Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Nú er liðið ár síðan skrautlega
söngkonan Amy Winehouse lést,
en hún var aðeins 27 ára gömul.
Margir hafa velt því fyrir sér
hvort ekki yrði gerð mynd um líf
söngkonunnar en þær vangavelt-
ur fjöruðu fljótt út, eftir að faðir
Amy, Mitch Winehouse, harðneit-
aði að gefa leyfi fyrir slíku. Hann
virðist þó hafa breytt um skoðun
og ræddi í nýlegu viðtali um
möguleika þess að gerð yrði
mynd um Amy. Hann segir sér
þykja miður ef kvikmyndagerða-
menn hefðu líf Amy að gamanefni
en engu að síður væri það óhjá-
kvæmileg staðreynd að hun hefði
verið eiturlyfjafíkill og drykkju-
maður. Mitch Winehouse vinnur
nú ásamt framleiðendunum Sala-
am Remi og Mark Ronson að
drögum að kvikmynd um dóttur
sína. Mitch staðfestir einnig að
útgáfa á ókláruðum og óútgefn-
um lögum Amy Winehouse sé á
döfinni.
Kvikmynd um Amy Winehouse
Reuters
Amy Winehouse Skrautlegt líf og ferill
söngkonunnar efni í kvikmynd.
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Þetta er gíf-
urlega mikill heið-
ur fyrir kórinn og
mig að fá að taka
þátt í þessari stór-
kostlegu hátíð. En
jafnframt er þetta
stórt og krefjandi
verkefni,“ segir
Þorgerður Ing-
ólfsdóttir, stjórn-
andi Hamrahlíð-
arkórsins, en kórinn heldur ásamt
Þorgerði til Tórínó á Ítalíu á fimmtu-
daginn til þess að taka þátt í kórahá-
tíðinni Europa Cantat.
Úrvalsæskukór
Hamrahlíðarkórinn var valinn sem
einn þriggja úrvalskóra til þess að
taka þátt í flutningi á óratóríunni Le
Laudi á aðaltónleikum hátíðarinnar.
Le Laudi er síð-rómantísk óratóría
eftir svissneska tónskáldið Herman
Suter og textinn er sólarsöngur heil-
ags Frans frá Assísí. Að sögn Þor-
gerðar verða um 3.000 þátttakendur
á hátíðinni, og koma þeir frá fjöl
mörgum löndum Evrópu og víðar.
Flutningur á Le Laudi verður sam-
starfsverkefni þriggja kóra sem auk
Hamrahlíðarkórsins eru æskukór
Sviss og æskukór Ítalíu, ásamt sin-
fóníuhljómsveit Tórínó, fjögurra ein-
söngvara og drengjakórs. Stjórnandi
er Simon Gaudenz frá Sviss. „Ég hef
ekki unnið með honum áður en er
spennt fyrir því þar sem mikið er látið
af þessum manni, en hann vann m.a.
ein virtustu stjórnendaverðlaun Evr-
ópu árið 2009,“ segir Þorgerður.
Nýstárleg viðbót
í þjóðarfjársjóð
Hamrahlíðarkór er einnig með
nokkra aðra tónleika á dagskrá hátíð-
arinnar, en á þeim verður flutt íslensk
kórtónlist. Á efnisskrá eru m.a. verk
eftir íslensk tónskáld á borð við Jón
Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla
Heimi Sveinsson og Mist Þorkels-
dóttur. „Því má
segja að við séum nokkurskonar
menningarfulltrúrar Íslands,“ segir
Þorgerður, og bætir við að
„íslensk tónlist hefur vakið gíf-
urlega athygli og þátttaka Íslands á
hátíðinni í gengum árin hefur beint og
óbeint stuðlað að útgáfu og flutningi á
þessum verkum víða um heim“. Þetta
er í ellefta sinn sem Hamrarhlíð-
arkórinn tekur þátt í hátíðinni. Á efn-
iskránni sem Hamrahlíðarkórinn flyt-
ur í ár eru líka nýjar útsetningar
Hafliða Hallgrímssonar á íslensku
þjóðlögunum Móðir mín í kví, kví og
Bí, bí og blaka. Þess má geta að þess-
ar nýju útsetningar verða frumfluttar
á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld kl.
20. „Þetta eru nýstárlegar útsetn-
ingar, og hiklaust mikill fjársjóður að
fá sem viðbót við önnur íslensku þjóð-
lög í raddsetningu fyrir blandaðan
kór,“ segir Þorgerður.
