Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 11
Einbeiting Hugurinn skiptir ekki minna máli en líkaminn þegar fólk stundar hapkido.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Útiflísar á frábæru verði
Gæði og glæsileiki á góðu verði
Eigum á lager yfir 1.000m2
á sérverði (4 litir) 3. flokkur.
ATH fleiri litir væntanlegir
Af hverju lenda flísar í 3. flokki?
Flísarnar hugsanlega hornskakkar.
– Eitthvað að yfirborði flísanna.
–Litatónar etv. ekki alveg réttir.
– Kannski aðeins kvarnað úr hornum.
– Afgangar af framleiðslu frá 1. og 2. flokk.
ATH! 3. flokkur er aðeins seldur í heilum
pakkningum og ekki er hægt að skila
afgöngum.
1.790 kr. fm
2
Hengilshlaupið verður haldið í fyrsta
sinn næstkomandi laugardag 28. júlí
og er það lengsta utanvegahlaup árs-
ins, eða 81 kílómetri. Hlaupið verður
um Hengilssvæðið en hlaupið byrjar
og endar við Lystigarðinn í Hvera-
gerði. Hlaupaleiðin er mjög fjölbreytt
og má nefna að hlaupið er upp á
hæsta tind á svæðinu sem er Skeggi,
yfir í Grafning framhjá Úlfljótsvatni
og í átt að Nesjavöllum. Útsýni og
landslag er stórkostlegt og er m.a.
hlaupið um hverasvæði, yfir heitar ár,
framhjá fossum og útsýni um allt
Suðurland og inn á Þingvelli.
Búast má við að hlaupið taki 10-12
klst. og eru starfsmenn hlaupsins um
30 sem passa upp á að hlauparar vill-
ist ekki og fái þjónustu á leiðinni.
Nánar um hlaupið og hlaupaleiðina
á vefslóðinni:
www.hamarsskokk.wordpress.com
Hengilshlaupið 2012
Á fjöllum Mörgum finnst meira gaman að hlaupa utanvegar.
Lengsta utanvegahlaup ársins
Fáskrúðsfjarðarhlaupið verður haldið
í sjötta sinn í tengslum við hátíðina
Franska daga á Fáskrúðsfirði föstu-
daginn 27. júlí. Auk þess að vera
heilsubót er hlaupinu um leið ætlað
að vekja athygli á sögu og end-
urbyggingu Franska spítalans. Frakk-
ar reistu spítalann í þorpinu á Búðum
í Fáskrúðsfirði árið 1904 en Fá-
skrúðsfjörður var aðalbækistöð
franskra sjómanna á Austfjörðum.
Nýlega hófust framkvæmdir við end-
urbyggingu Franska spítalans en
hann var fluttur úr Hafnarnesi haust-
ið 2010.
Hlaupið er frá Franska spítalanum
við Hafnargötu og út með norður-
strönd Fáskrúðsfjarðar. Hlaupaleiðin
er malbikuð en möl út við vegarbrún.
Tvær vegalengdir eru í boði, 21 og 10
km. Í hálfa maraþoninu er hlaupið út
að Kolfreyjustað og til baka en í 10
km hlaupinu er snúið við nálægt
Brimnesi. Skráning fer fram á net-
fanginu birnabaldurs@gmail.com en
allar nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni hlaup.is.
Fáskrúðsfjarðarhlaupið
Morgunblaðið/Ómar
Fáskrúðsfjörður Franskir dagar
verða haldnir í bænum næstu helgi.
Hlaupið frá Franska spítalanum
við Hafnargötu á hátíðinni
Hapkido er kóresk sjálfsvarnar-
list þar sem jöfn áhersla er lögð
á standandi tækni eins og í
systuríþróttinni taekwondo,
lása, fellur og glímutök eins og í
aikido, japönsku jiu jitsu og
júdó. Til að byrja með er farið
vel í grunnatriði standandi
viðureignar og svo koma sífellt
fleiri lásar, fellur og slíkt inn í
námsskrána. Hapkido-iðkendur
nýta sér einnig vopn og æfa
varnir gegn einföldum vopnum
fyrir hærri beltin. Gætt er
fyllsta öryggis á æfingum og
skilyrði að vera með punghlíf,
tannhlíf og hlífar fyrir hendur
og fætur. 16 ára aldurstakmark
er til þess að æfa Hapkido.
Fólki gefst tækifæri á að
prófa og verða æfingarnar
ókeypis út júlí-
mánuð, en þá
hefst Hapkido-
kennslan fyrir al-
vöru. Nánar:
www.hapkido.is
Hapkido
ÓKEYPIS ÆFINGAR ÚT JÚLÍ
Það er sniðugt að nota papaja í
hollan þeyting ef þú vilt breyta
dálítið til og nota eitthvað sum-
arlegt í slíkt. Hinn exótíski
ávöxtur papaja er sagður vera
góður til að draga úr harðlífi og
útþembdum maga sem veldur
óþægindum og getur orðið til
þess að þér finnist þú þung/ur á
þér og fötin kannski örlítið
þrengri en gengur og gerist. Í
papaja er gnótt af C og A vítam-
íni og er gott að skera það niður
og borða sem eftirrétt eða
blanda því saman með klaka og
hreinni jógúrt í hollan og góm-
sætan þeyting. Frískandi og
góður ávöxtur sem hentar vel í
góðu sumarveðri líkt og nú.
Sumarlegur þeytingur
Góður við
magaónotum
Gott Hollur þeytingur með papaja.
Virðing Þegar sparkað er og kýlt er virðing í hávegum höfð.