir
árekstur tveggja bíla á Hringbraut í
gærkvöldi en við áreksturinn kvikn-
aði í báðum bílunum. Lögreglan lok-
aði Njarðargötu og hluta Hring-
brautar vegna slyssins. Svæðið var
enn lokað þegar Morgunblaðið fór í
prentun en búið var að slökkva eld-
inn.
Eftir áreksturinn logaði glatt í bíl-
unum og þó að slökkviliðsmenn hafi
verið skjótir á vettvang stór-
skemmdust bílarnir og eru svo gott
sem ónýtir. Um var að ræða aftan-
ákeyrslu.
Samkvæmt upplýsingum slökkvi-
liðsins var einn fluttur á slysadeild
en ekki fengust upplýsingar um líðan
hans. Fjöldi fólks var á vettvangi að
fylgjast með slökkvistarfinu.
Einn á slysadeild eftir
bruna í tveimur bílum
Ljósmynd/Arnar Bergur