Morgunblaðið - 24.07.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
www.kemi.is • Sími: 544 5466 • Tunguhálsi 10 , 110 Reykjavík
UMHVERFISVÆNT BÆTIEFNI FYRIR ELDSNEYTI
ALLT AÐ 20%
ELDSNEYTISSPARNAÐUR
YFIR 50%
MINNI MENGUN
BYLTING!
„Það er ekki hægt að fullyrða á þess-
ari stundu hvaða áhrif verða af
auknu framboði á þorski,“ segir Arn-
ar Sigurmundsson, formaður Sam-
taka fiskvinnslustöðva. Fyrr í mán-
uðinum var ákveðið að auka
heildaraflamarkið á þorski um 10,4%
og verður þorskkvótinn því hátt í 200
þúsund tonn á næsta fiskveiðiári.
Einnig mun þorskkvótinn í Barents-
hafi verða aukinn um 200 þúsund
tonn og bendir slík aukning í þorsk-
magni til þess að verðmætaaukning
verði ekki að veruleika vegna mögu-
legs offramboðs á þorski. Gert var
ráð fyrir um 10 milljarða verðmæta-
aukningu.
„Það er meira heldur en framboð
og eftirspurn sem spilar inní, því
efnahagsástandið í markaðslöndun-
um þarf einnig að vega og meta. Í
eðli sínu eru þetta ánægjuleg tíðindi
fyrir okkur Ís-
lendinga að það
skuli vera aukinn
þorskafli,“ segir
Arnar sem telur
það óvíst hvaða
áhrif þessi mikla
aukning á fram-
boði á veiðum í
Barentshafi hafi.
„Auðvitað er
líklegra að það
leiði til verðlækkunar en þarna spilar
inn ástandið eins og í Suður-Evrópu.
Allar nýjustu fréttir segja manni það
að nú sé kreppa sem heimurinn er að
ganga í gegnum, það þarf að líta til
þess. Þetta eykur ákveðna óvissu
sem magnar upp það slæma ástand
sem er í sumum markaðslöndum.“
Með þeirri magnaukningu sem
kemur með meiri þorskafla á Íslandi
sem og í Barentshafi verður um 22%
aukning á þorskmagni sem gæti far-
ið inn á markaðina.
„Þegar allt er komið til alls eru það
jákvæð tíðindi að það sé aukin afla-
heimild á Íslandsmiðum, aukið fram-
boð annars staðar þýðir auðvitað það
að það eru meiri líkur á að það geti
leitt til offramboðs. Það er ekki hægt
að fullyrða hvað það verður mikið og
við vonum til að það verði sem allra
minnst.“
Arnar hefur einnig áhyggjur af
veiðigjaldinu sem nýlega var lagt á
sjávarútveginn.
„Íslenskur sjávarútvegur stendur
frammi fyrir því á sama tíma og
þetta er að gerast að það er verið að
margfalda gjaldtöku á sjávarútvegi,
það er mikið áhyggjuefni að þetta sé
að bera upp á sama tíma.“
aslaug@mbl.is
Áhyggjur af verðlækkun
„Vonumst til að offramboðið verði sem allra minnst“
Arnar
Sigurmundsson
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Þetta er orðið heilmikið af fólki,“
svarar Guðrún Jónsdóttir þegar
Ragnar Guðmundsson, veit-
ingamaður í Lauga-ási, innir hana
eftir því hvað niðjar hennar séu orðn-
ir margir, en í gærkvöldi bauð hann
velkomna fimm ættliði, ásamt mök-
um, á veitingastaðinn við Laug-
arásveg. Niðjarnir, í beinan legg, eru
Hilmar Guðlaugsson, fæddur 1930,
Steingerður Hilmarsdóttir, fædd
1949, Jóna Hildur Bjarnadóttir, fædd
1967, og Ágústa Ýr Sigurðardóttir,
fædd 1991.
Guðrún fæddist á Bala í Gnúp-
verjahreppi en maður hennar var
Guðlaugur Þorsteinsson sjómaður,
fæddur í Reykjavík. Þau eiga fjögur
börn og sjö barnabörn en alls eru
niðjarnir orðnir geysilega margir,
segir Hilmar, sonur Guðrúnar. Meðal
þeirra er mikið handboltafólk; sonur
Hilmars, Atli, og börn hans Arnór og
Þorgerður Anna, en Hilmar segir
langömmu þeirra fylgjast vel með því
hvernig þeim gangi, þrátt fyrir að sjá
orðið illa. „Hún sér þó þegar barna-
barnið skorar og segir okkur frá því.
