Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Fataskápar í miklu úrvali
Prófessor í Singapúr, Hooman
Samani, hefur hannað tæki með
rafrænar silíkonvarir sem eiga að
gera aðskildum hjónum og öðrum
ástföngnum pörum kleift að kyssast
á netinu. Tækin eru tengd við tölv-
ur með USB-tengjum og með nema
sem skynja hreyfingu, þannig að
þegar varirnar eru kysstar hreyfa
nemarnir varirnar á hinu tækinu.
„Höfuðatriðið er að flytja kraftinn,
þrýstinginn og lögun varanna,“
hefur fréttastofan AFP eftir Sam-
ani. Hann segir að sérstakt silíkon-
efni hafi verið valið til að kossarnir
verði sem raunverulegastir. Tækið
hefur ekki enn verið sett á markað
vegna „siðferðilegra álitamála“ og
tæknilegra úrlausnarefna, að sögn
Samanis.
AFP
Kossatól Hooman Samani með tækið
sem nefnist „Kissenger“ á ensku.
Sýndarkossar fyrir
aðskilda elskendur
SINGAPÚR
Tugir manna hvaðanæva úr heiminum taka þátt
í árlegri jólasveinaráðstefnu sem hófst í gær
með fótabaði á Bellevue-strönd, um 24 kílómetra
norður af Kaupmannahöfn. Á ráðstefnunni er
fjallað um hagsmunamál jólasveina, álfa og ann-
arra fylgisveina þeirra auk þess sem keppt er í
ýmsum þrautum og íþróttum sem jólasveinum
eru hugleiknar. Ráðstefnunni lýkur á fimmtu-
daginn kemur.
AFP
Jólasveinar baða sig á árlegri ráðstefnu
Að minnsta kosti 111 manns
biðu bana og 235 særðust í 28
sprengjuárásum í nítján borg-
um og bæjum í Írak í gær.
Þetta eru mannskæðustu árás-
irnar á einum degi í landinu í
rúm tvö ár. Margir þeirra sem
lágu í valnum voru liðsmenn
öryggissveita sem virðast hafa
verið helstu skotmörkin.
Engin hreyfing lýsti árásun-
um á hendur sér. Daginn áður
hafði hreyfing sem tengist al-Kaída, Íslamska rík-
ið Írak, tilkynnt að hún hefði hafið nýja sókn til að
endurheimta landsvæði sem eru á valdi íraskra
öryggissveita. „Meirihluti súnníta í Írak styður al-
Kaída og bíður eftir því að samtökin snúi aftur,“
sagði leiðtogi hreyfingarinnar.
Stjórnin riðar til falls
Mannskæðum sprengjuárásum hefur fjölgað
verulega í Írak á síðustu tveimur mánuðum og
flestar þeirra hafa beinst að byggðum sjíta, ör-
yggissveitum og embættismönnum. Íslamska rík-
ið Írak hefur lýst mörgum árásanna á hendur sér.
Talið er að markmið árásarmannanna sé að
kynda undir úlfúð milli sjíta og súnníta og grafa
undan ríkisstjórn sjítans Nouris al-Malikis for-
sætisráðherra sem hefur riðað til falls vegna
togstreitunnar. bogi@mbl.is
Mestu blóðsúthellingar á
einum degi í Írak í rúm tvö ár
Markmiðið talið að kynda undir úlfúð milli súnníta og sjíta og fella stjórnina
Vaxandi togstreita
» Blóðsúthellingarnar eru raktar til tog-
streitu milli súnníta og sjíta og deilna sem
gætu orðið til þess að Írak liðaðist í sundur.
» Togstreitan hefur aukist frá því að síðustu
bandarísku hermennirnir voru fluttir frá Írak í
desember. Spennan magnaðist í desember
þegar gefin var út handtökutilskipun á hend-
ur súnníta sem gegndi embætti varaforseta
og var sakaður um að stjórna dauðasveitum.
Í rústum húss í
bænum Taji.
Einræðisstjórnin
í Sýrlandi viður-
kenndi í gær í
fyrsta skipti að
hún réði yfir
efnavopnum og
hótaði að beita
þeim ef erlendar
hersveitir réðust
inn í landið. Tals-
maður sýrlenska
utanríkisráðuneytisins, Jihad Mak-
dissi, lagði þó áherslu á að slíkum
vopnum yrði ekki beitt gegn sýr-
lenskum borgurum.
Talið er að sýrlenski herinn eigi
taugagas og sinnepsgas sem hægt
væri að beita í eiturefnahernaði
með Scud-eldflaugum og fleiri
vopnum. Ríkisstjórn Ísraels hefur
sagt að ekki sé hægt að útiloka inn-
rás í Sýrland til að koma í veg fyrir
að efnavopn komist í hendur óvina
Ísraels ef sýrlenska einræðis-
stjórnin fellur og glundroði skapast
í landinu.
SÝRLAND
Stjórnin hótar að
beita efnavopnum
Jihad Makdissi
Lyfjaónæmi er
vaxandi vanda-
mál í baráttunni
gegn HIV-
veirunni í mörg-
um löndum Afr-
íku sunnan Sa-
hara, samkvæmt
rannsókn sem
birt var í lækna-
tímaritinu Lan-
cet. Rannsóknin
leiddi í ljós að lyfjaónæmið hefur
aukist mest í Austur-Afríku, eða
um 29% á ári, og í sunnanverðri
Afríku, um 14% á ári. Lítil breyting
hefur hins vegar orðið á lyfjaónæmi
HIV-veirunnar í Vestur- og Mið-
Afríku og Rómönsku Ameríku.
Lyfjaónæmi getur myndast ef HIV-
smitaðir taka ekki inn lyfin reglu-
lega og ef eftirliti með lyfjatökunni
er ábótavant.
ALNÆMI
Lyfjaónæmi vaxandi
vandamál í Afríku
Alnæmi mótmælt
í Washington.