Þátttaka í hátíð á borð við Europa
Cantat er ekki gefins, að sögn Þor-
gerðar. „Kostnaðurinn í heild er nær
12 milljónir króna, en við berum hann
sjálf. Nokkrir fyrrverandi kórfélagar
sem eru foreldrar krakkanna sem
skipa núna kórinn hafa lagt okkur lið
með styrktarlínum og söfnun. Einnig
hafa krakkarnir sjálfir staðið fyrir
söfnunarátökum en jafnframt eru
þau í einni eða jafnvel tveimur
vinnum til þess að fjármagna ferð-
ina,“ segir Þorgerður. „Þú getur rétt
ímyndað þér útkomuna þegar það er
búið að margfalda ferðakostnað, mat,
gistingu og önnur útgjöld 62 sinn-
um.“
Einstakur áhugi
Þorgerður bætir þó að við þátt-
takan sé einstakt tækifæri. „Áhugi
þessa unga fólks á að taka þátt í
metnaðarfullu verkefni á borð við
Europa Cantat og auka víðsýni sína
og kunnáttu, er gríðarlegur. Þetta er
tækifæri fyrir kórinn til þess að hitta
jafnaldra sína sem hafa svipuð
áhugamál og taka þátt í því samstarfi
sem söngurinn er,“ segir Þorgerður.
Europa Cantat var haldin í fyrsta
skipti árið 1961, og hefur verið haldin
síðan á þriggja ára fresti. „Hug-
myndafræði hátíðarinnar varð til upp
úr lokum seinni heimstyrjaald-
arinnar, en markmiðið með henni var
að fólk gæti sungið sig saman í áttina
að friðsamara samfélagi og unnið
saman í friði að sameiginlegu mark-
miði,“ segir Þorgerður. „Tónlistin og
söngurinn er tungumál þess.“
Ákafi Félagar í Hamrahlíðarkór leggja tíma, orku og peninga í þátttöku á umfangsmikilli evrópskri kórahátíð.
Hamrahlíðarkórinn
meðal úrvalsæskukóra
Kostnaður við þátttöku í kringum 12 milljónir
Þorgerður
Ingólfsdóttir
CHANNING
Tatum
MATTHEW
McConaughey
VINNAN Á KVÖLDIN HEFUR ALDREI
VERIÐ JAFN SKEMMTILEG!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
VIP
16
16
L
L
L
L
L
L
12
12
12
16
L
L
L
12
12TED kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D
MAGIC MIKE kl. 8 - 10:30 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
ÍSÖLD 4 ÍSLTAL kl. 5:40 3D
ÍSÖLD 4 ENSKTTAL kl. 6 2D
MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 6 2D
KRINGLUNNI
16
L
L
L
L
12
12
12
MAGIC MIKE kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 2D
LOL kl. 8 2D
ROCK OF AGES kl. 10:10 2D
SELFOSSI
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
LOL kl. 6 - 8 2D
SAFE kl. 10:10 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 6 2D
16
16
12
AKUREYRI
16
L
L
12
12
Madagascar 3 M/ísl.Tali kl. 6 3D
MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D
LOL kl. 6 2D
Dream House kl. 8 - 10:20 2D
KEFLAVÍK
16
ÍSÖLD 4 kl. 5:50 2D
UNDRALAND IBBA kl. 5:50 2D
DREAMHOUSE kl. 10 2D
MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D
MAGIC MIKE VIP kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10 2D
ICE AGE 4 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D
ICE AGE 4 ensku.Tali kl. 8 - 10:10 3D
ICE AGE 4 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
CHERNOBYL DIARIES kl. 10:30 2D
ROCK OF AGES kl. 8 2D
MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D
MADAGASCAR 3 ÍSLTAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D
SNOW WHITE kl. 10:20 2D
UNDRALAND IBBA ÍSLTAL kl. 1:30 2D
FRUMSÝND 25. JÚLÍ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
SAMBIO.IS
STÆRSTA MYND ÁRSINS
EMPIRE
HOLLYWOOD REPORTER
KVIKMYNDIR.IS
SÉÐ OG HEYRT
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
H Ú S G Ö G N
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga lokað
Sunnudaga lokað
BaselTorino Lyon
Verð áður 317.900 kr
Pisa-Rín 2H2
Aðeins 189.900 kr
*Takmarkað magn
Roma 2+Tunga
Aðeins 85.450 kr
Verð áður 170.900 kr
*Takmarkað magn