Hún fylgist mjög vel með handbolt-
anum en ekki öðrum íþróttum,“ segir
Hilmar.
Sama kennitalan
Guðrún er einn af mörgum við-
skiptavinum Lauga-áss sem haldið
hafa tryggð við staðinn en þangað
kom hún gjarnan og fékk sér vínars-
nitsel eftir að hafa hlýtt á vín-
artónleika í Háskólabíó með syni sín-
um Þorsteini.
Lauga-ás er einn örfárra veit-
ingastaða, að sögn Ragnars, sem
stofnaði staðinn ásamt mági sínum
fyrir 33 árum, sem alla tíð hafa verið
reknir á sömu kennitölu, en segir það
líka hafa útheimt mikla vinnu að
halda rekstrinum gangandi.
„Það hafa komið erfiðir tímar en
það hafa líka komið góðir tímar. Og
maður hefur bara verið vakandi yfir
þessu,“ segir Ragnar. Fyrirtækið sé
sannarlega fjölskyldufyrirtæki, þar
sem þrír ættliðir hafi komið að
rekstrinum, en Ragnar rekur staðinn
í samvinnu við Guðmund son sinn.
„Svo hef ég verið þarna í salnum með
þremur barnabörnum og fólki þykir
það ægilega gaman að heyra þau
kalla á mig „afi!,“ segir hann.
Saman á gleðistundu
Guðrún Jónsdóttir er 101 árs en fylgist vel með handboltanum Fimm ætt-
liðir koma saman á veitingastaðnum Lauga-ási Halda tryggð við staðinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Saman Eftir matinn á Lauga-ási fór hluti hópsins á landsleikinn í handbolta þar sem langömmubarn Guðrúnar, Arnór, var í eldlínunni.
Notalegt Guðrún notar orðið „kósí“ til að lýsa Lauga-ási, þrátt fyrir að finnast það miður fallegt orð.
Þrjú börn, 3, 7 og
10 ára, sluppu
ómeidd eftir bíl-
veltu sem átti sér
stað við Presthól
á Álftanesvegi
um miðjan dag í
gær.
Tildrög slyss-
ins voru þau að
ökumaður jeppabifreiðar var að
sinna börnunum þegar hann missti
stjórn á bifreiðinni og hún valt á
veginum.
Betur fór en á horfðist því börnin
og ökumaðurinn voru úrskurðuð
óslösuð eftir skoðun á slysadeild.
Það mun að miklu leyti vera vegna
þess að þau voru öll í bílbeltum, að
sögn lögreglu.
Valt með þrjú börn í
jeppa á Álftanesvegi
Fyrirtaka í máli
sérstaks sak-
sóknara gegn
fimm karl-
mönnum, sem
grunaðir eru um
að hafa svikið út
tugi milljóna
króna, m.a. af
Íbúðalánasjóði
árið 2009, fór fram í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Saksóknari gaf
út ákæru á hendur fjórum mönn-
um, fæddum 1986-1990, fyrir
skjalafals, umboðssvik, fjárdrátt og
hylmingu í tengslum við fasteigna-
viðskipti árið 2009. Áður höfðu
fimm verið kærðir til efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra
vegna málsins. Sátu fjórir þeirra
um tíma í gæsluvarðhaldi en var
sleppt. Nú hefur fimmti karlmað-
urinn bæst í hóp ákærðu en sá er
fæddur árið 1980.
Fimm ákærðir vegna
fasteignasvindls
Ein líkamsárás
var kærð til lög-
reglunnar í Vest-
mannaeyjum eft-
ir skemmtana-
hald helgarinnar.
Árásin átti sér
stað fyrir utan
veitingastaðinn
Volcano. Þar
hafði orðið ágreiningur á milli
tveggja manna um tvítugt sem end-
aði með handalögmálum. Ekki er
ljóst hver orsök þessa ágreinings
var né liggja fyrir upplýsingar um
hversu alvarlegir áverkarnir voru.
Þrenn eignaspjöll voru tilkynnt
lögreglunnar í Vestmannaeyjum í
vikunni en m.a. var um að ræða
skemmdir á bifreið sem stóð við Ása-
veg 18 aðfaranótt 21. júlí sl.
Sömu nótt var rúða brotin í bif-
reið sem stóð á Strandvegi.
Líkamsárás kærð í
Vestmannaeyjum