Morgunblaðið - 24.07.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Skapaðu góðar minningar
með teppi frá Danfloor
Erum með fjölbreytt úrval af teppum á heimili,
stigahús og verslanir
Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook
Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum!
Vonin um stóran vinstriflokkdugði til að ýta ólíku fólki und-
ir eitt pólitískt merki. En þar sem
undirrót átaka þessa fólks er áfram
til staðar þrífst Samfylkingin að-
eins sem einsmáls flokkur. Styrmir
Gunnarsson skrifar:
Hvernig ætli sémeð þennan
flokk, sem heitir
Samfylking og á þá
ósk æðsta að koma
Íslandi inn í Evr-
ópusambandið?
Ætli þessi flokkur hafi enga þörf
fyrir að skýra afstöðu sína til þeirra
atburða, sem hafa verið að gerast í
Evrópu síðustu tvö árin fyrir kjós-
endum?
Kannast einhver við að hafaheyrt Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, formann Samfylkingar,
fjalla um framvindu mála innan
Evrópusambandsins á málefna-
legan hátt?
Kannast einhver við að hafa
heyrt Össur Skarphéðinsson, utan-
ríkisráðherra og fyrrverandi for-
mann Samfylkingarinnar, tala um
þessa þróun á annan veg en þann að
svara út í hött eða hafa uppi sína
sérstöku tegund af fyndni, sem ekki
skal gert lítið úr?
Er ekki lágmarkskrafa að for-ystusveit Samfylkingarinnar
geri landsmönnum grein fyrir því
hvernig þróun Evrópusambandsins
og evrusvæðisins horfir við þeim og
hver rök þeirra eru fyrir því að
þrátt fyrir það sem þar er að gerast
eigi að halda áfram með aðild-
arumsóknina?
Er það ekki þáttur í þeirri opnuog gagnsæju stjórnsýslu, sem
Samfylkingin lofaði – að tala við
fólk?
Eða er Samfylkingin hætt aðtala við fólk?“
Styrmir
Gunnarsson
Rofið talsamband
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 23.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 8 rigning
Akureyri 10 rigning
Kirkjubæjarkl. 18 skýjað
Vestmannaeyjar 13 skýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 13 þoka
Ósló 17 alskýjað
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 20 skýjað
Helsinki 16 skúrir
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 22 léttskýjað
Glasgow 15 skýjað
London 27 heiðskírt
París 26 heiðskírt
Amsterdam 25 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 25 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 26 skýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 27 léttskýjað
New York 28 léttskýjað
Chicago 33 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:12 22:58
ÍSAFJÖRÐUR 3:49 23:31
SIGLUFJÖRÐUR 3:30 23:15
DJÚPIVOGUR 3:34 22:34
Þeir ríflega 2.000 skátar sem eru á
Landsmótinu á Úlfljótsvatni höfðu í
nógu að snúast í gær, á fyrsta form-
lega dagskrárdegi mótsins. Töluvert
rigndi á skátana við setningu móts-
ins á sunnudag en í gær lék sólin
hins vegar við mótsgesti.
Dagskrá gærdagsins var afar fjöl-
breytt. Þar sýndu m.a. upprennandi
söngvarar, dansarar og fatahönn-
uðir listir sínar. Ennfremur tókust
skátaflokkar á við hjólaferðir og
fjallgöngur auk þess sem um 130
ferðir voru farnar upp klifurturn
skátanna, en það eru um 1.170 metr-
ar sem jafngildir 15 ferðum upp
Hallgrímskirkjuturn. Ekki bar á
öðru en að skátarnir skemmtu sér
vel og ekki spillti fyrir að geta slegið
á hungrið með því að gæða sér á
heilgrilluðu lambakjöti á dagskrár-
svæði víkinganna.
Fjör og fjölbreytt
dagskrá á skátamóti
Ljósmynd/Baldur Árnason
Landsmót Skátar úr Svönum á Álftanesi settu upp „Facebook-vegg“ þar
sem öðrum gefst kostur á að skrifa innlegg og senda þannig skilaboð.
Góður gangur er í framkvæmdum
sem standa nú yfir við smíði nýjar
brúar yfir Reykjadalsá nærri
Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði.
Brúarvinnuflokkur Vegagerðar-
innar á Hvammstanga, undir stjórn
Sigurðar Halls Sigurðssonar, hóf
smíðina í vor og er brúin nú upp-
steypt. Vegur að brúnni verður
lagður næsta sumar og hún tekin í
notkun þá á haustdögum. Fjárveit-
ingar eyrnamerktar þessu verkefni
eru skráðar á þetta og næsta ár.
Hið nýja mannvirki kemur í stað
eldri brúar sem er einbreið og
löngu úr sér gengin. Er nýja brúin
fjörutíu metra löng og tíu metra
breið og greiðir mjög leiðina t.d.
milli Kleppjárnsreykja og Reyk-
holts og þaðan í Húsafell sem er
einn vinsælasti og fjölsóttasti ferða-
mannastaður landsins. sbs@mbl.is
Ný brú yfir Reykja-
dalsá í smíðum við
Kleppjárnsreyki
Framkvæmdir Nýja brúin yfir Reykjadalsá
greiðir leiðir í Borgarfirði.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi