Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Árni Baldursson veiddi gríðarstóran
lax í Skiphyl í Selá í Vopnafirði á
laugardag. Reyndist hængurinn 109
cm langur og var hann þykkur og
mikill um sig. Árni hefur víða veitt
og segir laxinn þann stærsta sem
hann hefur séð hér á landi og senni-
lega er þetta stærsti lax sem veiðst
hefur í Selá. Taldi hann laxinn hafa
verið um eða yfir þrjátíu pund.
Hængurinn tók hitstúpu með litlum
þríkrók, á tólf punda taum.
Miklið af laxi hefur gengið í
Vopnafjarðarárnar síðustu daga en
til marks um það veiddust rúmlega
150 í Hofsá og Selá samanlagt um
helgina. Að sögn Orra Vigfússonar,
formanns Strengs sem leigir árnar,
hefur laxinn dreift sér vel um þær og
einnig í Vesturdalsá. Rúmlega 400
laxar hafa farið um teljarann sem er
neðarlega í henni.
Hefur verið erfið fæðing
Aðstæður hafa verið afar erfiðar í
laxveiðiám víða í sumar, í þessu sí-
fellda blíðviðri og sólskini. Ekki síst
hefur blíðan gert veiðimönnum á
Vestur- og Norðvesturlandi gramt í
geði, því þótt talsvert af laxi hafi
gengið þá hefur hann tekið afar illa.
Má sjá það endurspeglast í veiðitöl-
unum, til að mynda í Norðurá og
Þverá/Kjarrá. Laxá í Dölum er ein
sú á sem fellur hvað mest í þurrkum
og þar hafa aðstæður verið afar erf-
iðar undanfarið. Árni Friðleifsson
umsjónarmaður hennar var því afar
lukkulegur þegar hann svaraði í sím-
ann úti í einum hylnum í gær, þar
sem hann var að segja veiðimanni til.
„Nú er þessi fína rigning hérna og
það hefur vaxið töluvert í ánni. Hún
er meira að segja að verða svolítið
skoluð. Þetta lofar mjög góðu,“ sagði
hann kátur. „Lax er nú að ganga inn
á hverju flóði og dreifist strax vel um
ána, en hingað til hafði hann bunkast
töluvert í Þegjanda. Við sáum laxa
efst í ánni í morgun, í Sólheimafossi.
Þá var líka sett í níu fiska en þrír
þeirra náðust á land.
Það hefur verið svo lítið vatn í
sumar að þetta hefur verið erfið fæð-
ing, en nú er þetta allt að ganga.“
Rigningarspáin brást Þverá
Hljóðið var hinsvegar ekki jafn-
gott í Andrési Eyjólfssyni leiðsögu-
manni við Þverá, þar sem hann var
við ána í gærkvöldi í léttum úða.
„Öll sú rigning sem hafði verið lof-
að hér um helgina brást, það var
óvera sem við fengum“ sagði hann
og bætti við: „Ég veit ekki hvað við
höfum gert af okkur!“ Aðeins bætti
þó í ána við þessa litlu úrkomu sem
féll á Arnarvatnsheiði og innst í
Borgarfirði og dagurinn í gær var
orðinn góður miðað við síðustu vik-
ur, tólf laxar komnir á land. Und-
anfarið hafa sum holl aðeins fengið
tólf til fimmtán laxa á stangirnar sjö,
sem telst lítið á þeim bænum, en áin
hefur verið svo vatnslítil að margir
veiðistaðir, sem eru fínir í með-
alrennsli, halda nú engum fiski.
Blaðamaður var við Ytri-Rangá
um helgina þar sem alltaf er nægi-
legt vatn enda gekk laxinn þar af
krafti. Einkum var góð veiði á
neðstu svæðunum, neðan við Æg-
issíðufoss og voru til að mynda að
veiðast um eða yfir tíu laxar á vakt á
neðsta veiðistaðnum, Borg, og allt
var það lax með halalús. Um fimmtíu
laxar hafa veiðst daglega þar eystra
undanfarið, í hvorri Rangánna fyrir
sig.
Veiddi sannkallað tröll í Selá
Árni Baldursson landaði 109 cm hæng Góð veiði í Vopnafjarðaránum Loksins hefur rignt í
Dölunum og aðstæður lofa góðu „Það var óvera sem við fengum,“ segir leiðsögumaður við Þverá
Morgunblaðið/Einar Falur
Strand Breski veiðimaðurinn Martin Bell rennir nýgengnum laxi á land við Klöppina neðan Ægissíðufoss í Ytri-Rangá. Öflugar göngur eru nú í ána.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í fyrra
366
1.170
288
486
495
826
534
484
739
479
Ekki fáanlegar
141
204
352
261
Staðan 18. júlí 2012
Ytri-Rangá og Hólsá (20)
Norðurá (14)
Eystri-Rangá (18)
Elliðaárnar (6)
Haffjarðará (6)
Blanda (16)
Selá í Vopnafirði (5)
Langá (12)
Þverá / Kjarrá (14)
Miðfjarðará (10)
Brennan (í Hvítá) (2)
Haukasdalsá (5)
HofsámeðSunnudalsá (7)
Laxá í Aðaldal (18)
Grímsá og Tunguá (8)
601
592
573
564
543
490
474
406
326
318
235
228
202
193
188FYRIR BÚSTAÐINN OG HEIMILIÐ
Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919
Áratuga þekking og reynsla
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is | opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16
Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum
Frí flugubox
Krókar fylgja öllum túpum
www.frances.is
Heimsþekktar flugur
atvinnumanna
Sökum mistaka á laugardaginn var við birtingu veiðitalna í gjöfulustu lax-
veiðiánum í liðinni viku, er taflan nú endurbirt. Eins og sjá má hefur Ytri-
Rangá skotist fram úr Norðurá, sem gjöfulasta á landsins, og Eystri-Rangá
er skammt undan. Báðar eru á mun betra róli en á sama tíma í fyrra. Afar
góð veiði er enn í Elliðaánum, þar sem veitt er á sex stangir.
Ytri-Rangá hefur tyllt sér á toppinn